Feykir


Feykir - 11.05.2005, Qupperneq 2

Feykir - 11.05.2005, Qupperneq 2
2 Feykir 18/2005 Samið um leigu á Víðidalsá Tímamótasamningur Björn Magnússon formaður Veiöifélags Víðidalsár og Stefán Sigurösson sölustjóri innanlands hjá Lax-á ehf. handsala 52 milljón króna samning milli H&S ísland ehf. og veiðifélagsins um leigu á Vididalsá frá og meö næsta ári. Síðari hluti fréttaskýringar um laxveiðiár I Húnavatnssýslum birtist i næsta tölublaði Feykis. Sauðárkrókur Tengill í tölvugeirann Um síðustu áramót sam- einuðu Tengill og Rafsjá krafta sína. Nú er unnið að því að öll starfsemi verði flutt í hús- næði Tengils að Aðalgötu 24 á Sauðárkróki en þar standa yfir umtalsverðar breytingar á húsnæði. Auk þjónustu á sviði ra- feindavirkjunar bætist nú við þjónusta og viðgerðir á töl- vum og tölvubúnaði, en slík þjónusta hefur ekki verið fyrir hendi á Sauðárkróki síðustu misserin. Einnig hefur Tengill ráðið til sín starfsmann í raflag- nahönnun. Starfsmenn Teng- ils eru nú 15 talsins en verkef- nastaða fyrirtækisins er góð og ágætar horfur fyrir sumarið. Leidari Ég berst á fáki fráum Það verður aldeilis tilkomumikil sjón á veginum frá Varmahlíð að Sauðárkróki að kveldi 16. júní. Fimm hundruð mótorhjól í halarófu með öllu er því tilheyrir. Hávaðinn hlýtur að verða talsverður og líklega vissara að vera ekki á hestbaki í nágrenninu þetta sumarkvöld. Ég minnist þess að eitt sinn mættum við Skjóna mín einum vélhjólamanni dálítið óvænt. Ég hélt að það yrði mitt siðasta og sennilega hryssan líka. Þess vegna er sennilega vissara að vera ekki á baki og jafnvel að hafa hross og annan fénað Ijarri umræddum vegi þetta kvöld. Hávaðinn jafnast á við flugeldasýningu að sögn þeirra sem skipuleggja mótið. Ánii Gunnarsson Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Útgefandi: Feykir hf Skrifstofa: Aðalgötu 21, Sauðárkróki Blaðstjórn: Árni Gunnarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson, Herdís Sæmundardóttir og Jón Hjartarson. Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Árni Gunnarsson arnig@krokur.is Simi 455 7100 Blaðamenn: ÓliArnar Brynjarsson PéturIngi Björnsson feykir@krokur.is Sími 453 6001 Póstfang Feykis: Box 4,550 Sauðárkrókur Askriftarverð: 210 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. Setning og umbrot: Hinirsömu sf. Prentun: Nýprentehf Sungið aflífi og sál á kóramóti á Löngumýri. Kóramót á Löngumýri__________________________ „Þegar ég heyri söng, þá man ég eftir þér" „Söngurinn er ein mesta gleðin í lífinu og hann sameinar og tengir okkur sérstökum böndum," sagði Gróa Hreinsdóttir, tónlistarstjóri og kórstjóri á kóramóti á Löngumýri laugardaginn 7. maí. Kóramótið stóð allan dag- vatns- og Skagafjarðarpró- inn og í lok dags var boðið til fastsdæmi stóðu fyrir nám- tónleika. Prófastarnir í Húna- skeiðinu og til þess var boðið barna- og æskulýðskórum á svæðinu. Auk þess voru þar nokkur ungmenni úr kór Gróu í Kópavogi. Efnisskráin var tvíþætt; annars vegar trúarleg lög frá ýmsum löndum og hins vegar veraldleg. Söngurinn varþrótt- mikill og glaðlegur og athygli vakti að eftir svo stuttan tíma, söng hópurinn þríraddað. Þar- na eru efnisbörn á ferð, eins og við vitum reyndar, sem heyrt höfum söng þeirra í kirkju- num . Þökk sé þeim kórstjórum, sem komu með kórana sína til þessa móts og Gróu, sem un- dir eins var reiðubúin að taka verkefnið að sér. Nú eru allir komnir til síns heima og til nýrra verkefna, en þegar við heyrum söng, þá vaknar minningin um þenn- an góða hóp, sem kom saman þennan dag á Löngumýri. Dalla Þórðardóttir Ræðuklúbbur Sauðárkróks íbúasamtök mikilvæg Það var glimrandi mæting á fun Ræðuklúbbsins. Síðastliðið mánudags- kvöld stóð Ræðuklúb- bur Sauðárkróks fyrir fundi á Kaffi Krók þar sem rætt var um hvort það þyrfti íbúasamtök á Sauðárkróki. Framsögu- maður var Snorri Björn Sigurðsson, fyrrverandi bæjarstóri á Sauðárkróki og sveitarstjóri Sveitar- félagsins Skagafjarðar. Feykir setti sig í sam- band við Árna Ragnars- son og innti hann eftir því hvernig til tókst. „Vel! Gott framsöguerindi hjá Snorra Birni og rnargir tóku til máls þannig að skemmti- legar umræður urðu. Hann taldi það mikilvægt að íbúar á Sauðárkróki tækju til hendinni, ekki síst í sveitarstjórnarmálum - og helst fljótt - því nú drægi að sveitarstjórnarkosningum." - Hvers vegna var um- ræðuefnið hvort það þurfi íbúasamtök á Sauðárkróki? „Ræðuklúbbur Sauðárkróks var stofnaður 1894 til þess að ræða mál Sauðárkróks. Á fundum Ræðuklúbbsins voru önnur framfaramál rædd en þau sem sveitarstjórn hafði á sinni könnu og eftir að klúb- burinn hóf starf að nýju fýrir síðustu aldamót gekkst hann fyrir ýmsum list\riðburðum og málþingum. Á síðustu árum hefur margt breyst. Hér eru nú nátt- -úru- og fornleifastofnanir sem gangast fyrir kvöldfundum um áhugaverð mál, tónlistarfélag hefur starfað af miklum krafti og eftir sameiningu sveitarfél- aganna hefúr það viðhorf verið vinsælt að Krókurinn gleypi allt, líka peningana. Spurning er hvernig Ræðuklúbburinn á að starfa og hvort einhver þörf er fyrir hann og svarið er svona að koma í ljós, að þó sveitar- félög sameinist er mikilvægt að hver byggð ræki menningu sína, sögu og sjálfsmynd og haldi fram hagsmunum sínum. Að rnínu viti er Ræðuklúbbur- inn því kominn aftur í gamla farið...” - Hver var helsta niðurstaða fundarins? „Að íbúasamtök væru mikilvæg fyrir Sauðárkrók, ekki til að efna til ófriðar hel- dur til þess að ræða framfara- og hagsmunamál og koma þeirn á framfæri, efna þyrfti til funda um hagsmunamál Sauðárkróks, hvetja til opinn- ar umræðu urn sveitarstjórn- armál og virkja íbúa til starfs og umræðu, að Sauðárkrókur væri aflstöð Skagafjarðar sem þ}Tfti viðeigndi athygli og at- beina sveitarstjórnar.” - Er eitthvað í deiglunni hjá Ræðuklúbbi Sauðárkróks? „Hann mun gangast fyrir opnum fundum, reyna að fá fleiri félaga til starfs og skipta um stjórn á aðalfundi í haust. Stjórnin sem nú situr á að mörgu leyti erfitt með að taka upp mál sem varða sveitar- félagið því stjórnarmenn eru starfstengdir því góða félagi. Kannski getur Ræðuklúbbur- inn unnið eins og íbúasamtök ef félögum fjölgar og áhuga- samir einstaklingar fást í stjórn. Á fundinum kom franr áhugi á umræðum um menningarhús, skipulags- og umhverfismál, atvinnumál og á íbúaþingum. Að auki var það talinn álits- hnekkir fyrir sveitarstjórn að hafa hætt að útvarpa frá sveit- arstjórnarfundum og líklegt að Ræðuklúbburinn taki það mál upp í Ráðhúsinu.”

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.