Feykir


Feykir - 11.05.2005, Blaðsíða 5

Feykir - 11.05.2005, Blaðsíða 5
18/2005 Feykir 5 héraði. Það var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á aðalfundi kaupfélagsins að skora á stjórnvöld að veita heimaaðilum rannsóknar- og virkjunarrétt varðandi Skatastaðavirkjun.” - Nú er það öllum Ijóst að kaupfélagið kemur víða við í atvinnumálum héraðsins. Því hljóta að koma upp atvik þar sem að skiptar skoðanir eru um það hvernig kaupfélagið kemur að málum. Eitt af þeim eru málefni Sparisjóðs Skagafjarðar. Hvernig sérð þú fyrir þér framtíð Sparisjóðsins? „Það má öllum vera ljóst að auka þarf verulega eigið fé sparisóðsins til þess að hann eigi rekstrargrundvöll. Eigið fé sparisjóðsins er um 30 milljónir sem þýðir mjög takmarkaða starfsmöguleika sjóðsins. Til samanburðar má geta þess að eigið fé Sparisjóðs Mýrasýslu í Borgarnesi er um kr. 1,5 milljarðar. Því er forsenda fyrir vexti sjóðsins að eigið fé verði aukið verulega og í mínum huga er það mjög mikilvægt að þátttakendur í þeirri aukningu verði fýrirtæki og einstaklingar í Skagafirði. Ekki er óvarlegt að auka þurfi eigið fé sjóðsins í um 300-400 milljónir á næstu þremur árum. Hins vegar er Ijóst að dýrmætur tími hefur tapast þar sem aðilar hafa ekki komið sér saman um framtíðarsýn og sjóðurinn ekki náð að þróast á sama tíma og mikill vöxtur hefur verið í fjármálastarfsemi í landinu. Því tel ég brýnt að sem víðtækust samstaða náist um stofnfjáraukningu og vöxt sjóðsins til að vinna að Skagfirskum hagsmunum til framtíðar og auka hér fjárhagslegt sjálfstæði og skapa störf. Því vona ég að úr rætist varðandi þann áherslumun sem verið hefur í málinu sem fyrst.” - Nú er ljóst að forsenda velgengni í byggðamálum er m.a. öflugt atvinnulíf. Hvernig metur þú stöðu Skagafjarðar í þeim efnum? „Eins og áður hefur komið fram hefur rekstrarumfang KS vaxið mjög á síðustu árum og efnahagsleg styrking þess er veruleg. Ég vona að það sama eigi við um aðra atvinnustarfsemi í héraðinu. Því ættu fyrirtækin að hafa verulega burði til að auka starfsemi sína enn frekar á næstu árum og fjölga atvinnutækifærum. Landfræðileg lega héraðs- ins og auðlindir þess gefa alla möguleika á því að hér verði blómleg byggð og kraftmikið atvinnulíf á næstu árum. Skagafjörður, sem er mikið framleiðsluhérað bæði til lands og sjávar, byggir þróttmikið og vel menntað fólk. Fjarlægðin á aðalmarkaðsvæði landsins og stærstu útflutningshöfh er alltaf að styttast og á enn eftir að styttast. Því ætti samkeppnisstaða okkar í þeim efnum að vera nokkuð góð. Hins vegar þarf fleira að koma til, til að byggð vaxi og at\'innulíf nái til að dafha. Eitt af þeim atriðum er góð þjónusta á þeim þáttum sem er á höndum sveitarfélaganna. Grundvöllur slíkrar getu til framtíðar er traustur og góður rekstur. Ég get ekki neitað því að ég hef verulegar áhyggjur af því að eiginfjárstaða sveitarfélagsins Skagafjarðar rýrnar milli áranna 2002 og 2003 um 200 milljónir og gert er ráð fýrir áframhaldandi rekstrarhalla í framlagðri fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir næstu ár, en rekstrarniðurstaða ársins 2004 hefur ekki verið birt. Það er skoðun mín og rnargra annarra sem velt hafa þessum málum fyrir sér að eina raunhæfa aðgerðin til að bæta rekstrarstöðu sveitarfélagsins er aukin atvinnustarfsemi sem leiðir af sér auknar tekjur fyrir sveitarfélagið. Því hef ég undanfarið talað fyrir því að atvinnulífið og sveitarfélögin taki upp náið samstarf um það með hvaða hætti sé hægt að snúa þessari þróun til betri vegar, því sama lögmál gildir um sveitarfélög, fýo-irtæki og einstaklinga að langvarandi taprekstur með tilheyrandi skuldasöfnun leiðir til ógæfu. Þetta er eitt af brýnustu verkefnunum á næstu árum.” „En framtíðarsýn mín persónulega varðandi þessi mál erað eins- taklingum og fyrirtækjum í Skagafirði gefist kostur á að vera hluthafar í uppbyggingu raforkuvera í héraði" SVEITARFÉLAGIÐ SKAGAFJÖRÐUR Leikskólakennarar Leikskólann Glaöheima, Sauöárkróki vantar leikskólakennara fyrir næsta skólaár, viökomandi þarf aó geta byrjaö l.ágúst n.k. Fáist ekki leikskólakennarar kemur til greina aö ráöa fólk með aöra uppeldismenntun eða reynslu. Laun samkvæmt kjarasamningum F.L. og launanefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 31.maí n.k. Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 4556120 eöa á netfanginu gladheim@skagafjordur.is. Skagafjörður RÁÐHÚSIÐ SKAGFIRÐINGABRAUT 21 SAUÐÁRKRÓKUR SIMI 455 6000 SAUÐÁRKRÓKSSÓKN Aðalfundur Sauðárkrókssafnaðar verður haldinn þriðjudaginn 17. maí kl. 20:00. Fundurinn hefst með bænastund í Sauðárkrókskirkju en venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 20:30 í Safnaðarheimilinu. Sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju Hvítasunnudagur Messakl. 14:00. í messunni verða þrjú ungmenni fermd og eitt kríli borið til skírnar.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.