Feykir


Feykir - 11.05.2005, Qupperneq 6

Feykir - 11.05.2005, Qupperneq 6
6 Feytdr 18/2005 yy\ BÚSTA&UK FASTEIG NASALA Á LANDSBYGGÐINNI sími 545 4100 www.bustadur.is Sýnishorn úr söluskrá: Sauðárkrókur: Til sölu við Skógargötu er einbýlishús, hæð og kjallari alls 83,6. Endurnýj- að þak, gluggar, hitakerfi ofl. Laust fljótlega. Nánari upplýsingar veitir fasteignasalan. Starfsmenn og þjónustufulltrúar Jón Sigfús Sigurjónsson lögg. fasteignasali, Reykjavík, 893-3003 Jóhanna Halldórsdóttir, sölustjári, Reykjavík, 868-4112 Magnea Guðmundsdóttir, Reykjavik, 897-0204 Védís E. Torfadóttir, Sauðárkróki, 867-5019 Kristján Guðmundsson, Grundarfirði, 896-3867 Jóhannes Erlendsson, Hvammstanga, 894-0960 Kristján Runólfsson, Hveragerði, 897-7822 Fagmennska eykur öryggi I fasteignavidskiptum Varmahlíð: Höfum í einkasölu fasteignina Lund, sem er einbýlishús, tvær hæðir og ris, alls 298 m2 auk geymslu/iðnaðhúsnæðis, um180m2. Gróin og skjólgóð lóð sun- nan við húsið með háum trjám. Nánari upplýsingar veitir fasteignasalan. Til seljenda: Skoðun, verðmat, gagnaöflun, skjalagerð ofl. er innifalið í söluþóknun. Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur eignir á söluskrá. Til kaupenda: Gerið kröfur um þjónustu löggilts fasteignasala við fasteignaviðskipti ykkar. Ólafur Þ. Hallgrímsson skrifar - fyrri hluti_ Hólaskóli - stór- iðja Skagafjarðar Á liðnum vetri voru fluttir á Rás 1 tveir útvarpsþættir í umsjá Karls Eskils Pálssonar,fréttamanns,þar sem fjallað var um nám í Hólaskóla - Háskólanum á Hólum, á mjög greinargóðan hátt. Þættirnir báru heitið Hólaskóli - stóriðja Skagafjarðar. í Hólaskóla er sem kunnugt er boðið upp á nám á þrem brautum: ferðam álabraut,fiskeldisbraut, og hrossabraut. Á hverri braut er nú boðið viðskiptafræði, rekstri og hvers upp á 1 -3 ára nám á háskólastigi kyns tæknibúnaði við fiskeldið. sem veitir ýmis réttindi. þáttunum var rætt við kennara og nemendur hverrar deildar fyrir sig. Athygli vakti hve margir nemendur báru skólanum og náminu vel sög- una og töldu það hafa opnað þeim nýjan hcim á sínu fræðasviði. Guð- rún Þóra Gunnarsdóttir.deilda rstjóri ferðamálabrautar.gat þess að lögð væri áhersla á að byggja upp ferðaþjónusfu- rekstur í dreifbýli með nátt- úruna og umhverfið að leiðarljósi. Menningartengd ferðaþjónusta hefur farið vaxandi. Hún býður upp á ýmis sóknarfæri hér í Skagafirði sem er ríkur af sögustöð- um.nánast h\'ar sem farið er. Þá var nefnt hugtakið matartengd ferðaþjónusta,tilra unaverkefni á vegum skólans sem Lauféy Haraldsdóttir veitir forstöðu. Ýmsir ferðamenn sækjasteftir að upplifa einhvers konar staðbundna matar- menningu. Verkefnið felst í því að matarmenning í Skagafirði verði gerð sýnilegri f\TÍr ferðafölk t.d með því að sérmerkja skagfirska rétti. Sannarlega áhugavert verkeliii. Hér við má bæta að nú nýverið var gerður samningur milli atvinnu- og ferðamálanefndar Sveitarfél. Skagafjarðar og ferðamáladeildar Hólaskóla þess efnis að ferðamáladeildin taki að sér umsjón með gerð stefnumótunar f\TÍr ferða- þjónustu í Skagafirði fyrir árin 2006-2010. Þar með er skólinn orðinn virkur þátttakandi í atvinnuuppbyggingu héraðsins á sviði ferðaþjónustu. Á fiskeldisbraut stendur yfir mikil uppbygging að því er fram kemur í viðtali við Helga Thorarensen deildarstjóra. Grunnur þess náms er nám í fiskeldi.allt er lVTur að líffræði, Mikil áhersla er lögð á verklega hlið námsins, að nemendur kom- ist í bein kynni við störf í fiskeldisstöðv- um. Verið er að taka í notkun stórt kennslu- húsnæði á Sauð- árkróki í gömlu frystihúsi fyrir verklega kennslu sem Fiskiðjan Skagfirðingur hefur látið innrétta fyrir deildina. Er kennslan hafin þar og aðstaða öll hin besta. Kaupfélag Skagfirðinga sýnir stórhug með því að leggja til þetta húsnæði fyrir fisk- eldisnámið. Á Hólum er sem kunnugt er starfrækt bleikjueldi og þar er einnig staðsett útibú frá Veiðimálastofnun sem Bjarni Jónsson veitir torstöðu. Hrossarækt og hestamennska er mjög vaxandi atvinnugrein í landinu ekki síst hér í Skagafirði. Kom fram í viðtali við Víking Gunnarsson deildarstjóra brautarinnar að öll aðstaða til kennslu í þeirri grein er orðin góð á Hólum m.a. myndarleg reiðhöll. I viðtali við Skúla Skúlason rektorHólaskólaífyrrgreindum þætti kom fram að í vetur stunda 100 nemendur nám í skólanum þar af um 40 í íjarnámi. Flestir eru nemendur á hrossabraut. Koma þeir frá ýmsum löndum enda sam- félagið á Hólum orðið alþjóðlegt en skólinn hefur nú þegar samstarf við erlenda búnaðarháskóla bæði á Norðurlöndum, Kanada og víðar. Á liðnu hausti voru teknar í notkun um 20 nýjar nemendaíbúðir, aðrar 20 eru í byggingu og verða væntanælega tilbúnar með hausti enda stefnt að því að tjölga nemendum skólans verulega á næstu árum að sögn rektors. Ólafitr Þ. Hallgiimsson

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.