Feykir - 19.10.2005, Side 3
39/2005 Feykir 3
Fréttaskýring um byggingariðnað í Skagafirði_
Mikið byggt og vöntun
á iðnaðarmönnum
í gær hófust framkvæmdir við grunn að einbýlishúsi við Iðutún 10. I baksýn erverið að vinna við parhús i sömu götu, sem byggler af
Byggðabóli ehf.
Byggingariðnaður hefur staðið í blóma í Skagafirði undanfarin misseri og
þeir húsbyggjendur og fleiri sem Feykir ræddi við segja að mikill hörgull sé á
iðnaðarmönnum. Mestur skortur hefur verið á pípurum, en einnig eru miklar
annir hjá múrurum. Menn eru sammála um að bætt aðgengi að lánsfjármagni til
íbúðabygginga hafi haft veruleg áhrif.
Að sögn Jóns Arnar Berndsen,
skipulags- og byggingarfulltrúa
hjá Sveitarfélaginu Skagafirði
eru verkefnin bæði á vegum
einstaklinga, fyrirtækja, og
félagsamtaka eins og vel heppn-
uð íbúðablokk Húsnæðis-
samvinnufélags Skagafjarðar.
Einnig hafa Búhöldar hsf.
undanfarin misseri byggt á því
svæði sem þeim var úthlutað
við Hásæti og Forsæti. Þeir
eru núna á þessu ári að ljúka
síðustu fjórum íbúðunum þar
og hafa fengið úthlutað við
Laugartúnið lóðum undir tíu
íbúðir til viðbótar í parhúsunr.
Þar eru þeir þegar Iryrjaðir
að byggja tvö hús eða fjórar
íbúðir.
Á Sauðárkróki hafa staðið
yfir framkævmdir á vegum
fyritækja og einstaklinga.
Vörumiðlun byggir yfir starf-
senri sína á Eyrinni inni á lóð
KS. Eiskiðjan stækkar vélasalinn
og eykur ffystirýmið hjá sér við
Eyrar\'eg. Neðan við verslunina
Hlíðarkaup er verið “að vinna
land” - fyrirhugað er að færa
frarnar götuna fyrir framan
búðina. Við það breytist lítillega
lóð Hlíðarkaups. Markmið
þessara framkvæmdum er
að auka öryggi vegfarenda og
aðgengi að versluninni.
Einstaklingar hafa byrjað á
fjórurn nýjum einbýlishúsunr á
Sauðárkróki á árinu og auk þess
er nokkuð um minni byggingar,
s.s. sólskála og bílageymslur.
Byggðaból ehf er að byggja
parhús við Iðutún. Töluverð
eftirspum er eftir lóðum undir
íbúðarhús á Sauðárkróki og til
að svara henni var ákveðið að
hefja ffamkvæmdir við Laugar-
tún og Iðutún og ljúka \'ið þær
götur í fúlla lengd. Þær frarn-
kvæmdir standa vúr. Lóðir fyrir
íbúðarhús, einbýli og parhús
sem lausar eru, eru aðallega
í Túnahverfi. Við Iðutún og
Gilstún eru Iausar lóðir fýrir
parhús. Einbýlishúsalóðir eru
til byggingarhæfar við Iðutún,
Gilstún, Eyrartún, og Fellstún -
auk þess sem til eru slíkar lóðir
í Kvistahlíð. Þá fékk Friðrik
Jónsson ehf úthlutað bygging-
arsvæði ofan við Laugartún að
norðan og er verið að hanna
byggingar þar á til að leggja inn
til samþykktar.
Yfir 60 íbúðir á Hólum
Mesta þenslan í íbúðabygging-
um er án ef við Háskólann á
Hólum í Hjaltadal en þar hafa
verið lagðar nýjar götur og
íbúðir byggðar í tugatali. Þrá
ehf hefur nú nýverið skilað af
sér rúmlega 40 íbúðum í fjöl-
býlishúsum og nú í sumar voru
hafnar framkvæmdir við 3 fjöl-
býlishús til viðbótar með sam-
tals 22 íbúðum. I Varmahlíð
hafa allar aðalframkvæmd-
ir verið á vegum Skaga-
fjarðarveitna en á Steinstöðum
hefur húsnæði grunnskólans
verið breytt í ferðaþjónustuhús
fyrir heils árs rekstur.
I Hofsósi er nýlokið
framkvæmdum við sparkvöll
en á bænum Hofi, sem stendur
norðan við Hofsána, ofan
þjóðvegar, er í byggingu stórt
íbúðarhús. Einnig standa
yfir framkvæmdir við gerð
listamannaseturs á jörðinni Bæ
á Höfðaströnd.
í sveitum Skagafjarðar eru
víða töluverðar framkvæmdir,
þær helstu og dýrustu eru
við fjós en þar sem bændur
eru að eru að stækka auka
mjólkurframleiðslu og breyta,
ogbyggjayfirgeldneitin. Má þar
sem dæmi nefna nýbyggingar
á Akra-torfúnni í Blönduhlíð
og víðar. Ein reiðskemma er
í byggingu í Sæmundarhlíð
og tvær til viðbótar bíða
samþykktar - þær báðar á að
reisa “út að austan”. Þá er verið
að stækka verulega nrinkabú
bænda í Héraðsdal.
Nokkur íbúðarhús eru í
byggingu í dreifbýli og er þar
bæði um að ræða nýbyggingar
og viðbyggingar og endurbæ-
tur á eldra íbúðarhúsnæði,
ferðaþjónustuíbúðir og frí-
stundahús. Þá hefur lagning
hitaveitu í sveitina milli Sauð-
árkróks og Varmahlíðar haft
mjög jákvæð áhrif á íbúðar-
húsabyggingar á þessu svæði.
Byggin hefur verið að þettast
á þessu svæði og rná þar sem
dæmi nefna tvö ný einbýlishús
í landi Messuholts og önnur
tvö á Syðra Skörðugili.
netkönnun
Hvaða sjónvarpsgrín er að
gera sig best þetta haustið?
Strákarrtir - ég fíla Sveppa,
Audda og Péturí ræmur!
112.8%)
Kaila Kaffi - ioksins
almennilegt íslenskt sitcom!
(11.9%)
Spaugstofan - skemmtilegasta
stofa landsins! (36.4%) K.
Stelpurnar - magnaður
grínþáttur! (17%)
The Simpsons - Hómer og
kompaní er toppurinn! (14.8%)
Silvía Nótt - þú veistgekt
fyndin og æðisleg! (7.1%)
molar
Aðalfundur
knattspyrnudeildar
Tindastóls
Aðalfundur knattspyrnu-
deildar Tindastóls verður
haldinn í Vallarhúsinu
við Skagfirðingabraut á
Sauðárkróki, fimmtudaginn
27. október kl. 20. Á dagskrá
verða venjuleg aðalfundar-
störf.
Leiðrétting
Á baksíðu 37. tölublaðs
Feykis var frétt um breytingar
á verði mjólkurkvóta. Þau
leiðu nristök urðu að í
fyrirsögn var kvótaverð sagt
hafa hækkað en eins og sjá
mátti ef fréttin var lesin hefur
verð mólkurkvóta lækkað að
undanförnu.
málstofa
Ferðaþjónusta:
stefnumótun og
samstarf
í tengslum við vinnu að
stefnumótun ferðaþjónustu í
Skagafirði hefur Ferðamála-
deild Hólaskóla ákveðið að
bjóða ferðaþjónustuaðilum
og öðrum íbúum Skagafjarðar
sem áhuga hafa á ferðaþjónustu
til opinnar málstofu haustið
2005.
25. október
Helgi Gestsson, forstöðumaður
Ferðamálaseturs Islands. heldur
fyrirlestur kl. 15.
Stefnumótun: hvað þarf að
hafa í huga?
Málstofa er haldin í
kennslustofu ferðamáladeildar
á 2. hæð í skólahúsinu og
stendur frá 15:00 - 17:00.
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir,
deildarstjóri ferðamáladeildar
Hólaskóla
Sjá nánará www.holar.is