Feykir - 31.05.2006, Qupperneq 7
21/2006 Feykir 7
Guðmundur Valtýsson skrifar_
Vísnaþáttur 430
Heilir og sælir lesendur góðir.
Játað skal að einni vísu tókst mér
að ldúðra í síðasta þætti. Þrátt
fyrir gott skref í þá átt að leiðrétta
ágætu hringhenduna hans Jóns
Bergmanns varð síðasta hendingin
ekki rétt og skal nú reynt að bæta
þar um.
Að mér hrapar háð og spé
hrekkjum napurt glapinn.
Ég hef tapað frœgð ogfé
fyrir gapaskapinn.
ÞaðerlngólfurÓmarÁrmannsson,
sem yrkir þessa heilræðavísu.
Geymdu það sem göfugt er
gakktu á drottins vegi.
Þá mun farsœld fylgja þér
fram að hirnsta degi.
Gaman að fá aðra ágæta vísu eftir
Jón S. Bergmann, sem hann mun
hafa ort á efri árum.
Sendu hjarta helgan svala
halt mér Guð í nánd við þig,
upp til þinna sólarsala
sigurhönd þín leiði mig.
Margir sem eldri eru , að minnsta
kosti Skagfirðingar, muna eftir
Isleifi Gíslasyni, sem mun hafa
flutt ti! Sauðárkróks 1903 og farið
að versla þar ári síðar. Eitt sinn
mun hann hafa auglýst svo.
Þú sem hefur lent í Ijótri klípu
lœkna mœtti þig.
Þú sem týndir tóbakspípu
talaðu við mig.
Mikil ös var í búð ísleifs næstu daga
og höfðu margir tapað pípum. Lét
kaupmaður alla lýsa sínum grip
og passaði það alls ekki við þá sem
fannst. Töldu gárungar síðar að
skáldið hefði aldrei fundið pípu
en notað þessa brellu til þess að fá
fleiri í búðina.
Um gamlan mann sem lengi vann
við svarðartekju fyrir Sauðár-
króksbúa orti Isleifur.
Ellin vinnur mörgutn tnein
margir verða linir.
En það er ekki svo tneð Svein
hann serðir eins og hinir.
Halldór Halldórsson, skósmiður
á Sauðárkróki, var hamhleypa til
vinnu og stundaði vel sitt starf. Þó
kom fyrir að hann lokaði stofunni
og fór á drykkjutúr. Urn slíka reisu
yrkir Isleifur.
Fœr sér bjór ogfaðmar víf
frœgðasljór en spakur.
Nú er þjór og nautnalíf
Nú er Dóri rakur.
Gaman er að halda áfram með
vísur er tengjast Skagafirði. Það er
hinn snjalli Móskóga Stebbi, sem
yrkir svo eftir góða veislu.
Kátt var ittná knœputmi
ég kynntist ungfrú Þuríði,
þá máttifá allt hjá meyjunni
tnikil er íslensk gestristti.
Nokkuð kátt hefúr einnig verið hjá
Benedikt Valdemarssyni frá Þröm
er hann yrkir svo.
Heitt í ceðunt blóðið brann
breytti nceði í vökur.
Ótal þræði andinn spattn
ástarkvæði ogstökur.
Löngutn víttið lífgar brá
lætur dvítta harnta.
Sé égskína bjarta brá
brositt þín og arma.
Ljúft blæritm leika kantt
lækur hlœr í runni,
blótnið kcera kysir hantt
krystalstærum muttni.
Þá finn ég í drasli rnínu eina vísu
í viðbót, sem skrifað er við að sé
eítir Benedikt. Er ég nú í vafa um
að það sé rétt og bið lesendur að
gefa mér upplýsingar ef þeir vita
hvað satt er í því rnáli.
Öls við bikar andi skýr
á sér hiklaust gamatt.
Augttabliksins œvintýr
endist vikum saman.
Kunn er þessi vísa Egils Jónssonar.
Þessi skræku hrundarhljóð
heimurinn vill ég banni.
En þeirra rödd er þýð oggóð
þegar þær hvísla að mantti.
Sama má segja um næstu vísu
Gríms Sigurðssonar ffá Jökulsá.
Eg er bergmál, æ til taks
ástardís og Ijóða.
Kallirðu á tnig kem ér strax
-kallaðu ekki góða.
Oft höfum við landsins börn
orðið að lifa við kulda og vosbúð,
þrátt fyrir væntingar um annað
á vortímanum. Kannski hefur
verið kalt þegar hinn snjalli Jón
Þorsteinsson á Arnarvatni orti
svo.
Ég heflöngu þráreynt það
þegar kólu blómin,
að vottitt mín í vettlings stað
vertndi fmgurgóminn.
Langar að biðja lesendur að styrkja
líf þáttarins með smávegis af efhi.
T el gott að enda með þessari fallegu
vorvísu Jóns Ingvars Jónssonar.
Veðurfarið okkar á
engu nýju lutnar.
Nú er Esjan orðin grá
enda komið sumar.
Verið þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttir
3. deildin í knattspyrnu_
Hvöt byrjar
með stæl
Tindastóll spilaði fyrsta leik
sinn í 3. deildinni við Kára
frá Akranesi á sunnudaginn.
Ekki riðu Stólarnir feitum
hesti frá viðureigninni
því lið Kára sigraði 2-1 en
leikurinn ku hafa verið bæði
leiðinlegurog Ijótur.
Það er auðvitað ekki
glæsileg byrjun að tapa fyrsta
leiknum í 3. deildinni en
þetta var hins vegar aðeins
fyrsti leikurinn af 15 í sumar
og ekki neinn heimsendir að
vera með 0 stig eftir fyrstu
umferð - það skiptir meira
máli hversu mörg stigin
verða að 15. umferð lokinni.
Samkvæmt frásögn á
heimasíðu Tindastóls léku
Stólarnir illa í leiknum og
náðu ekki upp spili. Ebbe
Nygaard skoraði engu að
síður fyrsta mark leiksins
fyrir Stólana á 16. mínútu
eftir mistök hjá markmanni
Kára. Eftir markið náðu Ska-
gamennirnir )Tirhöndinni og
pressuðu stíft. Staðan var 0-1
í hálfleik.
I síðari hálfleik skoruðu
leikmenn Kára tvö mörk
og voru þau bæði af ódýrari
gerðinni. Leikmenn Tinda-
stóls fengu nokkur færi en
nýttu þau illa, þeir voru
annars hugar allan leikinn
og fundu sig alls ekki,
þetta var ekki þeirra dagur
- kannski ætti að banna að
spila knattspyrnu daginn
eftir kosningar?
Hvöt með 5 mörk
Hvöt hóf keppni í 3. deild-
inni með miklum glæsibrag
en Blönduósingar fengu
Skallagrím í heimsókn.
í tilefni þess að
Ungmennafélagið Fram
á Skagaströnd á 80. ára
afmæli á þessu ári fengu
nemendur Höfðaskóla á
Skagaströnd boli að gjöf
síðastliðinn föstudag.
Það var stjórn U.M.F
Fram sem að stóð fyrir
framtakinu en félagið naut
Aron Bjarnason komu
heimamönnum yfir með
marki á 28. mínútu og var
staðan 1-0 í hálfleik. Hvöt
gerði síðan fjögur mörk á
22. mínútna kafla í síðari
hálfleik. Fyrst gerði Helgi
Hafsteins annað mark liðsins
á 58. mínútnu og í kjölfarið
fylgdu mörk frá Ivan
Stefanovic, Ólafi Jónssyni og
Dejan Djuric innsiglaði 5-0
sigur Hvatar með marki á
80. mínútu.
Eitt stig til Neista
Þá gerði Neisti Hofsósi
ágæta ferð til Ólafsvíkur en
þar gerði liðið jafntefli við
lið Snæfells, 1 -1.
liðsinnis frá FISK Seafood
og Landsbankanum. Nem-
endurnir voru að vonurn
þakklátir og ánægðir með
gjöfina og staðráðnir að taka
virkan þátt í sumarstarfi
félagsins sem reynt verður
að hafa með líflegasta móti í
surnar.
www. skagastrond. is
Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd 80 ára
Fengu afhenta boli
f ATVINNA 1
Óskum eftir að ráða mann
með meirapróf og
vinnuvélaréttindi sem fyrst.
Upplýsingar hjá Steypustöð Skagafjarðar
og í síma 453 5581
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
rn söiu
WJ Vento árgerð 1998, keyrður
125 þúsund km, sóllúga, filmur,
spoiler. Beinskiptur, vetrar- og
sumardekk á felgum, álfelgur.
Einnig á sama stað bláyrjóttur
svefnsófi, sófaborð með 2 gler-
plötum og isskápurmeð frysti.
Upplýsingar í síma 846 9198.
Óskað eftir
íbúð til leigu
Óskað er eftir þriggja herbergja
íbúð til leigu á Sauðárkróki frá 1.
ágúst. UpplýsingargefurAnna i
síma 453 7918 eða 846 6684.
Móðuhreinsun glerja
Ódýr, einföld og varanleg lausn.
Verð á ferðinni frá 9.-11. júní.
Upplýsingar veitir Magnús Már i
sima 899-4665.
Heyrúllur til sölu
Tilsölu 50 heyrúllur, árgerð 2005
afnýlegu túni.
Upplýsingar í síma 453 8257 eða
8648257.
WV til sölu
Tilsölu WV Passat 1.8 turbo árg
1998 ekinn 149 þkm, sjálfskiptur,
dráttarkúla, álfelgur.
Upplýsingar i síma 894 3395/453
8895.
Veski tapaðist
Blátt Harvest galla-peningaveski
týndistsl. fimmtudag eða föstu-
dag á leið frá ShellSportniðurá
Hólaveg eða íkringum Varma-
hliðarskóla Iföstudag). Veskið
er ómerkt en innihélt þónokkra
peninga.
Skilvís finnandi vinsamlega hafið
samband í sima 8616922 eða við
lögreglu. Fundarlaun.