Feykir - 08.11.2006, Blaðsíða 3
41/2006 Feykir 3
Sigurður Guðjónsson á Sjávarborg, Sævar Einarsson á Hamri og Hilmar Baldurs-
son og Svavar Sigurðsson starfsmenn Mjólkursamlags KS.
Skagfirðingabúð
S”"ölmenni á
ændadögum
Fjöldi manns mætti á
Bændadaga í
Skagfirðingabúð á
fimmtudag og föstudag í
síðustu viku. Bændur og
búandlið kynntu þar
matvörur úr sveitinni en
Bændadagar eru orðnir
árlegur viðburður.
Bændadagar cru sam-
vinnuverkefni sauðfjárbænda
og kúabænda og Mjólkur-
samlags KS, Sláturhúss KS og
Skagfirðingabúðar. Starfs-
menn afúrðastöðvanna bjóða
gestum Skagfirðingabúðar að
smakka á margvíslegum kjöt-
réttum, ostum og mjólkur-
vörum. Búðin hefur síðan
boðið verulegan afslátt af
þessum vörum.
Sem dæmi má nefna er að
kíló af völdum brauðosti
kostaði tæpar 500 krónur t
stað 1000 króna og kílóið af
nautavöðva kostaði á Bænda-
dögum 900 krónur. Viðtökur
neytenda voru enda góðar.
Örn Þórarinsson, bóndi á
Ökkrum í Fljótum og blaða-
maður Feykis var með
myndavélina á Bændadögum
og tók meðflygjandi myndir.
Halldóra á Ketu tók þátt i kynningunni. Hér er hún búin að gefa Guðrúnu Rafns-
dóttur að smakka á lambakjöti.
Guðmundur sveitarstjóri Guðlaugsson, Margeir Friðriksson fjármálastjóri Skaga-
fjarðar og kona hans Sigurlaug Valgarðsdóttir.
AUGLÝSING
Umsjónarmaður
Sauðárkrókskirkju,
safnaðarheimilis og kirkjugarðs t
Sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju auglýsir eftir starfsmanni;
í starfinu felst umsjón kirkjugarðs; kirkju og safnaðarheimilis
Um er að ræða hirðingu og umsjón kirkjugarðs, húsvörslu,
útleigu og þrif í safnaðarheimili, þrif á kirkju
og önnur tilfallandi störf í samráði
við meðhjálpara og sóknarprest.
Nánari upplýsingar um starfið
veitir Brynjar Pálsson í síma 893-5417
Umsóknarfrestur er til 23.nóvember 2006
„AKROPOLIS
BÉKRÓPÓLÍS
ÍC HEFSÉÐ
ÞAÐ ALLT."
NJOTTU ÞESS AÐ LI6GJA
ÁHYGGJULAUS YFIR
SKÓLABÓKUNUM.
WWW.KBNAMSMENN.IS
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKI AUGLÝSIR
Laus staða
Laus er til umsóknar 80% staöa
í ræstikerfi HS
Vinnutími 08.00 - 15.00, unnin er ein helgi
í mánuði, 08.00 - 16.00.
Allar nánari upplýsingar veitir Anna Gísladóttir ræstingastjóri í síma 455 4038.
Staðan er laus f.o.m. 26.nóvember. Umsóknarfrestur t.o.m 16. nóv.
Skriflegar umsóknir sendist til Herdísar Klausen hjúkrunarforstjóra
i'át-
<9*
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki