Feykir


Feykir - 08.11.2006, Qupperneq 4

Feykir - 08.11.2006, Qupperneq 4
4 Feykir 41/2006 Strandamenn búa sig undirnýja sókn í ferðaþjónustu Hugsa gott til bættra samgangna Gamall hjallur og bátaspil á Selströnd við Steingrímsfjörð. Enda þótt Strandamenn séu ekki fyrirferðarmiklir í umræðunni um nýsköpun og uppbyggingu á landsbyggð- inni fer því fjarri að þar ríki deyfð og vonleysi um framtíð byggðar. Þessu komst tíðindamaður Feykis að er hann átti stutt spjall í síma við þau Jón Jónsson þjóðfræðing á Kirkjubóli í Steingrímsfirði og Evu Sigurbjörnsdóttur hótelstýru í Djúpavík sem bæði reka ferðaþjónustu ásamt mökum sínum. Svo hittist á að þennan dag komu 20 framsæknir Stranda- menn saman á Kirkjubóli og ræddu framtíðarhorfur í tengslum við nýja vegarlagningu um Arnkötludal en því verki á að vera lokið 2008. Bærinn Kirkjuból er í Tungusveit sem nú er nefnd svo eftir að nafn Kirkjubólshrepps var lagt niður við sameiningu nokkurra hreppa sem síðan kallast Strandabyggð. Jón segir íbúana vera samtaka við að búa sig undir þau sóknarfæri sem þessi samgöngubót komi til með að bjóða upp á og enginn bilbugur sé í fólki. Jón hefur ásamt eiginkonu sinni Ester Sigfús- dóttur reJdð ferðaþjónustu á Kirkjubóli frá árinu 2001 og segir aðsókn fara vaxandi með hverju ári. Hann segir margt vera í gangi sem laði ferðafólk þarna norður auk þess sem sérstaða byggðarinnar veki vaxandi forvitni ferðamanna, jafiit erlendra sem innlendra. Auk vaxandi aðsóknar á galdrasýningar og hrútaþukl eru ný tækifæri komin til sögunnar og farin að laða til sín ferðafólk. Er þar um að ræða fúglaskoðunarferðir út í Grímsey á Steingrímsfirði sem er þéttsetin lundabyggð og eins ernúboðiðuppáskoðunarferðir frá Norðurfirði með farþega- ferju norður á Hornstrandir yfir sumarið. Nýbúið er að byggja sundlaugar bæði á Hólmavík og Drangsnesi í viðbót við þær sem fyrir voru á Krossnesi í Norðurfirði og Laugarhóli í Bjamarfirði. Á Laugarhóli er nú boðið upp á gistingu allt árið og þar hefur hótelbyggingin verið stækkuð og lagfærð. Síðastliðin t\rö haust hefur Strandagaldur staðið fyrir uppgreftri á fornri hvalveiðistöð ffá tímum Baska á svokölluðum Strákatanga við Hveravík sunnan Drangsness. Þar hefúr rneðal annars komið í ljós múrsteinshlaðinn bræðslupottur og rennan upp að honum. Þessar minjar styðja gamlar munnmælasögur um starfsemi á þessum stað og eru hin merkasta heimild jafiivel í alþjóðlegum skilningi. Ein af fáum rækjuverksmiðjum liér á landierennþá rekin á Hólnravík með aðfluttu hráefni. Þó fólki hafi að sönnu fækkað hin síðari árin eru Strandamenn sannfærðir um ffamtíð byggðar sinnar og ráðnir í að finna tældfærin og nýta þau. Landbúnaður er einvörðungu sauðfjárbúskapur utan þess að tveir mjólkurffamleiðendur eru inni í Hrútafirði. Hlunnindi af reka hafa stórlega minnkað; Vetrarstemnin ÍDjúpuvik. þó eru ennþá nokkuð nýttar sögunarvélarnar í Litlu Ávík og í Þorpum og einnig í Ófeigsfirði. Aðspurður segir Jón að kapphlaup auðmanna eftir lausum jörðum sé eitthvað farið að gera vart við sig í sýslunni en þar hafi lítið verið í boði. íbúðarhús þeirra jarða sem losni úr fastri búsetu séu yfirleitt í góðu viðhaldi og búið í þeim yfir sumartímann. Nokkrir ungir bændur eru að stækka búin og nýbyggingar eru reistar. Og Jón gefur lítið fyrir þau viðhorf ýmsra forvígismanna landsbyggðarinnar að framtíð búsetu sé bundin við málmbræðsluáform. Eva hótelstýra segir að aðsókn hafi aldrei verið meiri hjá þeinr hjónum í Djúpavík en nú í sumar. Þau hafa þar fasta búsetu allt árið en yfir vetrartímann er lítið um að vera. Þó koma alltaf einhverjir hópar sem leita effir aðstöðu til vélsleðaaksturs og ýmsu því sem þetta sérstæða byggðarlag býður upp á umfram aðra ferðamannastaði. Ogþegar fundinum á Kirkjubóli lauk þurfti hún að hraða sér heim til að sinna blönduðum hópi Þjóðverja og íslendinga sem pantað höfðu gistingu og veitingar. IJklega er það mildl spurning hvort ástæða sé til að blanda umræðunni um mannlíf á Ströndum noJckurri vorkunnsemi. Það er í það minnsta sannfæring mín eftir þessi samtöl að Strandirnar séu fremur heppnar með fólk. Árni Gunncirsson frá Reykjum Helga Bjarnadóttir skrifar_ Ef Miðgarður væri á hjólum Þeir sem veljast til forystu í Sveitarfélaginu Skagafirði þurfa að vita hvernig landfræðileg lega þess er, einnig þurfa þeir að þekkja söguna og skynja þarfir samfélagsins. Afgreiðsla sveitarstjórnar á málefnum Miðgarðs þann 19. okt. sl. kemur ekki á óvart. Á kynningarfundi um fyrir- liugaðar framkvæmdir við húsið, sem haldinn var í Miðgarði 1. nóv. 2005, lýsti oddviti framsóknar, Gunnar Bragi, því yfir að hann samþykkti þær aldrei. Nú er framsókn alls ráðandi og allt urn kring og eftir höfðinu dansa limirnir og fylgifiskarnir einnig. Strax eftir sameiningu sveitarfélaganna hér í Skagafirði 1998, áttu félagsheimilin erfitt uppdráttar. Þá voru sjálfstæð- ismenn og framsókn í meiri- hluta. Ráðamenn þekktu ekki söguna. Þá varð einum góðum Skagfirðingi að orði: „Ef Miðgarður væri á hjólum myndu þeir - sveitarstjórnar- menn - draga hann út á Krók.“ Á síðasta kjörtímabili tókst vegna starfs Vinstri grænna, að rétta hlut félagsheimilanna og það hafðist í gegn að ganga frá samningi við ríkið varðandi Menningarhúsið Miðgarð. En ekki voru sjálfstæðismenn drífandi í því máli. En nú er öldin önnur. Framkvæmdirnar við Miðgarð á að skerða stórlega. Menningin á bara að vera á einni hæð! Kannski á að nota þá fjármuni sem sparast til þess að setja hjól undir húsið og draga það út á Krók. Þá yrði væntanlega hægt að fylgja eftir upphaflegum áætlunum og hafa menninguna á öllum hæðum. Fyrir skömmu boðuðu ráðamenn sveitarfélagsins til fundar um þetta mál nreð hagsmunaðilum, formanni húsnefndar og fulltrúa frá Akrahreppi. Fyrirvarinn var skammur og því gátu ekki allir mætt. Sveitarstjórinn hringdi í formann húsnefndar, Sigurjón Ingimarsson Holtskoti, kl. 14:30 og boðaði hann á fund kl. 18 sarna dag. Sigurjón var þá að vinna suður í Borgarfirði og átti óhægt um vik. Sveitar- stjórinn óskaði eindregið eftir að formaður húsnefndar sæti þennan fund. Sigurjón kvaðst, starfs síns vegna, alls ekki geta rnætt á þessum tíma. „Við bíðum eftir þér“, sagði sveitarstjórinn og þannig var málum ráðið. I trausti þessa ók Sigurjón norður og mætti á fundinn kl. 19 og í þann mund er hann kom þar inn var fundi slitið. Hvers konar vinnubrögð eru þetta? Þarna er verið að lítilsvirða fólk og skoðanir þess. Heitir þetta að hafa samráð? Heitir þetta: „Allir með.“? Það virðist sem ráðamenn sveitarfélagsins hvorki þekki sögu þess, eða skynji hjartslátt samfélagsins. Og Skagfirðingar sitja uppi með skömmina. Helga Bjarnadóttir, Furulundi 4, Varmahlíð

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.