Feykir


Feykir - 08.11.2006, Blaðsíða 7

Feykir - 08.11.2006, Blaðsíða 7
41/2006 Feykir 7 Guðmundur Valtýsson skrifar_ Vísnaþáttur 440 Heilir og sælir lesendur góðir, nokkuð vel tókst til með birtingu síðasta þáttar. Þó kornst á inn í vísu Jóns S.Bergmanns þar sem átti heima orðið að. Smiður þekkist þar á grip því skal standa á verði. Enginn skepna á svona svip sem að Drottinn gerði. Það er Ingólfur Órnar Ármansson sem yrkir svo urn samferðamann og skáldbróðir á lífsleiðinni. Hann er skrýtinn falskur fýr frama lítinn ber’ann Niður brýtur allar brýr bölvaður skítur er’ann Hefur allt á hornum sér hortugur sá fjandi. Mannhelvítið orðin er œrið óþolandi. Kauða hefég andstyggð á alltaf að rægja aðra. Bölvaður lygalaupur sá lcevís eiturnaðra. Ekki líkar Ingólfi allt sem birtist af afurð yngri skálda. Ljóðin eru lítils tnerk hjá leirskáldotium ungu. En dýrt ort Ijóð er lista verk sem liftr á hver tttanns tungu. Að lokunr þessi frá Ingólfi. Um það herma ýmsar spár oft þeir vilja stranda. Setn hafa vasa fulla fjár enfátæktina í anda. Garnan að hressa vísnavini næst nteð þessari ágætu vísu Friðriks Hansen. Létt skal stíga lífsitts vals leika sér við blœinn. Þó tnig vanti allt til alls eins ogfyrri daginn. Það mun hafa verið Þormóður Pálsson sem orti svo við dyr Agnesar og Friðriks. Fornar slóðir hrífa hér hug til bróðurþels og tára Drifnar blóði mœta tnér tnyndir hljóðar, fyrri ára. Lagleg hringhenda þar hjá þessunt snjalla hagyrðingi. Gaman að bæta annarri við. Mörg er vist og víða gist varir þyrstar, dans og kæti. Eitt er kysst, en óðar mist önnurflyst í hennar sæti. Það mun hafa verið Jakob heitinn á Varmalæk sem orti svo um menntamann. Hefur mannsins þuttga þreytt þraut í tveimur álfuttt. Enda er svo til ekki neitt eftir afhonum sjálfum. Önnur rnikil uppáhalds vísa, kemur í hugann eftir Jakob. Er hún gerð eftir að hafa lesið ljóðabók. Margt er sutttum tnönnunt léð tninna aðrirfengu Mérfinnst ég haft sjaldan séð svona mikið af engu. Ef ég man rétt var það Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka sem orti svo um það fyrirbæri sem kallað er ást. Oft er meinabrautin beitt bœði sveini ogsprundi. Ástitt hreina, hún á ein helga leynifuttdi. Sælu ég naut við lestur Ijóðs logaði æsku blossinn. Þegar ég hlaut ífaðnti fljóðs fyrsta ástarkossinn. Stundum var á tnilli mjótt tttá það vera ókattnað. Það er oftast eftirsótt sem á að vera bannað. Tilfmttittgar Guð ntérgaf oggæfu eftir vottutn. Eg hefforðast ylintt af annarra manna konuttt. Að endingu þessi ágæta vísa sem mig minnir endilega að sé úr syrpu Hjörleifs. Víni sýp ég óspart á er mótlætið þvingar. Ég því sáratt saktta tná sóma tilfinningar. Langt er síðan undirritaður hefur rifjað upp ágætar vísur eftir Halla Hjálmars. Hér keniur ein slík. Farittn erHalli áfyllerí flaskatt er að tryll’ann. Allt er þetta úr afþví að ettgin kerling vill’ann. Sá snjalli hagyrðingur Gísli Stefánsson í Mikley lést rúmlega fimmtugur eftir erfið veikindi. Hef ég heyrt að eftirfarandi vísur hafi hann ort í þeim raunum. Ég er nú að halda heim haldiði að égségáður. Það leikur ekki á tutigum tveitn ég tók það betur áður. En ef skyldi af tttér brá og aftur vaxa kæti, mig þið uttgu ttteyjar þá megið eiga áfæti Gaman að láta Jón S.Bergntann hafa síðasta orðið í þessum þætti. Verkitt huldu síðar sjást sólar kulda sprottin. Hver sem duldi alla ást er í skuld við Drottinn. Verið þið þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi. S: 452-7154. íþróttafréttir lceland Express-deildin :: Hamar/Selfoss - Tindastóll 82-78 Tap í ísbænum Tindastóll gerði ekki góða ferð í ísbæinn Hveragerði sl.föstudagskvöld. Heima- menn unnu sinn fyrsta leik í vetur þegar þeir lögðu Tindastól með 82 stigum gegn 78. Að sögn Kristins þjálfara var sóknarleikur Tindastóls nokkuð góður í fyrri hálfleik og skoruðu þeir þá 53 stig. Varnarleikurinn var hins- vegar ekkert til hrópa húrra fyrir. Hann skánaði ekkert í síðari hálfleik og við bættist að sóknarleikurinn datt einnig niður og Stólarnir skoruðu aðeins 25 stig í hálfleiknum. Tindastóll var þó inni í leiknum íram á síðustu mínútu og hefði sigurinn getað dottið báðunt megin. Svo virtist sem menn hefðu ekki verið tilbúnir í leikinn, lítil liðsheild og eini ljósi punkturinn í leiknum hefði verið sóknarleikurinn í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 52-53 fyTÍr Tindastól og Stólarnir voru ennyfireftir3. leikhluta. Hamar/Selfoss hafði síðan betur í lokafjórðungnum og innbyrtu sigur með fjórunt stigum. Stigaskor Tindastóls: Svavar 19, Steve 17, Lamar 15, Zeko 10, Isak9, Gulli 6 og Bjarni 2. Njarðvikingurinn Friðrik Stefénsson gerir Steve Parillon erfitt fyrir i sókninni en Helgi Rafn Viggósson fylgist spenntur með. Mynd: PIB Stigahæstur Hamar/Selfoss var Friðrik Hreinsson með 21 stig. Skallagrímur í kvöld Stólarnir þurfa heldur að taka sig á fyrir næsta leik sem er útileikur gegn Vali Ingimundarsyni og lærisveinum í Skallagrím næstkomandi miðvikudag. Þeir hafa núna unnið þrjá leiki í röð og eru komnir í 6. sæti deildarinnar. Tindastóll er hinsvegar í 7. sæti með 2 sigra effir 5 leiki. Heimild: Skagafjordur.net/karfan Fyrirlestur á Kaffi Kroki__ Næring og matur Fríða Rún Þórðardóttir heldur erindi um næringu og hollustu í mataræði, sunnudagskvöldið 12. nóvember kl. 20 á Kaffi Króki. Vegna veðurs um síðustu helgi varð að fresta koniu Fríðu Rúnar sem ráðgerð hafði verið þá. Fyrirlesturinn er í boði Frjálsíþróttadeildar Tindastóls og er aðgangur ókeypis. Fríða Rún hefúr lokið meistaraprófi í næringar- fræði frá Georgiu-háskóla í Bandaríkjunum og starfar sent ráðgjafi á Landspít- ala-Háskólasjúkrahúsi, í Laugum og World Class. Hún er einnig unglinga- landsliðsþjálfari FRI. smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is Til sölu HefNissan King kap árgerð 1994 til niðurrifs. Þokkaleg vél. Upplýsingar gefur Örn ísima 4671054. Opel Astra '95 Einn til sölu erí beinu engin viðgerð bráð Eðalvagn með allt á hreinu útlitpínu snjáð. Næsta skoðun í des. 2007. Upplýsingar í sima 8981752. Hjónarúm til sölu Til sölu nýlegt hjónarúm. Á sama stað til sölu skrifborð. Upplýsingar i síma: 4535785/8976085 Hestar til sölu Tveir hestar, brúnskjóttur 7 vetra og rauðblesóttur 5 vetra. Upplýsingar i síma 4538106. Múrverk Múrari vill taka að sér vinnu í haustog vetur. Upplýsingar í síma 849 9431. Rafmagns hitakútur óskast Óska eftirgóðum rafmagns neysluvatnshitara. Simi 692 4040 Kæliskápur til sölu Til sölu lítill kæliskápur. Uppl.ís: 899-2192 Mjólkurtankur! Til sölu gamall Muller mjólkur- tankur 1500 litra i ágætu lagi. Fæstfyrirlitið. Upplýsingar í síma 453-8189 eða 866-3604

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.