Feykir - 14.02.2007, Side 2
2 Feykir 07/2007
Úr verinu
Sókn í löndun afla
frá smábátum á
Skagaströnd
Landaður afli smábáta á
Skagaströnd árið 2006
var um 6.000 tonn og
var síðasta ár enn eitt
metárið. Mikil aukning
hefur verið á löndunum í
höfninni á Skagaströnd á
undangengnum árum og
virðist ekkert lát vera þar á.
Megnið af aflanum eða
5.160 tonn var seldur í gegnunr
fiskmarkað örva ehf og er það
rnikil aukning frá því árinu
áður en þá seldi örvi 4.500
tonn.
Ekki er þó eingöngu um
báta heimamanna að ræða því
að frá apríl og fram í nóvember
er mikið unr að aðkomubátar
Iandi á Skagaströnd. Áætlað er
að um helmingur af aflanum sé
slægður á staðnum.
Leiðari
Fleira gottfólk á Norðurland. vestra
Sveitarfélagið Skagafjörður í samvinnu við jyrirtæki á
svæðinu setti auglýsingu í alla helstu ritmiðla landsins,
þar á meðal Feyki. Auglýsingu þar sem óskað er eftirfleira
fólki. Auglýsingu þar sem í boði em margvísleg störf fyrir
margvíslegtfólk. Auglýsingu sem í örfáum orðum bendir
á hversu gottsé að búa í Skagafirði. Auglýsingu sem er
bullandijákvæð og sýnir að hér er eitthvað að gerast, hér
séu ekki allir að gefast upp undanfólksflótta og neikvæðum
hagvexti.
Mikið, æi nú langaði mig að blóta en það er víst bannað
enþið getið í eyðumar. Mikið... væri nú gaman ef önnur
sveitarfélög á Norðurlandi Vestrafylgdu í kjölfarið.
Reyndar ætlar bæjarráð Blönduósbæjar að styrkja
íbúa á Blönduósi tilþess að sækja námskeið um stofnun
smáfyrirtækja. Frábærtjákvætt, meira svona.
Það er nejhilega staðreynd að á Norðurlandi vestra er
gott að búa. Héðan er stutt í allar áttir. Verð á húsnæði er
sanngjarnt, veðrið er alltafsvo gott og leitun er affallegri
stöðum til þess að búa á. Hér býr skemmtilegtfólk,fallegt
fólk, gott fólk, skrítið fólk, alla vega fólk.
Kannski er bara ráðið að hætta að bíða eftirþví að þeir
þarna fyrir sunnan, þá er ég að tala um hina svokölluðu
ráðamenn þjóðarinnar,fari að gera eitthvaðfyrir okkur.
Við getum þetta sjálf. Bara ef við leyfum bjartsýni og
jákvæðni að yfirtaka svartsýni og neikvæðni. Kannski er
bara ráðið að stofiia fríríkið Norðurland vestra og bjóða
auðmönnum landsinsjarðir á Gullströndinni. Leyfið
auðmönnunum að koma til okkar og banniðþeim það ekki
því hjá okkur er gott að vera.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 8982597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Utgelandi:
Nýprent ehl.
Borgarflöt 1 Sauöárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Arni Gunnarsson,
Askell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Olalur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
feykir@krokur.is
Örn Pórarinsson
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
295 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
350 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Simi 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Skipað i háskólaráð Hólaskóla - Háskólans á Hólum
Skíili áfram rektor
Landbúnaðarráðherra hefur skipað Skúla Skúlason rektor
við Háskólann á Hólum til næstu fimm ára. Þá hefur
ráðherra einnig skipað í háskólaráð í framhaldi af breytingu
á lögum um skólann sem samþykkt voru fyrir þinglok í
desember síðast liðnum.
Aðalmenn í ráðinu eru, auk
rektors, sem er formaður:
Herdís Á. Sæmundardóttir,
Sauðárkróki, skipuð af land-
búnaðarráðherra án tilnefn-
ingar, Hanna Katrín Friðriks-
son, Reykjavík, tilnefnd af
menntamálaráðherra,Sigurður
S. Snorrason, Reykjavík,
tilnefndur af Háskóla íslands,
Bjarni Egilsson, Skagafirði,
tilnefndur af sjávarútvegs-
ráðherra, Ólafur H. Einarsson,
Hvoli - tilnefndur af Félagi
tamningamanna, Svanhildur
Pálsdóttir, Varmahlíð, tilnefnd
af samgönguráðherra, Jónas
Guðmundsson, tilnefndur af
Stúdentafélagi Hólaskóla og
Bjarni Kristófer Kristjánsson,
tilnefndur af Starfsmannafélagi
Hólaskóla.
Landbúnaðarráðherra hefur
skipað Skúla Skúlason rektor
skólans til næstu fimm ára.
Lögin taka gildi 1. júlí 2007
og er það hlutverk rektors og
háskólaráðsins að undirbúa
framkvæmd þeirra.
Húnabjörgin kom Agga afa til bjargar
Vel heppnuð björgun
Aggi afi EA - 399 36 tonna eikarbátur frá Dalvík varð fyrir
því óhappi aðfaranótt laugardags að missa smurþrýsting á
gírnum með þeim afleiðingum að báturinn varð vélarvana
á Húnaflóa. Tveir menn voru í áhöfn Agga afa en voru þeir
aldrei í neinni hættu.
Aggi Afi var á siglingu frá
Dalvík að Rifi á Snæfellsnesi
þar sem stendur til að gera
bátinn út. Óhappið átti sér
stað um þrjúleytið aðfaranótt
laugardags en Húnabjörgin
var komin með bátinn í
tog um ldukkan níu um
morguninn. Áður höfuð
björgunarsveitarmenn farið
um borð í Agga afa og dælt úr
honum sjó sem kominn var
upp á gírinn. Þar sem verður
var einstaklega gott gengu
allar björgunaraðgerðir hratt
og örugglega og voru bátarnir
komnir á Skagaströnd um
miðjan dag á laugardag.
Skagaströnd
Sprengjumál
upplýst
Lögreglan á Blönduósi
hefur handtekið tvo menn
á tvítugsaldri sem hafa
viðurkennt að hafa breytt
og sprengt stóran flugeld
við heimili lögreglumanns
á Skagaströnd.
Hafa mennirnir ungu
viðurkennt að sprengjunni
hafi verið komið þarna
fyrir til þess að hefna sín
á lögreglunni sem ítrekað
hefur haft afskipti af þeirn
vegna margvíslegra brota.
Blönduósbær
Hvetja til nýsköpunar
Bæjarráð Blönduósbæjar
ákvað á fundi þann
7. febrúar sl. að
styrkja þátttakendur á
námskeiðinu Sóknarbraut
um 10.000 krónur.
Námskeiðið verður haldið á
vegum Impru nýsköpuna-
rmiðstöðvar og er um að ræða
hagnýtt námskeið um rekstur
fýrirtækja með áherslu á
stjórnun, markaðssetningu og
fjármál.
Með þessu vill bæjarráð
hvetja íbúa á Blönduósi að
sækja námskeiðið, koma
hugmyndum á framfæri og
nýta þau tækifæri sem eru til
staðar.
Eftirlegukindur
Fljotamenn heimta fe
I síðustu viku fóru nokkrir
menn úr Rjótum til
Héðinsfjarðar á snjósleðum
og tókst að handsama þar
fjórar kindur sem vitað var
um í firðinum.
Ein þeirra, lamb frá bænum
Stóra-Holti, var skilið eftir í
leiðangri milli jóla og nýárs
þegar liðlega tuttugu kindur
náðust. Hinar þrjár, t\'ær ær og
eitt lamb frá Brúnastöðum
fundust ekki í fyrri túrnum en
sáust skömmu síðar af sjó.
Kindunum var ekið niður að
sjó á snjósleðum og þaðan
selfluttar út í bát sem kom frá
Siglufirði til að sækja féð.
Skömmu áður höfðu tveir
bændur úr Fljótum verið að
svipast unr eftir fé í Ólafsfirði
og fundu þá tvær veturgamlar
ær frá bænum Þrasastöðum.
Þær höfðu af ummerkjum að
dæma haldið sig við hús á einni
eyðijörðinni í firðinum í
einhvern tíma. Allt þetta fé var
í góðum holdum enda hefur
veturinn sem af er verið
snjóléttur og nánast aldrei
komið stórviðri.
ÖÞ:
Leiklist
Æfingar
hafnar hjá
Leikfélagi
Hofsóss
Leikfélag Hofsóss æfir
nú leikritið Ég vildi að ég
væri gullfiskur eftir Árna
Ibsen. Verkið mun vera
farsi þar sem framhjáhald
og peningar koma mikið
við sögu.
Leikstjóri er Þröstur
Guðbjartsson og hlutverk
eru tíu. Kristján Jónsson
stjórnarmaður í leikfélaginu
segir að stefnt sé á að
frumsýna verkið 24. mars.
Hann segir að æft verði
öll kvöld og aðra hverja helgi
fram að sýningu. Leikarar
koma af svæðinu frá Hólum
í Hjaltadal og út í Fljót og
hafa flestir stigið á svið áður.
Leikfélagið á Hofsósi tók
sé frí á síðasta ári en 2005
setti félagið upp Góðverkin
kalla sem fékk mjög góðar
viðtökur. ÖÞ: