Feykir - 16.05.2007, Blaðsíða 10
lO Feykir 19/2007
Hlúð að slösuðum.
Vel heppnud flugslysaæfing á Alexandersflugvelli
Veisluborð upplýsinga
fyrir bjöigUnarfolk
Stór flugslysaæfing var haldin á Alexandersflugvelli á
dögunum. Á æfingunni var sett á svið flugslys þar sem 30
farþegar og 2 flugmenn slösuðust mismikið.
Æfingin gckk í heildina
mjög vel og var það mat manna
að samhæfing allra viðbragðs-
aðila á Skagaljarðarsvæðinu
hafi verið góð. Á slysstað komu
saman atvinnumenn, svo sem
læknar og sjúkraflutninga-
menn, björgunarsveitamenn,
slökkviliðsmenn, lögreglu-
menn og sjálfboðaliðar. Sam-
vinna þessara aðila gekk vel á
æfingunni og var áhugavert
fyrir gesti æfingarinnar að
fylgjast með því hverju æfð
handtök þeirra virtust vera.
hað er fólk sem dags daglega
hefur engin samskipti og hafði
jafnvel ekki unnið saman áður
starfaði sem einn einstaklingur,
fumlaust og skipulega.
Á æfingunni var unnið eftir
flugslysaáætlun fyrir Sauðár-
króksflugvöll sem unnið hefur
verið að undanfarna mánuði.
En þegar æfð eru viðbrögð við
slysi koma oft veikleikar í Ijós,
enda erþað eitt megin hlutverk
æfinga að leiða í ljós hugsanlega
veikleika. Nú verður farið í að
skoða hvað gekk vel og hvað
gekk miður og unnið í að
breyta og bæta til að viðbragðið
verði eins og best er á kosið ef
slysverður. Fjöldi sjálfboðaliða
kom að æfingunni og fóru
sjúklingarnir sumir hverjir á
kostum í hlutverkum sínurn,
ef svo má að orði komast.
-í heildina gekk æfingin og
undirbúningurinn allur mjög
vel. Æfing sem þessi nýtist
öllum þeim aðilum sem að
henni koma vel, bæði hvað
varðar öll samskipti og eins ef
til fjöldaslysa af einhverju tagi
skyldi koma. Vissulega voru
einhverjir hnökrar en þeir
voru fyrst og fremst í fjar-
skiptum á milli starfsstöðva
og þá aðallega í upphafi.
Ekkert þó sem ekki átti sér
eðlilegar skýringar. En þetta
var flott æfing og við-
bragðsaðilar í Skagafirði fengu
þá einkunn að vera framúr-
skarandi. Við lærðum mikið
þessa helgi enda var um
veisluhlaðborðafupplýsingum
að ræða alla helgina, segir
Óskar S. Óskarsson, slökkvi-
liðsstjóri.
Skrifborðsæfing, daginn fyrir hina raunverulegu æfingu.
[jarðviiinuverktaka^thugíð
Gagnaveita Skagafjarðar hyggst hefja framkvæmdir við ljósleiðara-
væðingu Sauðárkróks nú í sumar. Gagnaveitan verður með súpufund
fyrir áhugasama jarðvinnuverktaka á Kaffi Krók þriðjudaginn 22. maí
n.k. kl. 12.00, þar sem áætlanir um fyrirhugaðar framkvæmdir verða
kynntar.
Bænum verður skipt upp í fjögur verksvæði; Túnahverfi, Hlíðahverfi, syðri bær frá og
með Ránarstíg og útbær frá Ránarstíg og norður úr.
Gerð verður krafa um notkun á nýjustu tækni og aðferðum við lagningu ljósleiðararöra
og að frágangur verði eins og best verður á kosið.
Gagnaveita Skagafjarðar hvetur áhugasama jarðvinnuverktaka til að koma á fundinn og
fræðast um fyrirætlanir um ljósleiðaravæðingu fyrirtækisins á Sauðárkróki.
Nánari upplýsingar gefur
Karl Jónsson verkefnastjóri
í síma 455 6000, 898 2596
netfang karl@skagafjordur.is
GAGNAVEITA
SKAGAFJARÐAR
J
Utboð
Skagafjarðarveitur ehf. óskar eftir tilboðum
í byggingu eftirfarandi mannvirkja:
1. Vatnstankur fyrir Hóla í Hjaltadal
Tankurinn verður ofan byggðarinnar að Hólum í Hjaltadal. Tankurinn er steinsteyptur
með áföstu lokahúsi, þvermál tanks er 9 m.
Helstu magntölur:
Jarðvinna 1900 m3
Steypumót 405 m2
Bendistál 5250 kg
Steinsteypa 72 m3
Byggingu tanksins skal að fullu lokið 1. október 2007.
2. Vatnstankur fyrir Steinsstaðahverfi
Tankurinn verður byggður í landi Skíðastaða í Neðribyggð, um 750 m frá vegi.
Tankurinn er steinsteyptur með áföstu lokahúsi, þvermál tanks er 9 m.
Helstu magntölur:
Jarðvinna 2400 m3
Steypumót 405 m2
Bendistál 5250 kg
Steinsteypa 72 m3
Byggingu tanksins skal að fullu lokið 1. september 2008.
3. Borholu- og dæluhús í Hrolleifsdal
Við heitavatnsborholu í landi Bræðraár í Hrolleifsdal skal byggja borholuhús og
dæluhús ásamt steinsteyptri undirstöðu fyrir gasskilju. Húsin eru úr timburgrind
á steyptum sökklum, útveggir klæddir með sléttri Steni-klæðningu og þak með
bárustáli.
Helstu stærðir:
Borholuhús 15,2 m2
Dæluhús 31,7 m2
Undirstaða gasskilju 10,6 m2
Byggingu húsanna skal að fullu lokið 15. september 2007.
Heimilt er að bjóða í allt verkið og í einstaka hluta þess.
Útboðsgögn verða seld á kr. 5000 hjá Stoð ehf. verkfræðistofu,
Aðalgötu 21, Sauðárkróki frá og með mánudeginum 21. maí 2007.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Skagafjarðarveitna ehf.
Borgarteigi 15 Sauðárkróki
kl. 11.00 þriðjudaginn 5. júní 2007.
Veitustjóri
<^£>kv
SKAGAFJARÐARVEITUR ehf
BORGARTEIG 15 :: SAUDARKRÓKI