Feykir - 23.08.2007, Page 6
6 FeykJr 31/2007
íþróttafréttir
Hvöt og Tindastóll í úrslitakeppnina
Strákarnir okkar
á toppnum
Nú fer óðum að styttast í
úrslitakeppni í 3. deild karla.
Bæði Hvöt og Tindastóll
komust í úrslitin, en Hvöt
hreppti efsta sæti C-riðils
og Tindastóll hafnaði í því
öðru.
Tindastóll þuríti á sigri að
halda gegn Skallagrími í síðasta
leik til þess að halda fyrsta sæti
riðilsins. En allt korn fyrir ekki
og Tindastóll tapaði sínum
þriðja leik í röð. Leikurinn
endaði 3-2, Skallagrínt í vil, þó
svo að Tindastóli hafi verið 2-0
yfir í hálfleik. Það voru þeir
Pálmi Þór og Stefán Arnar sem
skoruðu mörk Tindastóls.
Gæfan hefur ekki verið nteð
strákunum í Tindastóli í
síðustu leikjum og eru
áhangendur liðsins hvattir til
þess að standa þétt við bakið á
þeim og hjálpa þeim að klára
dæmið og komast í aðra deild
að ári. Eeykir segir áfram
Tindastóll.
Hvöt og Tindastúll verða í eldlinunni i úrslitum 3. deitdar fram í september. Mynd: VK
Hvöt sló Stólunum við á endasprettinum
Hvöt sigraði í C-riðli
Hvöt sigraði Hvíta Riddarann
örugglega, 3-0, og voru það
þeir Sigurður Rúnar, Milan
og Paul sem skoruðu mörk
Hvatar, en sigur þessi
tryggði Hvatarmönnum
efsta sæti riðilsins.
Hvatarliðið hefur verið á
góðri siglingu síðustu vikur og
hafa menn ekki síst þakkað
þann góða árangur 12.
liðsmanrii Hvatar en
stuðningsmenn liðsins hafa
verið betri en enginn í sumar.
Hafa þeir fylgt liðinu eftir og
samkvæmt því sem fram
kentur á Húnahorninu erum
menn að taka sig saman og
ætla að skella sér austur til
Seyðisfjarðar á föstudaginn
kemur og hvetja Hvatarmenn
til dáða í leik þeirra á
laugardaginn gegn heima-
mönnum. Til stendur að
fjölmenna á leikinn og hvetja
Hvatarmenn til sigurs.
Frændurnir Bjarki og Vilhelm
hafa náð góðum samningi um
hótelgistingu, kvöldmat á
föstudeginum og morgunmat
á laugardegi n u m á Egilsstöðu m
og frekari upplýsingar gefa
þeir í síma 867-8603 og 865-
3967.
Frábært framtak og Feykir
segir bara áfram Hvöt.
Körfuboltavertíðin nálgast óðfluga
Kani á leiðinni
Á Karfan.is er sagt frá því
að Tindastólsmenn hafi
gengið frá samningi við
Bandaríkjamanninn Donald
Brown. Brown þessi er 23
ára gamall og nýútskrifaður
frá Bucknell háskólanum
þar sem hann lék í fiögur
ár.
Brown er 198 cm hár og lék
í stöðu framherja með skóla
sínum þar sem hann skoraði
12 stig að meðaltali í leik og
tók6,8 fráköst. Hann ersagður
góður varnarmáður og
grimmur í sóknarffáköstum.
Tindastólsmenn eru enn að
leita að fleiri leikmönnum og
stefha að því að fá 2-3 evrópska
leikmenn til viðbótar í
leikmannahópinn.
Nýtt og skemmtilegt mót
Norðurlandsleikar unglinga í
frjálsum íþróttum fóru fram á
Sauðárkróksvelli um helgina.
Keppendur voru rúmlega
hundrað talsins frá níu
félögum, en flestir komu þeir
frá UMSS, eða 56.
Eins og nafriið gefur til
kynna, var mót þetta sérstaklega
ætlað unglingum af Norður-
landi, en allir voru þó velkomnir
og voru keppendur meðal
annars frá Breiðabliki og ÍR.
Keppt var í öllunt aldursflokk-
um og var yngsti keppandi
mótsins einungis 5 ára, en sá
elsti 19ára.
Farið var með alla keppendur
í heimsókn á landbúnaðar-
sýninguna í rúmlega klukkutíma
pásu sent myndaðist á mótinu
og var svo dagurinn kláraður á
sundferð, en krökkunum þótti
það skemmtilegt að brjóta þessi
hefðbundnu mót aðeins upp.
„Við vonuðumst reyndar
eftir meiri þátttöku, en vorum
alveg þokkalega ánægð enda
gekk allt mjög vel. Þetta er nýtt
mót og á vonandi eftir að
stækka”, sagði Gunnar Sigurðs-
son, aðalskipuleggjandi rnóts-
ins. Hann vildi nota tækifærið
og þakka þeint sjálfboðaliðum
er störfuðu við mótið.
Sjá meira um mótið á www.
tindastoll.is
Myndir: ÞB
Frjálsar íþróttir Knattspyrna
Ragnar Frosti og Gauti Allirá
kepptu í Svíþjóð völiinn!
Skagflrðingarnir og frjáls-
íþróttagarparnir Ragnar
Frosti Frostason og Gauti
Ásbjörnsson stóðu í
eldlínunni um helgina þegar
þeir tókum þátt í frjáls-
íþróttamótum í Svíþjóð.
Ragnar Frosti keppti á móti í
Falköping í Svíþjóð laugar-
daginn 18. ágúst. Hann sigraði
þar í 400m hlaupi á 49,15sek.
Þetta er næstbesti tími Ragnars,
en hann hljóp á 49,04sek í
Nassjö 4. ágúst sl„ og stefnir á
tíma undir 49 sek áður en
keppnistímabilinu lýkur.
Sunnudaginn 19. ágúst
kepptu þeir Gauti og Ragnar
Frosti á móti í Lerum. Gauti
stökk 4,26m í stangarstökki, en
Ragnar hljóp 150m á 16,86sek
og 300m á 35,29sek. Þess ber að
geta að ekki er oft keppt á
þessum vegalengdum.
Um helgina hefst
úrslitakeppni 3. deildar í
knattspyrnu þar sem átta
lið keppast um að komast
upp í 2. deild, en það
verða fimm lið sem
komast upp.
Hvöt á leik gegn Huginn
laugardaginn 25. ágúst á
Seyðisfjarðarvelli og eru
Blönduósingar hvattir til þess
að fjölmenna á leikinn og
styðjasína menn í mikilvægum
leik. Tindastóll á einnig leik á
laugardag á heimavelli gegn
Víði frá Garði, en þar eru
bæjarbúar að sjálfsögðu einnig
hvattir til þess að mæta á
völlinn, enda ekki langt að
fara. Báðir leikirnir hefjast kl.
14:00.
Á þriðjudaginn halda
Tindastólsmenn síðan í
Garðinn og Hvatarmenn taka
á móti Huginn Seyðisfirði.
Allir á völlinn og styðjum við
bakið á strákunum okkar.
Ragnar Frosti (t.v.) kemur ímark á Meistaramóti íslands á Króknum. Mynd: DOÁ