Feykir


Feykir - 10.01.2008, Síða 1

Feykir - 10.01.2008, Síða 1
Árið gert upp Þrátt fyrir að Norðurland vestra hafi ekki verið fyrirferðarmikið í fréttaannálum ársins þegar kemur að hinum stóru fréttamiðlum var hér heilmikið að gerast á árinu og Feykir meó puttana á púisinum. Samningar voru undirritaðir og viljayfirlýsingar gefnar. Ráðherrar voru í jólasveinastuði framan að ári, eða fram að kosningum, og íþróttafólkið okkar náðu sætum sigrum. Feykir tók saman helstu fréttamola ársins 2007 sem þrátt fyrir allt svartsýnisraus virðist hafa verið bara nokkuð gott ár. Fréttaannáll Feykis á síðum 4-9 Forsætisráðherra skipar starfshóp sem fínna á ieiðir til styrktar byggð á Norðurlandi vestra Miklar væntingar heimamanna Að beiðni fulltrúa SSNV hefur forsætisráðherra ákveðió með samþykki ríkisstjórnarinnar að skipa nefnd sem ætlað er að fjalla um leiðir til að styrkja atvinnulíf og samfélag á Norðurlandi vestra. Er nefhdinni meðal annars ædað að gera tillögur um mögulega styrkingu menntunar og rannsókna, uppbyggingu iðnaðar og þjónustu og flutning starfa írá höfuðborgarsvæðinu til Norðurlands vestra. Nefndina skipa Halldór Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti, Guðrún Þorleifsdóttir, lögífæðingur í iðnaðarráðuneyti, Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneyti, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, forseti sveitarstjómar Skagaíjarðar og Adolf Berndsen formaður SSNV. Er nefndinni ætlað að skila forsætisráðherra tillögum eigi síðar en í lok mars nk. „Það eru góð tíðindi að tekist hefur að koma á skipan þessarar nefirdar um málefhi Norðurlands vestra. Væntingar mínar eru að með vinnu og tillögugerð nefirdarinnar náum við að styrkja stöðu svæðisins og er ekki vanþörf þar á. Til að góður árangur náist þarf öfluga vinnu heimamanna og góðan skilning og stuðning stjórnvalda. Á Norðurlandi vestra hefur þvi miður verið veik staða sé horft til samanburðar við mörg önnur svæði á landinu. Skipun þessarar nefndar er viðurkenning á þeirri stöðu, tillögur heimamanna liggja margar fyrir og aðrar munu örugglega líta dagsins ljós meðan að á vinnu nefhdarinnar stendur. Ég hef góðar væntingar til þessa verkefnis og mun starfa samkvæmt því,” segir Adolf Bemdsen. Vaxtasamningur Norðurlands vestra_ Undirritað á mánudag Skrifa á undir Vaxtasamning Norðurlands vestra í Verinu á Sauðárkróki mánudaginn 14. janúar klukkan 10:00. Fyrir hönd ríkisins verður það iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, sem ritar undir en formaður sveitarfélaga á Norður- landi vestra, Adolf H Berndsen, skrifarundirfyrirhöndheimamanna. -í samningunum felast væntanleg tækifæri fyrir Norðurland vestra þar sem lögð verður áhersla á menntun, rannsóknir, menningu og ferðaþjónustu, segir Jón Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri SSNV. í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar var gert ráð fyrir 90 milljónum í vaxtasamning fyrir svæðið. Fréttaskýring um vaxtasamninginn verður í næsta Feyki. Skagaströnd Vel heppnuð flugeldasýning Fresta þurfi brennu og flugelda- sýningu Björgunarsveitarinnar Strandar og Ungmennafélagsins Fram sem halda átti á Skaga- strönd, til laugadagsins 5. janúar. Var sýningin þá haldin í blíðskapa- veðri og vom aðstæður það góðar að sýningin sást ffá bænum Ketu á Skaga. Skagaströnd sést ekki frá Ketu og því þótti þetta saga til næsta bæjar en heimamenn segja að líklega hafi skotstöðin verið á réttum stað og sýningin sást því víðar en efla. D0LL Turntölva TENGILL TOLVUDEILD BORGARMÝRI 27 SÍMI 455 7900 —(CTehflilt ekj3— Dell XPS 420 turntölva Tilboðsverð kr. 169.990,- (136.538,-án vsk) VIÐ BÓNUM 0G RÆSTUM! Daglegar ræstingar og reglubundið viðhald á bóni í fyrirtækjum og stofnunum Bílaviðgerðir hjólbardaviðgerðir Hringdu núna eða sendu tölvupóst Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is ^f/'Jfbifreiöaþjónusta

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.