Feykir


Feykir - 10.01.2008, Side 2

Feykir - 10.01.2008, Side 2
2 Feylcir 01/2008 Karlakórinn Heimir Tilnefndur til Eyrarrósarinnar Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar til eflingar ferðaþjónustu_ Auglýst er eftir umsóknum Sagt er frá því á heimasíóu Sveitarfélagsins Skagafjarð- ar að Karlakórinn Heimir hafi verið tilnefndur til Eyrarrós- arinnar. Eyrarrósin er vióur- kenning og verðlaun sem veitt eru fyrir menningarstarf- semi á landsbyggðinni sem þykir með einhverjum hætti skara fram úr. Verðlaunin eru samstarfs- verkefni Listahátíðar í Reykja- vík, Byggðastofnunar og Flug- félags íslands. Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff, forsetafrú. Aðrir sem tilnefningu hlutu eru Safnasafnið í Eyjafirði og tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður á ísafirði. Kórinn telur sér mikinn heiður sýndan með þessari tilnefningu. Eyrarrósin verður afhent í dag fimmtudag 10. janúar en Karlakórinn mun syngja fáein lög við athöfnina. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 160 milljónum króna til eflingar ferðaþjón- ustu á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar á veiði- heimildum. Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar í ferða- þjónustu á ofangreindum svæðum. Umsækjendur geta verið sveitarfélög, einstaklingar Fram kemur á vefnum www. landsmot.is að Landsmót hestamanna 2010 verði á Vindheimamelum í Skagafirói ef samningar nást. Fjórar umsóknir bárust um að halda mótið frá umsjónarmönnumeftirfarandi svæða: Vindheimamelum í og fyrirtæki og er hámarks- styrkur til hvers verkefnis 8 milljónir kr. Verkefnin verði unnin á árunum 2008-2009 og verður styrkurinn greiddur í tvennu lagi, helmingur hvort ár. Seinni greiðslan er háð árangursmælingu í samræmi við ákvæði í umsókn, en hver umsækjandi gerir tillögu að árangursmælikvarða fyrir viðkomandi verkefni. Skagafirði, Melgerðismelum í Eyjafirði, Gaddstaðaflötum við Hellu og Víðidal í Reykjavík. Sú ákvörðun var tekin á stjórnarfundi LH að ganga tii samninga við Skagfirðinga og skal þeim lokið eigi síðar en 1. júní 2008. Húnaþing vestra Sveitar- skrifstofa á nýjum stað í tilefni af opnun afgreiðslu sveitarstjórn- arskrifstofu Húnaþings vestra að Hvammstanga- braut 5 á Hvammstanga verður Ráðhúsið opið almenningi til sýnis föstu- daginn 11. janúar nk. frá kl. 15:00-18:00. Þá boðar sveitarstjórn Húnaþings vestra til opins íbúafiindar um atvinnumál í sveitarfélaginu í féiags- heimilinu Ásbyrgi 15. janúar kl. 20:30. Er tilefni fiindarins m.a. ákvörðun forsætisráðherra um skipun nefndar sem ætiað er að fjalla um leiðir til að sþTkja atvinnulíf og samfélag á Norðurlandi vestra. Björgunarsveitirnar Rútaföstá Þverárfjalli Björgunarsveitin Blanda á Blönduósi var kölluð til aðstoðar við rútu sem var föst í snjó til móts við bæinn Njálsstaði á Þverárfjallsvegi sfðast liðið sunnudagskvöld. Fór björgunarsveitin á Ford F 250 og dró rútuna sem var 40 manna, að Skaga- strandarvegi. Skagaströnd BioPol stækkar viðsig BioPol ehf. Sjávarlíf- tæknisetur á Skaga- strönd, óskar eftir að ráða líffræðing / fiski- fræðing / líftæknifræð- ing eða starfsmann með sambærilega menntun til starfa. BioPol var stofiiað á síðasta ári og hefur síðan þá fengið st)Tki og skrifað undir samstarfssamninga við skoskan háskóla, Háskólann á Akureyri og Veiði- málastofnun svo eitthvað sé nefnt. Leiðari Hugsi í árslok Ég horfi alltafá fréttaannála sjónvarsstöðvanna um áramót. Hafancli atvinnu aðþví að skrifa fréttir og fróðleik beið ég óvenju spenntþetta árið. Vitandi að hér á heimavelli höfum við átt viðburðaríkt ár. Það voru því ákveðin vonbrigði að eina fréttin sem kom frá okkar svæði eða Norðurlandi vestra varfrétt um náttúruhamfarir á Sauðárkróki. Ég var því örlítið hugsi ogfór að velta þvíJyrir mér hvort árið hefði kannski bara ekki verið neitt viðburðaríkt. Enn hugsifór ég inn í nýtt vinnuár og hófst handa við að skrifa fréttaannál sem ég hugðist setja á eina opnu í blaðinu. Eftir nokkurra daga vinnu voru opnurnar orðnar þrjár og égfékk sönnun á þeirri tilfinningu minni að hér hafi mikið gerst síðasta árið. Sumt miður en annað, ogjá ég held að mér sé óhætt aðfullyrða aðflest allt annað, var bara nokkuð gott. Hér eru mörg tækifæri um allt svæðið og allir að gera sitt besta tilþess að vinna úrþessum tækifærum. Sjálfhefég reynt eftirfremsta megni að koma fréttum af svæðinu á framfæri annars staðar en séu þær ekkiþeim mun meira krassandi eða neikvæðarþykja þær ekkert sérlega spennandi og hljóta ekki náðJyrir augum liinna stóru miðla. Mitt áramótaheit var því að gera enn betur á nýju ári, spýta í lófana og reyna aðflytja ykkur heimamönnum fréttirnarjafnóðum og þær gerast í sambland við létt dægurviðtöl um málefni líðandi stundar. Þaðjú einu sinniþannig að enginn er betur tilþessfallinn að jjalla um málefni okkar en við sjálf. Efnistökin eru óþrjótandi og ég bíð spennt eftirþví að komast lengra niður listann afhugsanlegum viðtalsefnum og efnistökum enda listinn bæði langur og skemmtilegur. Nú og síðan treysti ég að sjálfsögðu á ykkur lesendur góðir að koma með ykkar innlegg í blað okkar íbúa á Norðurlandi vestra. Blaðið í dag er tileinkað árinu 2007, við litum um öxl og gerum upp. Guðný Jóhannesdóttir feykir@nyprent.is - sími 898 2597 Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum Útge/andi: Nýpœntehf. Borgarflöt í Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4,550 Sauðárkrókur Bladstjórn: Árni Gunnarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Herdís Sæmundardóttir, ÓlafurSigmarsson og Páll Dagbjartsson. Ritstjóri& ábyrgðarmaður: Guðný Jóhannesdóttir feykir@nyprent.is Simi 455 7/76 Blaðamenn: ÓliArnar Brynjarsson oli@nyprent.is, Örn Þórarinsson. Prófarkalestur: Karl Jónsson Askriftarverð: 275 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluvcrð: 325 krónurmeð vsk. Áskrift og dreifing Nýprent ehf. Sími 455 7171 Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Blönduós Andlát Hilmar Kristjánsson fæddist í Borgarnesi 16. maí 1948. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 1. janúar 2008. Hilmar giftist 27. 4. 1968 eftirlifandi eiginkonu sinni, Valdísi Finnbogadóttur en þau eiga þrjú uppkomin börn. Hilmar tók sveinspróf í trésmíði 1968ogmeistaraprófi lauk hann 1973. Hilmar tók við sem framkvæmdastjóri Stíganda um áramótin 1975- 1976 af föður sínum, Kristjáni Gunnarssyni, og gegndi því starfi til æviloka. Hilmar kom að rekstri fjölmargra fyrirtækja. Hann var einn af stofnefndum og sat í stjórnum Bílaleigu Blönduóss hf., kranafyrir- tækisins Átaks hf. og Steypu- stöðvar Blönduóss hf. Árið 1990 stofnaði hann Glað- heima hf. sem setti upp fjölda sumarhúsa og rak í Brautarhvammi við bakka Blöndu. Hilmar sat einnig í stjórn fjölda fyrirtækja til lengri og skemmri tíma; má þar nefna Kaupfélag Húnvetninga, Nökkva hf„ Særúnu hf„ Sólfell ehf. og Miðholt ehf. Hilmar var formaður stjórnar Vinnu- eftirlits ríkisins árin 1997 til 2003. Hann var varamaður í hreppsnefnd Blönduóss frá 1970 til 1974 og aðalmaður í hreppsnefnd frá 1974. Síðan oddviti í hreppsnefnd Blönduóss frá 1978 til 1988 og fyrsti forseti Bæjarstjórnar Blönduóssfrá 1988 til 1990. Á þessum árum sat Hilmar í ótal nefndum og ráðum á vegurn Blönduósbæjar. Hann var í stjórn Fjórðungssam- bands Norðurlands til margra ára. Útför Hilmars fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 12. janúar og hefst athöfhin kl. 14. Landsmót Hestamanna 2010 Líklega í Skagafitði

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.