Feykir - 10.01.2008, Side 8
8 Feykír 01/2008
í svokallaðri sumarslátrun
íyrirtækisins.
* 652 skrifuðu nöfn sín
í undirskriftasöfnun sem
Smábátafélagið Skalli stóð fyrir
til styrktar kröfu félagsins um
takmarkanir á dragnótaveiðum
í Skagafirði. í greinagerð sem
fylgdi kröfunni kom fram að
dragnótaveiðar stofni lífnki
Skagafjarðar í stórhættu.
Sjávarútvegsráðherra tók á
móti undirskriftunum og
sagði hann við það tækifæri að
hann hefði brugðist við erindi
Skalla á sínum tíma og lokað
Málmeyjarsundinu.
* Skýrsla Byggðastofnunar
og Hagfræðideildar Háskóla
fslands um efnahagsmál og
hagvöxt kom út í lok ágúst. Það
er óhætt að segja að skýrslan hafi
fýrir okkur íbúa á Norðurlandi
vestra verið kolsvört. Þrátt fýrir
mikinn uppgang síðustu árin
hér á landi var hagvöxtur hér
á svæðinu neikvæður um 9%
á meðan hann var jákvæður
um 29% á Vesturlandi og á
Norðurlandi eystra var hann
jákvæður um 12%.
* Nemeridum við Hólaskóla,
Háskólann á Hólum fjölgaði
töluvert á milli ára en í vetur
leggja um það bil 170 nemendur
stund á nám við skólann. Hefúr
mikil fjölgun orðið í fiskeldis-
og fiskalífírœðideildinni og
eins var hrossaræktar- og
reiðmennskudeildin fúll en sú
deild skólans er geysivinsæl.
* Bjarni Egilsson, oddviti
sjálfstæðismanna í sveitarstjórn
Skagafjarðar, hætti í
stjórnmálum á haustdögum er
hann flutti búferlaflutningum
austur á Reyðarfjörð og starfar
í dag í álverinu á Reyðarfirði.
* Hvatarmenn á Blönduósi
fóru létt með að tryggja sér
sæti í annarri deild íslensku
knattspyrnunnar að ári en liðið
náði frábærum árangri þetta
árið og vilja heimamenn meina
að sá árangur sé ekki síst 12.
leikmanninum að þakka, eða
áhorfendum. Tindastóll þurfti
að fara fjallabaksleiðina og náði
að kría út aukaleik og sleppa
þannig upp um deild. Munu
því tvö lið af svæðinu keppa í
annarri deildinni næsta sumar.
Sannarlega glæsilegur árangur
þetta.
* Linda Björk Valbjömsdóttir
varð íslandsmeistari í 80m
grindarhlaupi í á Meistaramóti
íslands í frjálsum íþróttum 15
- 22 ára. Þá sigraði Linda einnig
í 300 metra hlaupi.
* Alexandra Chernyshova
söngkona hlaut íslenskan
ríkisborgararétt en það var
tilkynnt á sýningu óperu
Skagafjarðar á La Traviata á
Akureyri.
* Hreppsnefúd Skagastrandar
ákvað á fúndi sínum að gefa
út ffístundakort fyrir alla
einstaklinga á gmnnskólaaldri í
sveitafélaginu.
* Björgunarsveitin á Hofsós
fékk nýjan sérútbúinn Nissan
Patrol sem væntanlega kemur
sér vel þegar kemur að útköllum,
sem hafa verið mörg á árinu.
* I máli Dr. Grétars Þórs
Eyþórssonar á ársþingi SSNV
kom ffam að 91,6% landsmanna
telur það eitt af skilyrðum fyrir
búsetu sinni að búa í námunda
við lágvöruverslun.
* Dagatal sem inniheldur
kynningu á stóðréttum og
hestatengdri ferðaþjónustu á
Norðurlandi vestra árið 2008
var dreiff á Heimsmeistaramóti
íslenska hestsins en dagatalið
vakti mikla lukku meðal
sýningagesta.
* Byggðarráð Húnaþings
vestra mótmælti harðlega
hugmyndum sem ffam komu
í drögum að reglugerð um
heilbrigðisumdæmi um að
Hvammstangalæknishérað
verði skipt á milli tveggja heil-
brigðisumdæma og Húnaþing
vestra fýlgi heilbrigðisumdæmi
Norðurlands vestra.
September
í Húnþingi vestra var
skipaður starfshópur til
þess að fara yfir tillögur að
viðbyggingu við húsnæði
Grunnskóla Húnaþings vestra á
Hvammstanga.
* Tekið var fýrir erindi ffá
Flugleiðahótelunum þar sem
þau fóru fram á við Húnaþing
vestra að fá ffamlengingu á
leigusamningi um húsnæði
Laugarbakkaskóla í eitt ár. Var
sveitarstjóra falið að ganga til
samninga við Flugleiðahótel
ehf.
* Sláturtíðin hófst í KS með
opnun á gjörbreyttri sláturrétt.
Stækkaði réttin nokkuð við
þessar breytingar og rúmar nú
um 3500 fjár.
* Verktaki sem sá um
ff amkvæmdirvið Þverárfjallsveg
stóð heldur betur við sitt á árinu
og í var umferð hleypt yfir nýja
brú og hringtorg á haustdögum
þrátt fýrir að áætluð verklok séu
ekki fýrr en eftir ár.
* Sveinn M Sveinsson,
kvikmyndaforstjóri og Atli
Arason, hönnuður, fengu
gömlu kirkjuna á Blönduósi
að gjöf en skilyrði fýrir gjöfinni
var að rekin verði sú starfsemi
í húsinu að hæfi fýrrverandi
guðshúsi. Ráðgert er að koma
þar upp alhliða aðstöðu fýrir
listamenn.
* SSNV gafút skýrslu um áhrif
niðurskurðar aflaheimilda í
þroski á Norðurlandi vestra þar
sem fram kom að raunskerðing
veiðiheimilda í þorski á svæðinu
er um 32,8% Einnig kom ffam
að neikvæð margfeldisáhrif á
svæðinu nemi um 1,5 milljarði
króna miðað við niðurskurð
veiðiheimilda í þorski og þá sé
ekki tekið tillit til minnkandi
meðafla.
* BioPol á Skagaströnd og
Háskólinn á Akure)TÍ skrifúðu
undir samstarfssamning um
rannsóknir á líffíki Húnaflóa á
haustdögum.
* Framkvæmdahópur um
byggingu sundlaugar á Blöndu-
ósi skilaði af sér og skildu
rúmar 40 milljónir á milli
hugmyndanna tveggja sem
unnið var með. Tillaga A gerði
ráð fýrir 16,67 x 10,5 metra
innilaug með tilheyrandi búnaði
og mannvirkjum og hljóðaði
kostnaðaráætlun hennar upp
á 323,5 milljónir. Tillaga B
gerði ráð fýrir 25 x 8 m laug
með tilheyrandi tengibyggingu,
sundlaugargarði og búnaði
með kostnaðaráætlun upp á
281,5 milljónir. Bæjarstjórn
ákvað síðan að taka kost B eða
25 metra útilaug.
* Þreifingar um byggingu
Koltrefjaverksmiðju stóðu yfir
á árinu og í ágúst var samþykkt
á fúndi stjórnar SSNV að
staðsetning hugsanlegrar
Koltrefjaverksmiðju yrði í
Skagafirði en verði verksmiðjan
að veruleika má gera ráð fýrir
að þar komi í það minnsta 50
störf.
» Góð aðsókn var í Selasetrið
á Hvannnstanga í sumar en um
4200 gestir sóttu safnið heim.
* Lið Skagfirðinga sigraði
í 2. deild Bikarkeppninnar í
ffjálsum íþróttum sem ffam fór
á Sauðárkróki í september.
* Torgið við félagsheimilið og
Samkaup á Blönduósi fékk nafii
á haustdögum en Bæjartorg
heitir torgið effir að haldin var
samkeppni um nafn á því.
* Fyrirtækið Tengill ehf á
Sauðárkróki hélt í haust upp á
það að hafa verið rekið í 20 ár
með sömu kennitölu.
* Þegar tilkynnt var um
boðaðar mótvægisaðgerðir
ríkisstjórnar íslands gegn
áhrifum kvótaskerðingar kom í
ljós að einungis 1,8% af heildar-
fjárhæðinni skyldi koma á
Norðurland vestra. Áhugaleysi
stjórnvalda á svæðinu var
meðal þeirra lýsingaorða sem
áhrifamenn heima notuðu,
* Hreppsnefhd Húnavatns-
hrepps lýsti á fundi sínum yfir
þungum áhyggjum af ástandi og
þjónustuleysi vegagerðarinnar
við vegi í Húnavatnshreppi.
Kom ffam í máli hreppsnefndar
að allri vegir utan þjóðvegar 1
séu sundurgrafnir og holóttir
þannig að stórhættulegt sé að
aka um þá.
* Bæjarstjórinn á Blönduósi
sendi fjármálaráðherra bréf
þar sem óskað var eftir því að
embætti Skattstjóra Norður-
lands vestra yrði flutt ffá
Siglufirði og á Blönduós. Var
erindið sent í ljósi þess að starf
skattstjóra var auglýst laust
til umsóknar og einnig að
Siglufjörður tilheyTÍr í dag öðru
kjördæmi.
* Menningarráð Norðurlands
vestra opnaði skrifstofú í
Bjarnaborg á Skagaströnd
að viðstöddu fjölmenni.
Menningarráð úthlutaði síðan
á haustdögum styrkum til 41.
verkefriis eða ails að upphæð
17.650 þúsundum.
* Hönnun á sundlaugarbygg-
ingu Hofsósbúa var kynnt
íbúum um miðjan september
og þykir hin glæsiiegasta. Stefnt
er að því að taka sundlaugina í
notkun sumarið 2008.
Október
* Bæjarstjórn Blönduósbæjar
tók ák\'örðun um að segja upp
samningi um Héraðsnefiid
A- Hún. og óska effir því að
uppgjör fari ffam í samræmi
við gildandi samþykktir og
sveitarstjórnarlög. Sögðu
menn að það væri greinilega
viðtækur vilji til meira samstarfs
innan sveitarstjórnanna og því
væri það á skjön við nútíma
stjómsýsluhætti að auka alltaf
vægi héraðsnefndar í stað
þess að stíga skrefið til fulls
og sameinast. Sögðu menn
að þessi gjörningur væri leið
Blönduósbúa til þess að höggva
á hnútinn.
* I kjölfar ffétta Feykis um
kurr í foreldrum sökum ástands
þess sem skapaðist \'ið Árskóla
við Freyjugötu á morgnana
samþykkti skipulagsnefitd
að skoða að setja þrengingar
við Freyjugötu, Hólaveg og
Ránarstíg til þess að ná niður
umferðahraða.
* Laufskálaréttarhelgin var
fjörug en róleg að sögn lögregl-
unnar á Sauðárkróki.
* Jóna Fanney Friðriksdóttir
sagði öllum að óvörum
starfi sínu sem bæjarstjóri
á Blönduósi lausu en Jóna
Fanney hafði þá ráðið sig sem
ffamkvæmdastjóra Landsmóts
hestamanna sem haldið verður
á Hellu 2008.
* Kjörafúrðastöð KS setti met
en þar slátruðu menn 3149
dilkum á dag.
* Árleg Sviðamessa húsffeyj-
anna á Vatnsnesi var haldin 12.
og 13. október og var vel sótt að
venju.
* Ámundakinn ehf færði
út kvíarnar í október er
félagið keypti 49,16% hlut í
trésmiðjunni Stíganda.
* Krakkamir á Skagaströnd
gengu á fund sveitarstjórnar
með undirskriftalista sem þau
höfðu safúað þar sem þau
fóru ffam á að byggð yrði flott
sundlaug í bænum. Samþykkti
sveitarstjórn að óska eftir fúndi
með verkfræðilegum ráðgjafa
um möguleika á byggingu
sundlaugar.
* Menningarhús í Miðgarði
var sett á fjáraukalög og var gert
ráð fýrir að 30 milljónir kæmu
til greiðslu.
* Arnar Þór Sævarsson
lögffæðingur var ráðinn
bæjarstjóri á Blönduósi.
* Mikil snjókoma setti strik
í reikninginn hjá bændum
í Skagafirði og mátti ffesta
göngum og fara þess í stað að
bjarga búfénaði.
* Skagfirska Matarkistan vakti
mikla athygli á sýningunni
Matur 2007.
* Gagnaveita Skagafjarðar
og Tengill skrifúðu undir
samstarfssamning þar sem