Feykir - 10.01.2008, Síða 10
lO Feyklr 01/2008
Norðvestlendingur ársins 2007
Hver verður Norðvestlendingur ársins?
Feykir mun nú í fyrsta sinn vera með kosningu á þeim íbúa, eða
hópi, á Noróurlandi vestra sem þykir hafa skarað fram úr á árinu
sem nú er lióið.
Valdir voru 10 einstaklingar eða hópar sem unnið hafa til affeka,
hvert á sínu sviði, á árinu og munu lesendur Feykis, Skagafjarðar.com
og Flúnahornsins geta kosið um það hver eigi utnefninguna mest skilið.
Það var ekki auðvelt að takmarka fjöldann við 10 aðila og margir fleiri
hefðu átt skilið að vera útnefndir. Lesendur Feykis geta sent tölvupóst á
feykir@nyprent.is og skilað þannig sínu atkvæði en einnig verður hægt
að kjósa á Húnahorninu og Skagafirði.com.
Þórarinn Eymundsson
hestamaður á Sauðárkróki
Þórarinn vann sér keppnisrétt á
Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum 2007,
á úrtökumótum sem LH heldur fyrir HM. Á
þeim mótum vann hann glæsilega bæði tölt
og fimmgang á hestinum Krafti frá Bringu.
Þeir félagar héldu sigurgöngu sinni áffam á
íslandsmótinu en Þórarinn er íslandsmeistari
í tölti og fimmgangi. Þetta er annað árið í röð
sem þeir vinna þessa báða titla og er það einstakt
affek í sögu hestaíþrótta. Þórarinn vann svo
tvö gull á HM í Hollandi, í fimmgangi og sem
samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum.
Einnig vann hann silfurverðlaun í tölti.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
frjálsíþróttakona USVH
Helga Margrét hefur þrátt fyrir ungan aldur
náð frábærum árangri og hefur sannað sig sem
alhliða frjálsíþróttakona. En Margrét var aðeins
hársbreidd frá því að slá íslandsmet kvenna í
sjöþraut á árinu.
Björn Þór Kristjánsson
ferðaþjónustumógúll í
Austur-Húnavatnssýslu
Björn Þór opnaði í samstarfi við aðra
veitingastaðinn Pottinn og pönnuna á
Blönduósi í sumar samhliða því að vera með
ferðaþjónustu á Húnavöllum og vera í forsvari
fyrir hópi sem er að byggja upp þjónustu við
ferðamenn á Hveravöllum. Björn Þór er ekki
einungis maður hugmynda hann er einnig
maður framkvæmda.
Börnin á Skagaströnd
Börnin á Skagaströnd eru engum lík, þau
höfnuðu í þriðja sæti í Skólafitness á Norðurlandi
og sigruðu skólakeppnina Reyklaus. Þegar
þau langaði í nýja sundlaug fóru þau af stað
og söfnuðu undirskriftum og skiluðu inn til
sveitarstjórnar og komu þannig hreyfingu á
málin. Aftur voru þau á ferðinni þegar henda
átti jólatré bæjarins og fá nýtt sökum hversu
horað tréð var. Horaða trénu var fundinn nýr
staður. Þá seldur þau bænum eitt vinaband
á hvern íbúa bæjarins til þess að safna fé fyrir
Rauða Krossinn. Með æsku sem þessa er engu
að kvíða í málefnum íbúa Skagastrandar.
Húsfreyjurnar á Vatnsnesi
Húsffeyjurnar standa á sumrin fyrir glæsilegu
Fjöruhlaðborði ogá haustin tekur við sviðaveisla.
Þá gáfu þær sveitarfélaginu 1,5 milljón króna til
þess að byggja við félagsheimilið á Vatnsnesi.
Kraftakerlingar þarna á ferð.
Lilja Pálmadóttir Hofi og
Steinunn Jónsdóttir Bæ á
Höfóaströnd
Þessar ungu konur komu að máli við
Sveitarstjórn Skagafjarðar og ætla að gefa
sveitarfélaginu sundlaug með tilheyrandi
aðstöðu á Hofsósi.
Alexandra Chernyshova
söngkona Hofsósi
Alexandra sem er í forsvari fyrir Óperu
Skagafjarðar stóð fyrir uppsetningu á La
Traviata á árinu. Uppsetningin fékk frábæra
dóma og hefur Ópera Skagafjarðar sýnt La
Traviata fyrir fullu húsi vítt og breytt um
landið síðustu mánuði.
JakobJónsson
Léttitœkni á Blönduósi
Jakob er í forsvari fyrir fyrirtæki sem er eitt
það fremsta í sinni röð hér á landi. Léttitækni
sérhæfir sig í öllum lausnum þegar kernur
að lagerhaldi fyrirtækja auk þess að vera
með, eins og nafnið gefur til kynna, ýmis
léttitæki. Fyrirtækið er í örum vexti en engu
að síður segir Jakob að það borgi sig að reka
höfuðsvöðvar þess heima á Blönduósi og vera
með útibú í Reykjavík.
Sigríóur Sigurðardóttir
safnstjóri Byggðasafns
Skagafjarðar
Sigríður hefur gengt þessu ári í 20 ár og var nú í
haust haldið sérstakt málþing tileinkað Sigríði
og hennar störfum. Varla er haldin sú sýning
í Skagafirði að Sigríður eigi ekki þar einhvern
hlut að máli og eru fáir sem sinna starfi sínu
að jafii mikilli ástríðu og Sigríður.
Aóstandendur
Húnahornsins
Húni.is er heimasíða þar sem finna má fféttir
og fróðleik af mannlífi í Húnavatnssýslum.
Heimasíðan er rekin af áhugafólki um mannlíf
á svæðinu og algjörlega í sjálfboðavinnu.
Engu að síður er heimasíðan uppfærð oft
á dag og nær að vera einstaklega lifandi og
skemmtileg.