Feykir


Feykir - 18.03.2008, Page 3

Feykir - 18.03.2008, Page 3
n/2008 Feykir 3 Fljótin Hefiir verið tvo vetur á útigangi Nu i vikunni fannst veturgamall hrútur á Tungudal í Rjótum þegar Jón bóndi á Þrasastöðum fór í dalinn á snjósleða. Hrútur reyndist vera frá bænum Sandfelli skammt fyrir ofan Hofsós. Hann var langt kominn með að ganga úti sinn annan vetur. Við smölun í Unadal í haust var hann með fjórum öðrurn útigangskindum sem náðust en hann var skilinn eftir uppgefinn. Þegar hans var leitað í nokkur skipti um haustið fannst hvorki tangur né tetur af honum og var talið líklegast að hann hefði drepist. Nú er annað komið í Ijós sem sýnir enn einu sinni hvað kindur sem verða einar geta ranglað um ijöllin og jainvel lent á ólíklegustu stöðum. Þá heimtist fyrir nokkrum dögum veturgömul ær með lambi ffá bænum Melstað í Óslandshlíð. Þessar kindur komu saman við féð á Efra-Ási í Hjaltadal sem var gefið úti skammt ffá fjárhúsunum. Talið er nær fullvíst að gimbrin hafihaldiðsigíKolbeinsdalnum í vetur. Hún og lambið voru í mjög þokkalegum holdum enda hefúr veturinn verið snjóléttur og því hagstæður útgangsfé til þessa. ÖÞ: Margar hendur vinna létt verk Samstarfsaðilar óskast! Við leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem ætla að vinna að verkefnum á sviði umhverfis- eða ferðamála í sumar. ► ► Við bjóðum fram krafta vinnuhópa ungmenna á aldrinum 16 til 20 ára sem starfa hjá okkur á sumrin. Hóparnir sinna viðhaldi og snyrtingu í nágrenni mannvirkja okkar en um árabil hafa þeir sinnt umhverfismálum og bætt aðstöðu til útivistar og ferðamennsku víða um land. Við viljum eiga samstarf um verkefni sem lúta að ræktun, hreinsun og c umhverfisbótum ásamtt.d. stígagerð og stikun gönguleiða. Við bjóðum fram vinnuframlag unglinganna og flokkstjórn yfir þeim. Við óskum eftirað samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni, samkvæmt nánari lýsingu á umsóknareyðublaði sem er að finna á vefsíðu Landsvirkjunar, www.lv.is. Nánari upplýsingar veita: Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi og Ragnheiöur Ólafsdóttir umhverfisstjóri í síma 515 9000 - thorsteinn@lv.is og ragnheidur@lv.is. Umsóknum skal skila í síðasta lagi 4.apríl með vefumsókn á www.lv.is Landsvirkjun

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.