Feykir - 15.05.2008, Blaðsíða 3
19/2008 Feykir 3
Nýtt pósthús íslandspósts á Sauðárkróki
Fyrsta skóflu-
stunga tekin
Fimmtudaginn 8. maí var
fyrsta skóflustungan tekin
að nýju pósthúsi á
Sauðárkróki. Kristján L.
Möller samgönguráðherra
tók skóflustunguna að
viðstöddu starfsfólki
íslandspósts úr Reykjavík
og á Sauðárkróki.
Eftir athöfnina var öllum
viðstöddum boðið að þiggja
veitingar á veitingastaðnum
Mælifelli þar sem Ingimundur
Sigurpálsson, forstjóri
Islandspósts, kynnti nýja
pósthúsið sem og áfram-
haldandi uppbyggingu fyrir-
tækisins um allt land á næstu
misserum.
Nýtt pósthús mun rísa að
Ártorgi 6.
Sönghópur Félags eldri borgara í Skagafírði
Söngskemmtun
á sunnudag
Songhópur Félags eldri
borgara verður með árlega
söngskemmtun sína f
Fnmúrarasalnum á
Sauðárkróki sunnudaginn
18. maí klukkan þrjú.
Kórinn mun þar syngja létt
sönglög undir stjórn og
undirleik Jóhönnu Mannar
Óskarsdóttur.
Um einsöng sér Þorbergur
Skagfjörð Jósepsson auk þess
sem Albert Sölvi Óskarsson
mun leika undir á saxafón.
Skemmtun kórsinshefúrhingað
til verið haldin á degi aldraðra
sem er á uppstigningardag en
þar sem sá dagur kom upp á 1.
maí þetta árið var söng-
skemmtunin flutt aftur.
Þá mun kórinn halda í
söngferð á Strandir og Vestfirði
24. - 26. maí n.k. en kórinn
hefúr farið á hverju vori í
söngferð. í fyrra fór kórinn á
Egilsstaði.
Mynd vikunnar
Kiwanisklúbburinn Drangey á Sauðárkróki afhenti síðast liðinn
laugardag öllum nemendum í 1. bekk á Sauðárkróki
reiðhjólahjálma. Boðið var upp á grillaðar pylsur og áttu bömin,
foreldrar þeirra og Kiwanismenn góða stund saman.
Atvinna
Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar
Starfsfólk vantar til sumarafleysinga á sambýlið Fellstúni.
Vaktavinna. Laun skv. gildandi kjarasamningum.
Upplýsingar hjá Eddu í síma 453 6692.
Tónlistavskóln Skagajjnrdav verða i Höjðabovg Hofsósi jÖstueiaginn 16. maík/. 17:00
- Tónlistaratriði
- Veitt verður úr iniiiuiugarsjóði Aðalbeiðar F.rht jrd Syðra-Vallbolti
og iniuningarsjóði Jóus Björnssonnr
- AfJjendiug prófskirteina
Tónlistarskóli Skagafjarðar