Feykir - 15.05.2008, Page 11
19/2008 Feylclr 11
Arni Birgir kokkar________________
Léttsteiktar lunda-
bringur með malti
Árni Birgir Ragnarsson á Sauðárkróki býður lesendum
Feykis upp á uppskriftir vikunnar að þessu sinni. Árni
skorar á Rósu Dóru Viðarsdóttur og Halldór Þorstein
Gestsson, eða Dóra Híu, Laugatúni 6 að koma með næstu
uppskriftir.
Hluti veislugesta á ársþinginu.
Vel heppnað ársþing
á Bakkaflöt og Steinsstöðum
Gleði og gaman á
bandalagsþingi
FORRÉTTUR
Smálúðu-sashimi
400 gr. fersksmálúða
10 gr. svört sesamfrœ
lÁ dl. sesamolía
1 dl. ólífuolía
20 gr. ferskt kóríander
50 gr. ristaðarfuruhnetur
Sjávarsalt
Aðferð:
Smálúðan er hreinsuð og skorin
í þunnar sneiðar og raðað á disk.
Ólífúolía, sesamolía og sesamfræ
sett í pott og hitað þar til volgt,
u.þ.b.40°C. Olían má alls ekki
verða of heit því þá eldast lúðan
of mikið. Olíunni er svo hellt yfir
fiskinn. Ristuðum fúruhnetum og
kóríander stráð yfir ásamt dálitlu
sjávarsalti.
AÐALRÉTTUR
Léttsteiktar
lundabringur
með malti og bláberjasósu
6 lundar, úrbeinaðir
frá skipinu
Salt ogpipar
30 gr. smjör til steikingar
Ferskt blóðberg
(ekki nauðsynlegt)
2 bollar maltöl eða maltbjór
1 bolli rjómi
1á bolli bláber, helst islensk
1 tsk. anda- eða nautakraftur
20 gr. smjör
Mikilvægt er að hreinsa alla fitu af
lundanum sem ogþær himnur sem
hægt er að plokka af áður en hafist
er handa við eldamennskuna. Þá
eru lundabringurnar kryddaðar
með salti, pipar og blóðbergi, sem
er pillað af greinunum. Pannan
hituð vel. Smjörinu er skellt á
pönnuna og bringurnar steiktar
á henni í u.þ.b. 50 sek. á hvorri
hlið. Bringurnar eru teknar af
pönnunni og maltinu hellt út á
pönnuna og það soðið niður um
helming.Þetta kemur með sætuna
í sósuna. Þá er rjómanum bætt út
í maltið og leyft að sjóða niður um
helming. Sósan er krydduð með
anda- eða nautakraftinum.
Þegar sósan er komin í þá þykkt
sem þykir heppileg, er lunda-
bringunum bætt út í ásamt smjöri
og bláberjum. Leyfið þessu að
sjóða í um 1 mín. við meðalhita
og veltið pönnunni svolítið til
svo þetta blandist vel. Gott er að
skreyta diskinn með blóðberginu.
AÐALRÉTTUR TVÖ
Sterkur karrý
kjúklingur
1 kjúklingur
1 peli rjómi
Kryddlögur:
3 dl. tómatsósa
3 tsk. karrý
3 tsk. pipar
1 tsk. salt
Kjúklingurinn er skorinn í bita,
velt upp úr kryddleginum og
settur í eldfast mót. Sett í 200°C
heitan ofn og eldað í 30 mín.
Kjúklingurinn er borin fram með
hrísgrjónum og rjóminn sem
hellt var yfir, er sósan sem er sett
á hrísgrjónin.
EFTLRRÉTTUR
Pönnukökur
með ís oggrand mariner
Búið til pönnukökur úr venjulegu
pönnukökudegi, nema hafið
deigið þykkt svo þær verði
þykkar.
Setjið 2-3 kúlur af ís í hverja
pönnuköku. Leggið saman í
hálfmána og setjið á disk. Hellið
grand mariner yfir.
Verði ykkur að góðu!
Bandalag íslenskra leik-
félaga hétt sinn áriega
aóalfund í Skagafirði
sfðastliðna helgi, en hann
fór fram í Lýtingsstaðahreppi
nánar tittekið í Árgarði.
Gestimir komu alls staðar
að af landinu og óhætt að
segja að það var mikill leikur
i fólki. Á laugardagskvöldið
var hátíðarkvöldverður á
Bakkaflöt þar sem boðið var
upp á ljúffengan þriggja rétta
kvöldverð að hætti hússins
og eins og alltaf sló skagfirska
hráefnið í gegn hjá gestum.
Undir borðhaldi tilkynnti
Tinna Gunnlaugsdóttir
þjóðleikhússtjóri val Þjóð-
leikhússins á athyglisverðustu
áhugasýningu leikársins en
það var Halaleikhópurinn
með sýninguna Gaukslireiðrið
sem fékk þá viðurkenningu.
Að því loknu mælti Herdís
Þorvaldsdóttir, móðir Tinnu,
nokkur orð um hvernig
leikstarfið var á fyrstu árum
Þjóðleikhússins, sem þá fór
í leikferðir um landið og
voru þær oít á tíðum nokkuð
ævintýralegar.
Rúsínan í pylsuendanum
var svo leynigesturinn
Geirmundur Valtýsson sem
tryllti lýðinn undir lok borð-
haldsins með nokkrum vel
völdum lögum.
Fundurinn gekk annars
vel fýrir sig, var formaðurinn
Þorgeir Tryggvason bæði
ánægður með afrakstur
fundarins sjálfs, sem og
aðstæður allar og móttökur.
( GRUNNSKÓLINN Á BLÖNDUÓSI
Ástarbréfasamkeppni
' unglingadeild
A dögunum stóð yfir skemmtileg
keppni meðal nemenda í unglingadeild
Grunnskólans á Blönduósi.
Nemendur skrifúðu ástarbréf undir dulnefni á
íslenskuvef skólans og máttu þau velja hvort þau
væru strákur að skrifa til stelpu eða stelpa að skrifa
til stráks. Síðan
voru bréfin birt
á vefnum þar
sem kosið var
um flottasta
bréfið. Það var
síðan Berglind
íslenskukennari
sem veitti
verðlaun og
viðurkenning-
arskjal til handa
sigurvegaran-
um, Kristins
Justiniano
Snjólfssonar
nemanda í 9.
bekk sem skrifaði undir dulnefninu Haukur Ingi
Jónasson.
Gaman er að segja frá því að fjölmörg og
eldheit ástarbréf litlu dagsins ljós í þessari keppni
og ljóst að nóg er af hæfileikaríkum unglingum í
skólanum.
Vinningsbréfið var til Ástrósar.
EJsfu Asétás
P&jot éyj hu^sa U/y> esy/a,
fiá huyjSa éj usa
p/zV -faj/ecya hros
cx) hirtu Ajarta.
PÚ i ö>r/yjU/yj /yiíau/yi U/yfV&fÚr /yiyj)
/yjeé> ö/Ju fiínu hfjarta.
f-Qj OjS-t Ve-tiii Sá/in p/'/7,
f/qaV' a//t er froSiii.
iM Sá/in hún et /ífceé> /ytin,
hú/i Vfl/yin Se/yi fú froSir.
e-Ftir Hó/t iTó-'Wc/'.
Petta fa//e.cya JjáÁ /yiiafr /y;i<j á
f>ic) einU Ste/y/Una Sem écj e/sja
/ feSSU/yj hei/yji écj c)a°ti a/c/rei
/ifrA án f>in. Bara cá Sjá f iq anda
faer /y?ic) ti/ oá anda hrcÁar cx)
hrohar fanni^ éa cysti affi staáist
aA jyssa ficj. A hverju/yj einasta
deaj hucjSa éc) um ást /y?ina ti/
fin hún eyést CX) a/fst /y)eÁ
hVerju/y? decj. f) vi/ CÁ fú vitir
CÁ éc) <)Ceti effi /ifcÁ einn da<) i
/if /y?inu án feSS CÁ vita CÁ fú
Sért /y?ér VÁ h/Á.PÚ ert ástin cxj
ráSm í /íf /y?inu.
£q e/sfa />íq af ö//u hýjarta
Astrcós /y?in Á