Feykir


Feykir - 04.12.2008, Síða 2

Feykir - 04.12.2008, Síða 2
2 Feykír 46/2008 Skagafjörður Kynna á nýtt aðalskipulag ' ■> ►. • ’tpii, Skagafjörður Opnað fyrir Ijósleiðarakerfi Sveitarstjórn Skagafjarðar hefur samþykkt samhljóða ósk Skipulags- og bygginganefndar um heimild til þess að kynna aðalskipulagstillögu Skagafjarðar á opnum borgarafundi. Gísli Árnason, Vinstri grænum, óskaði við það tækifæri bokað að hann teldi eðlilegf 'að ■ fresta ákvörð- unartöku um línuleið 220 kw háspennulínu á allri lagnaleið línunnar, þar með talið frá sveitarfélagsmörkum að Kolgröf. Ennfrémur að hann sjái ekki íyrir sér að framtíðarstað- ur fyrir sorpurðun verði að Brimnesi. Skipulagið verður kynnt í Feyki fljótlega á nýju ári’ Er eitthvað að frétta? Hafðu samband - Síminn er 455 7176 Leiðari Bruðl í ríkisútvarpinu Ég veltiþvífyrir mér hvernig standi á því að ríkisstofnun getifarið rúmlega 700 milljónirfram úrfjárlögum. Jú,jú það er komið í Ijós að rekstur ríMsútvarþsins er kominn úr böndunum og launakostnaður á síðasta ári rauk upp úr öllu valdi. Útvarpsstjóri kostar um 25 milljónir á ári meðiaunatengdum gjöldum og einstaka þáttastjómendur með gfir 800 þúsund í mánaðarlaun aukþess að fájakkaföt og síma. En eins og annað tók veislan enda íþessari annars ágætu stofimn og niðurskurðarlmífurinn var tekinn upp. Útvarpsstjóri lækkar niður í 1,6 milljón á mánuði, eða góð bankastjóralaun. Forsætisráðherra er með rúma milljón, hvor ætli beri nú meiri ábyrgð? Og síðan er skorið niður. Landsbyggðin er skorin afog svæðisútvörpin munu hætta að hljóma frá og með áramótum. Æi er ekki best að skera niðurþað sem mestu máli skiptír og byrja á toppnum það mættí bjarga nokkrum störfum meðþví að lækka laun útvarpstjóra niður í þingfarakaup. En hvað veit ég? Ég veit bara aðþað þarfafnotagjöldfrá 561 heimili tíl þess að greiða laun útvarpsstjóra og þá eru launatengdu gjöldin eftír. Ég slæ á að þaðþurfi afnotagjöld allra heimila á Skagaströnd og velflest á Blönduós til þess að greiða þetta. Guðný Jóhannesdóttir ritstjóri Feykis Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum Feykjr Utgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4,550 Sauðárkrókur ■ 4.. rV- Bladstjórn: Árni Gunnarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Merfiís Sæmundarcjóttif, pfatUf Sigmarsson og Páll gifmjaitsson. Ritstjóri & ábyrgðarmaðun Guðný Jóhannesdóttir feykir@nyprent.is © 4557176 Blaðamenn: Páll Friðriksson palli@nyprent.ls. (Q 8619842 ÓíiÁrnar Bryhjarsson oli@nyprent.is Lausapenni: Örn Þórarinsson. Prófarkalestur. Karl Jónsson • Askriftarverð: 275 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 325 krónur með vsk. Áskrift og dreifing Nýprent ehf. Sími 4557171 Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Gagnaveita Skagafjaróar opnaói um mánaóarmótin nýtt Ijósleiðarakerfi f Túnahverfi á Sauðárkróki. Er þetta fyrsta skrefið af mörgum f Ijósleiðara- væðingu bæjarins en jarðvinnuframkvæmdir standa nú yfir í Hlíðahverfi sem og ídráttur Ijósleiðara í blokkir við Víðigrund. Um opið kerfi er að ræða og geta hvaða þjónustuaðilar sem er veitt þjónustu sína yfir kerfið og notendur að sama skapi valið úr þjónustuframboði þeirra. í dag eru tvö fyrirtæki inni á kerfi Gagnaveitunnar; Fjölnet sem býður upp á internet- þjónustu og Vodafone sem býður upp á internet- og símaþjónustu auk sjónvarps- dreifingar fyrir 365 miðla. Viðræður standa yfir við fleiri þjónustuaðila um aðkomu þeirra að kerfi Gagnaveitunnar á næstu misserum. Uppbygging Gagnaveit- unnar á háhraðaneti í dreifbýli stendur einnig yfir og hafa viðtökur verið góðar við tengingum á því svæði sem núverandi athygli beinist að. Um er að ræða Viðvíkursveit, norðanverðan Akrahrepp og austanvert Hegranes, en á því svæði eru um 30 bæir. Húnavatnshreppur Útsvarsprósenta óbreytt Hreppsnefnd Húnavatnshrepps samþykkti samhljóða á fundi sfnum í sfðustu viku tillögu oddvita um að útsvarsprósenta ársins 2009 verði óbreytt frá fyrra ári eða 13,03% Þá var fyrri umræða um fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Áður hafði verið farið yfir helstu tekju- og kostnaðarliði og unnin drög að fjárhagsáætl- un 2009. Farið var yfir rekstrarliði og fjárfestingar í fjárhagsáætlun. Voru menn sammála um að mikil óvissa sé um tekjuliði áætlunar þar sem gera megi ráð fyrir talsverðum lækkunum á framlögum Jöfnunarsjóðs og alls óvíst er með greiðslu á aukaframlagi sjóðsins. Eftir yfirferð var fjárhagsáætlun vísað til annarrar umræðu í hreppsnefnd. Skagaströnd Frumhönnun á sund- laug lokið Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að óska eftir frumáætlun kostnaðar við byggingu sundlaugar við íþróttahúsið á Skagaströnd. Nú þegar hefur farið fram frumhönnun sundlaugar og verður kostnaður skoðaður út frá þeim tillögum auk þess sem gerður verður samanburður á kostnaði við byggingu og rekstur mismunandi stærða á sundlaugarkeri. Skagafjarðarveitur Lán til framkvæmda Byggðarráð Skagafjarðar hefur samþykkt að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 50.000.000 kr. til 10 ára. Er lánið tekið vegna hitaveituframkvæmda hjá Skagafjarðarveitum ehf. Guðmundi Guðlaugssyni, sveitarstjóra, var falið að ganga frá láninu fyrir hönd sveitarfélagsins. Skagafjörður Aðventu- kvökl frestast umviku Aðventukvöld sem auglýst var í Jólablaði Feykis og átti að vera í Skagaseli laugardagskvöldið 6. desember kl: 20:30 frestast um viku og verður þess í stað haldið sunnudaginn 14. desember klukkan 20:00. Blönduós Ijón Norðursins opnar Húnahornið segir frá þvf að nýtt kaffihús hafi verið opnað á Blönduósi í gær. Kaffihúsið er staðsett í gamla Mosfelli við Blöndubyggð og hefur fengið nafnið Ljón Norðursins. Eigandi kaffihússins er Jónas Skaftason leigubílstjóri. Kaffihúsið verður opið fram að jólum og einnig á milli jóla og nýjárs og er stefnt á að bjóða upp á lifandi tónlist ásamt bakkelsi. Góð viðbót i flóruna á Blönduósi en Við Árbakkann mun loka á Þorláksmessu. Skagaströnd Úrsúla nýr prestur Skagaströnd.is segir frá þvf að valnefnd í Skagastrandarprestakalli og Húnavatnsprófasts- dæmi hafi á fundi sínum þann 26. nóvember lagt til að Úrsúla Árnadóttir verið ráðin sóknarprestur f prestakallinu. Þrír umsækjendur voru um embættið sem veitist frá 1. janúar 2009. Biskup íslands skipar i embætti sóknarprests til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Húnavatns- prófastsdæmis.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.