Feykir


Feykir - 04.12.2008, Qupperneq 3

Feykir - 04.12.2008, Qupperneq 3
46/2008 Feykir 3 Nemendur og starfsmenn Árskóla á Sauöárkróki héldu f hina árlegu friðargöngu síðastliðinn föstudag. Þá var mynduð hin ágætasta halarófa sem náði frá Sauðárkrókskirkju, upp Kirkjustfginn og að krossinum á Nöfum. Friðarljósið verður síðan látið ganga upp alla röðina og þegar það berst að krossinum voru Ijósin á krossinum tendruð. Myndina tók Hjalti Árnason. Skagafjorður Jólatónleikar söngdeildar Tónleikar söngdeildar Tónlistarskóla Skagafjarðar verða haldnir að Löngumýri þriðjudaginn 9. des. kl. 20.00. Þar koma fram 10 söng- deildarnemendur og barnakór Tónlistarskólans sem Jóhanna Marín Óskarsdóttir stjórnar. Lagaval er íjölbreytt og spannar allt frá söngtónlist barroktímans til okkar daga í bland við nokkur falleg hátíðleg lög. Kaffiveitingar verða seldar á kr. 500 sem er til styrktar söngdeildinni en frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir framkvæmdastjóri Selaseturs á Hvammstanga Feykir - Feykir.is - ferskur miðill í heimabyggð Fréttaskot > sendu póst á feykir@feykir.is Sími455 7176 VELKOMLN Á AÐVENTUNNI Askajfi verdur opid dagana 6., 7., 13.,14. og 21. desemberfrá kl. 16-19. Rökkurganga ígamla bœinn kl. 17. alla dagana. (20 manns í hóp) Verið velkomin, RvaoðflSflfn Skaafirðinaa Átak til þess að efla bleikjueldi í Skagafirði Hefur þú aðgang að góðu vatni til fiskeldis? Vilt þú kanna möguleika þína á því að koma á fót fiskeldi? Verið Vísindagarðar, Háskólinn á Hólum, Hólalax, Hátæknisetur Islands og Skagafjarðarveitur standa fyrir átaksverkefni um að efla bleikjueldi í Skagafirði. Sérstök áhersla verður lögð á að byggja upp litlar eldisstöðvar og styðja við rekstur þeirra. Leitað er að samstarfsaðilum sem vildu taka þátt í þessu verkefni og koma á fót litlum fiskeldisstöðvum. Hér gætu leynst tækifæri fyrir bændur og landeigendur til þess að byggja upp eigin atvinnurekstur eða aukabúgrein. Það sem hópurinn getur boðið samstarfsaðilunum er eftirfarandi: • Mat á aðstæðum til bleikjueldis. • Gerð kostnaðaráætlunar um byggingu og rekstur á fiskeldisstöð. • Aðstoð við gerð umsóknar um starfsleyfi • Aðstoð við gerð umsókna um styrki til byggingar stöðvarinnar og til þess að byggja upp lífmassa. • Aðstoð við hönnun stöðvar. • Aðgang að seiðum af heppilegri stærð til eldisins • Ráðgjöf við eldi • Slátrun og markaðssetningu afurða Boðað er til kynningarfundar í Verinu, Háeyri 1. þriðjudaginn 9. desember kl. 16:00 Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Gísla Svan Einarssyni í síma: 455 7930 V VERIÐ Vísindagarðar 23 ió 3 a 3 a ^ —*— Hátæknisetur Islands vaxtarsamningur Bvqqðastofnun

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.