Feykir


Feykir - 04.12.2008, Blaðsíða 5

Feykir - 04.12.2008, Blaðsíða 5
46/2008 Feykir 5 Framúrkeyrsla RÚV Svæðisútvarpið blásið af Ríkisútvarpið hefur endurskoöað rekstrar- áætlun sfna fyrir næsta ár og í kjölfarið var tekin ákvörðun um að hætta svæðisbundnum útsend- ingum RÚV á Akureyri, Egilsstöðum og á ísafirði. Fyrr í haust skar RÚV, nkisútvarp allra lands- manna, einnig niður og var þá fækkað á starfsstöðv- unum úti á landi. Alls hefur Ríkisútvarpið sagt upp 21 starfsmanni auk þess að rifta samningu við 23 verktaka. Allt í allt hverfa 45 starfsmenn frá RÚV. Fréttasvið erþað langstærsta en undir það heyra fréttastofur útvarps og sjónvarps, íþróttadeild, textavarp, vefur RÚV og svæðisstöðvarnar, auk morgunþátta og síðdegisþáttar Rásar 2. 15 manns verða látnir fara af þessum sviðum. Þremur starfsmönnum verður sagt upp á Akureyr i. Einum tæknimanni, einum fréttamanni og einum dagskrárgerðamanni. Að sögn Óðins Jónssonar, fréttastjóra, er hugmyndin sú að þeir starfsmenn sem eftir verið skili meiri fréttum en áður inn í fréttatíma útvarps og sjón- varps. Húnaþing vestra Breyting á aðalskipulagi Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sfnum 9. október 2008 að auglýsa til kynningar breytingar á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2002- 2014 samkv. 1. málsgrein 18. gr. Skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Breytingin nær til hluta jarðarinnar Bessastaða á Heggstaðanesi. Landnotkun er breytt úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði þar sem fyrirhugað er að setja upp sendistöð fyrir tal- og gagnaviðskipti við flugvélar. Ennfremur er gerð breyting á tengivegi til samræmis við legu hans í landi Bessastaða. Jafnframt er auglýst deili- skipulag sem nær yfir iðnaðarsvæðið skv. 25.gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Samkvæmt deiliskipulaginu fylgir aðkomuvegur að stöðvar- húsi að mestu núverandi vegslóða og þá er einbreiður vegslóði milli loftneta. Stöðvarbygging er allt að 200 m2ogalltað 12 loftnet ábilinu 18-40máhæð. Fjárheldgirðing verður umhverfis svæðið. Skipulagsuppdrættir og greinargerðir munu liggja til sýnis á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga og hjá Skipu- lagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá 23. nóvember 2008 til 21. desember 2008. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingar- tiOöguna. Athugasemdum skal skila til skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 5. janúar 2009 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests teljast samþykk- ir henni. Húshitunarkostnaður á Hofsósi Lækkar umtalsvert Húshitunarkostnaður fbúa Hofsósi og nágrenni sem tengst heftur hitaveitu Skagafjarðarveitna, lækkar verulega og verður jafnvel þrisvar sinnum ódýrari, sé stofnkostnaður ekki með talinn. Skagafjarðarveitur greiddu hluta hitaveituvæðingarinnar með yfirdráttarláni, enda átti niðurgreiðslustyrkur ríkisins að koma þar á móti. Niðurgreiðslusjóðurinn fyrir árið 2008 er hins vegar uppurinn. Fótbolti Hvöt Hvatarmenn unnu Hauka létt Leikmenn meistaraflokks Hvatar hófu þátttöku sfna í íslandsmótinu í Futsal um helgina er þeir öttu kappi við lið Hauka úr Hafnarfirði og var leikið í Hafnarfirði. Futsal er ákveðin tegund innanhúss knattspyrnu en reglur eru öðruvísi en í heíðbundnum bolta og knötturinn sjálfúr er bæði minni og þyngri en venjulegur knöttur. Hvatarmenn mættu með mjög ákveðnir til leiks og tóku Haukana í kennslustund í Futsal og urðu lokatölur í leiknum 16-8. Frjálsar íþróttir UMSS gerði þaðgottá Silfurleikum IR Metþátttaka var á Silfurleikum ÍR, sem fram fóru í Laugardalshöllinni í Reykjavfk, laugardaginn 22. nóvember. Mótið, sem er fyrir börn og unglinga 16 ára og yngri, var nú haldið í 13. sinn. UMSS sendi 15 keppendur á mótið sem stóðu sig frábærlega. MiHa athygli vöktu þær Gunnhildur Dís Gunnarsdóttir og Fríða Isabel Friðriksdóttir, sem kepptu í flokki 9-10 ára hnáta, en þær sigruðu í öllum fjórum greinunum í sínum flokki og tvöfalt í tveimur greinum. Besti árangur Skagfirð- inganna: Flokkur 8 ára og yngri: Sæþór Hinriksson sigraði í 60m hlaupi, varð Í2. sæti i langstökki og 3. Í400m. Flokkur 9-10 ára: Friða Isabel Friðriksdóttir sigraði í 60m og 600m og varð Í2. sæti í langstökki. Gunnhildur Dís Gunnarsdóttir sigraði í langstökki og kúluvarpi og varð 2. í 60m. Flokkur 13-14 ára: Kolbjörg Katla Hinriksdóttir varð i 3. sæti i800mhlaupi. Flokkur 15-16 ára: Unda Björk Valbjörnsdóttir sigraði í 60m grind og 800m og varð í 3. sæti Í60m. Guðjón Ingimundarson varð í 2. sæti í 60m grindahtaupi. Vignir Gunnarsson varð í 3. sæti í þrístökki Halldór er efst til hægri með forláta derhúfu. Fyrr skipti ég um kyn en félag Nafn: Halldór Sigfússon. Heimili: Búsettur á Hvamms- tanga. Starf: Þjónustufulltrúi í Sparisjóðnum á Hvammstanga Hvert er uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum og af hverju? Liverpool, ég fór að fylgjast með enska boltanum árið 1985 og þá var Liverpool besta og skemmtilegasta liðið og valið því auðvelt. Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? Já það hefur komið fyrir og m.a. hafa húsgögn brotnað þegar verst lét. Hver er uppáhaldsleik- maðurinn fyrr og síðar? Það er argentínski snillingurinn Maradona en af leikmönnum Liverpooi þá eru það John Barnes, Robbie Fowler og Jan Molby. Af núverandi leikmönnum liðsins eru það Gerrard og Carragher. Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? Ég hef þrisvarfarið á Anfield og alltaf séð mína menn vinna. Fyrst árið 1999 í frægum 3-2 sigurleik gegn Everton þarsem Fowlerskoraði tvö mörk og fagnaði öðru með því að sniffa endalínuna. Síðar sama ár sá ég Liverpool leggja Chelsea með marki frá David Thompson. Svo fór ég í haust og sá mína menn sigra Man Utd 2-1. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? Ég á tvo Liverpoolbúninga, nokkra trefla og nokkra dvd-diska með liðinu m.a. úrslitaleikinn ógleymanlega í Istanbul árið 2005. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? Það hefur lítið reynt á það enda enginn áhugi fyrir fótbolta. Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? Nei aldrei, fyrr skipti ég um kyn og það er ekki á dagsskrá. LIVERPOOL Ferskur á netinu Hafðu samband - Síminn er 455 7176

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.