Feykir - 05.11.2009, Síða 2
2 Feykir 41/2009
Blönduós
Norðurland vestra
Flísalögn á sund-
laug gengur vel
Sundlaugin á Blönduósi verður öll hin glæsilegasta. Mynd: Blönduós.is
Unnið hefur verið að
flísalögn á nýju sundlauginni
á Blönduósi síðustu vikur og
er því verki lokið.
Var tjaldað yfir sundlaugina
á meðan til að hafa sem bestu
vinnuaðstæður og var tjaldið
færtyfir ápottana og vaðlaugina
sem verða einnig flísalögð.
Þá er vinna við að ljúka
tengiganginum langt komin og
er skemmtilegur heildarsvipur
að koma á allt verkið.
Leiðari
Hinn beitti hnífur niðurskurðarins
Mér hefur sl. vikur verið tíðrætt um hinn beitta hníf
niðurskurðar sem verið hefur á loftí hjá ríkinu sl. vikur.
Ekki það, að ráðamenn þjóðarinnar eru ekki öfundsverðir
afhlutskipti sínu þessar vikurnar en engu að síður
hlýtur krafa okkar sem landið byggjum að vera sú að
jafnt verði látíð yfir alla ganga. íþessari viku ferFeykir
afstað meðþriggja vikna umjjöllun um fjárlögin en í
umjjöllun okkar munum við taka fyrir niðurskurð til
heilbrigðismála, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og
sýslumannsembætta, lögreglu - og héraðsdómsembætta.
Hver umfjöllun endar síðan á þeim spumingum sem
eftír standa þegar jjallað hefur verið um málið með
augum heimamanna. Spurningarþessar verða sendar
tíl viðkomandi ráðuneyta ogfá þau viku tíl þess að senda
okkur svör sín. Svörin verða síðan birt í Feyki.
Erþað von mín að lesendur takiþátt íþessari vinnu
með okkur og sendi okkur ábendingar um hvemig
niðurskurðurinn kemur niður á einstaka svæðum eða
atvinnugreinum.
Krafa okkar er sú aðjafnt verði skorið niður hjá öllum
landshlutum en ekki lítið hjá sumum og mikið hjá öðrum.
Á okkar svæði virðist niðurskurðurinn ætla að verða
mikill og því hljótum við að mótmæla öll sem eitt.
Ábendingar og reynslusögur má senda á netfangið
feykir@feykir. is
Guðný Jóhannesdóttir
ritstjóri Feykis
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
[Feykir
Útgefandi: Ritstjóri & ábyrgdamiaður Á skriftarverð:
Nýprent ehf. Guðný Jóhannesdóttir 275 krónur hvert tölublað
Borgarflöt 1 Sauðárkróki feykir@nyprent.is ® 4557176 með vsk.
Póstfang Feykis: Blaðamenn: Lausasöluverð:
Box 4,550 Sauðárkrókur Páll Friðriksson 325 krónur með vsk.
palli@nyprent.is ® 8619842 Áskrift og dreifing
Blaðstjórn: Óli Arnar Brynjarsson
Árni Gunnarsson, oli@nyprent.is Nýprent ehf.
Áskell Heiðar Ásgeirsson, Lausapenni: Sími 455 7171
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll Örn Þórarinsson. Umbrot og prentun:
Dagbjartsson. Prófarkalestur: Karl Jónsson Nýprent ehf.
Hætta á að mjaltaþjónar
bænda verði óstarfhæfir
Fóðurblandan h.f og
DeLaval A/S hafa
undirritað viljayfirlýsingu
um að Fóðurblandan taki
yfir sölu og þjónustu á
vörum DeLaval á íslandi.
Bbl.is segir að farið er að
bera á skorti á varahlutum og
rekstrarvörum í DeLaval
mjaltakerfi og segja þjónustu-
aðilar að raunverulega hætta
sé á að mjaltaþjónar bænda
verði óstarfhæfir ef upp koma
í þeim bilanir.
Vélaver, umboðsaðili
DeLaval á íslandi, lagði fram
beiðni um gjaldþrotaskipti 17.
ágúst síðastliðinn og er svo
komið að skortur er orðinn á
DeLaval vörum í landinu.
Tilkynning barst frá
DeLaval í byrjun þessa
mánaðar um að fyrirtækið
hefði leitað til Fóðurblönd-
unnar um samstarf vegna sölu
og þjónustu á DeLaval búnaði
á íslandi og þar sem samningar
hafa tekist milli fyrirtækjanna
má búast við að varahlutir fari
að berast til landsins svo ekki
þurfi að handmjólka ef mjalta-
þjónar bila hjá bændum.
Húnaþing vestra
Ný Samstaða
Það var jákvæðni og bjartsýni
nkjandi á stofnfundi á
Staðarflöt f Hrútafirði s.l.
Iaugardag,enþásameinuðust
Verkalýðsfélag Hrútfirðinga
og Stéttarfélagið Samstaða í
eitt félag sem mun bera nafn
þess síðarnefnda.
Á stofnfundinum hlýddu
fundargestir á fallegan söng
og undirleik sem kennarar og
nemendur tónlistarskólanna á
svæðinu fluttu. Sérstaka
hrifningu vakti söngur lítillar
stúlku sem söng Maístjörnuna
með sannkallaðri englarödd.
Kosið var til stjórna og nefnda
til aðalfundar 2010.
Ásgerður Pálsdóttir var
kosin formaður félagsins. Lög
og reglugerðir fyrir félagið
voru samþykkt á fundinum.
Þau verða svo prentuð og send
til félagsmanna. Fjárhagslegur
samruni félaganna verður ekki
fyrr en um áramót, svo að
greitt verður áfram til gömlu
félaganna til áramóta. Nánar
verður sagt frá undirbúningi
sameiningarinnar og fund-
inum í kynningarblaði sem
kemur út fyrir jólin.
Norðurland vestra
Fjölgar mikið á
atvinnuleysisskrá
Eftir að atvinnuástand hafði
lagast mikið á Norðurlandi
vestra f vor og sumar flölgaði
í sfðustu viku skyndilega
mjög á atvinnuleysisskrá.
Fjölgaði atvinnulausum á
svæðinu úr 88 í 119 á svo til
einni viku.
Á heimasíðu Vinnumála-
stofnunnar má enn finna
eitthvað um laus störf á svæðinu
en þó verður að segjast að eins
og staðan er í dag er ekki um
auðugan garð að gresja á þeim
bænum.
Sauðárkrókur
Búhöldum synjað um
niðurfellingu gjalds
Byggðarráð Skagafjarðar
hefur hafnað erindi frá
Búhöldum hsf. þar sem
félagið óskaði eftir því að
gjald vegna endurúthlutunar
lóða við Iðutún 1-3, Iðutún
5 -7 og Iðutún 9-11 verði
fellt niður.
FVoru það rök Búhalda að
þar sem gjaldtakan hefði ekki
verið kynnt félaginu og ekki
auglýst með formlegum hætti
skyldi hún felld niður.
í rökstuðningi byggðarráðs
segir að þann 29. janúar 2009
hafi sveitarstjórn staðfest
gjaldskrá tæknideildar, þar á
meðal var gjaldtaka vegna
lóðaúthlutana.
Sauðfjárrækt
Ullarverð
hækkar til
bænda
Skrifað var undir nýtt
samkomulag um
ullarviðskipti fyrir helgi.
Samkvæmt þvf hækkar
verð ullar til bænda um
8% frá og með 1.
nóvember.
Rekstur ístex hefur
gengið vel á því ári sem nú
er að líða (uppgjörsár þess
er frá 1. nóv-31. okt) og
fyrirtækið fjórfaldar hlut
sinn í ullarverðinu á milli
ára. Það breytti þó fors-
endum að miklu meira
magn ullar barst til ístex á
liðnum vetri heldur en fyrri
samningur gerði ráð fyrir
eða 717 tonn í stað 640. Þar
sem greiðslur vegna ullar-
nýtingar í sauðfjársamningi
eru föst fjárhæð en ekki
magntengd, hefur það áhrif
á verðlagninguna nú.
Skagaströnd__________
Námskeið
í olíumálun
í Nesi lista-
miðstöð
Nes listamiðstöð býður
uppá námskeið f
olíumálun helgina 14.-15.
nóvember. Kennari á
námskeiðinu er Halldór
Árni Sveinsson en hann
hélt námskeið hjá Nesi
listamiðstöð f júní 2008
við góðan orðstýr.
Halldór Árni sem kennir
að öllu jöfnu íjölmiðlun við
Flensborgarskóla í
Hafnarfirði hefur jafnframt
kennt olímálun við
Námsflokka Hafnarfjarðar
og víðar síðustu tuttugu
árin. Á námskeiðinu, sem
er ætlað bæði byrjendum
og lengra komnum, verður
farið í val á myndefni,
myndbyggingu og blöndun,
notkun og meðferð olíulita.
Námskeiðið í olíumálun
hjá Nesi listamiðstöð er
liður í verkefninu Lifandi
list, sem styrkt er af Vaxtar-
samningi Norðurlands
vestra. Nánari upplýsingar
fást hjá Nesi listamiðstöð
nes@neslist.is og í síma 452
2816 og er námskeiðsgjald
9.000 kr.