Feykir


Feykir - 05.11.2009, Síða 7

Feykir - 05.11.2009, Síða 7
41/2009 Feykir 7 Vísindi: Feykir mun á næstu mánuóum birta kynningar á þeim fyrirtækum og stofnunum sem stunda vísindarannsóknir á Noróurlandi vestra. í þessu blaói og næst munum vió kynna til leiks þau fyrirtæki og stofnanir sem taka munu þátt í kynningunni. Kynningar vísindafólksins munu síóan birtast á þriggja vikna fresti eftir þaö. Eflum alla dáö! Um 170manns I starffavið vísiitdarannsókiiirl a Nordurlandi vestra^ ..vf' Umfang rannsókna- og þró- unarstarfs á landsbyggðinni hefiir vaxið töluvert hin síðari ár og hafa fjölmörg útibú skóla, stofhana, setra, ffumkvöðla- og sprotafyrirtækja verið stofhuð í dreifðum byggðum landsins. Hluti af þessari uppbyggingu hefur verið á vegum hins opinbera í samræmi við stefhu stj órn-valda að efla sérffæðistörf á landsbyggðinni, en önnur hefur verið á vegum ein- staklinga og fyrirtækja. Alls eru um 160 manns sem vinna við störf sem mætti tengja við rannsóknar- og þróunarstarf á Norðurlandi vestra í dag í um 25 stofnunum og fyrir-tækjum. Á yfirlitskortinu sést dreifing þessarar fjölbreyttu starfsemi ogfjöldi starfsmanna sem starfar á hverjum stað. Að auki eru reknar þrjár heil- brigðis- og heilsugæslustofn- anir á svæðinu þar sem starfa rúmlega 300 manns. Nokkur rannsóknar- og þróunarvinna fer fram innan veggja þessara stofnana. Ekki má síðan gleyma þvi að mikið þróunar- starf á sér stað í skólum á öllum stigum á Norðurlandi vestra. Oft á tíðum er uppbygging þessarar starfsemi ný af nálinni í þeim byggðarlögum sem hún er staðsett í og skapar ný atvinnutækifæri sérfræðinga í ýmsum greinum vísinda á landsbyggðinni. í mörgum tilfellum getur þessi starfsemi nýst sveitarfélögum að leita sér sérfræðiþekkingar heima fyrir í stað þess að sækja slíka þjónustu í stærri byggðarlög. Auk þess að skila auknum tekjum til sveitarfélaganna þá auðgar þessi starfsemi fjölbreytileika atvinnulífsins og ekki síst mannlífið. En hvað er þetta fólk að gera? í hverju felst þessi starf- semi? Það er eðlilegt að slíkar spurningar vakni þegar um nýjungar er að ræða í atvinnusköpun. Off á tíðum er um mjög sérhæfða starfsemi að ræða en í öðrum tilfellum er viðfangsefnið almennara. Kynning er þó mikilvæg og eru þessi greinarskrif liður í því að kynna þessa fjölbreyttu starfsemi og varpa ljósi á mikilvægi hennar. Hér á eftir eru talin upp og kynnt lauslega skólar, stofnanir, setur, frum- kvöðla- og sprotafyrirtæki sem við teljum heyra undir rannsóknar- og þróunarstarf á Norðurlandi vestra. Þetta er áreiðanlega ekki tæmandi listi en ætti að gefa hugmynd um umfang starfseminnar og Qölda starfsmanna. Við viljum auðmjúklega biðjast fyrirfram velvirðingar ef einhverjum finnst hann verða útundan. Það er örugglega ekki gert af illmennsku eða ásetningi! í kjölfar þessa yfirlits mun síðan birtast greinaröð hér í Feyki þar sem einstaka vísindamenn kynna áhugaverð rannsóknarefni sem þeir eru að vinna að. Fyrirhugað er að greinar birtist á þriggja vikna fresti og má gera ráð fyrir mjög fjölbreyttum umfjöllun- arefnum. Þorsteinn Sæmundsson ogSólrún Harðardóttir HÓLAR í HJALTADAL Hólaskóli - Háskólinn á Hólum [65] www.hoiar.is • Við Háskólann á Hólum eru stund- aðar víðtækar rannsóknir í öllum deildum skólans. Rannsóknir eru ásamt kennslu meginþáttur starfs- eminnar. Samstarf er um rannsóknir við aðrarstofnanirhérlendisen stærsti hluti rannsóknanna er alþjóðlegur. Nemendur í rannsóknartengdu framhaldsnámi eru margir erlendir. Hátt hlutfall rekstrartekna skólans eru rannsóknarstyrkir. Ferðamáladeild leggur áherslur á rannsóknir á eftirfarandi sviðum: a. uppbyggingu og ímynd áfangastaða, b. vöruþróun og rekstur, c. menningu, náttúm, mat og heilsu, afþreyingu og útivist og d. kennsiufræði ferðamála. Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Helstu rannsóknarsvið deildarinnar eru fiskeldisfræði, fiskalíffræði, Iffeðlis- fræði, vistfræði og þróunarfræði. Hestafræðideild Helstu rannsóknarsvið deildarinnar eru: frjósemi, fóstu rvísafl utn i nga r, þjáIfunarlffeðlisfræði, sjúkdómar og heilsufræði, atferlisfræði, fóðurfræði og reiðkennslufræði Háskólasetur Háskólans á Hólum á Blönduósi Sjá nánar undir Blönduós. Hólarannsóknin [30] Þverfagleg vísindarannsókn þar sem að koma innlendir og erlendir sérfræðingar úr flestum greinum menningarsöguiegra rannsókna. Markmið rannsóknarinnar er m.a. að fá heildarmynd af þróun staðarins og umhverfis hans og enn fremur að afla nýrra gagna um sögu íslands og samskipti til foma við umheiminn. Hólarannsóknin teygir anga sína víða um héraðið og á hennar vegum hafa einnig verið fomleifarannsóknir í Kolkuósi og í Keldudal. Hólarann- sóknin er samstarfsverkefni skólans, Byggðasafns Skagfirðinga og Þjóð- minjasafn Islands. Hólarannsóknin stendur að vettvangsskóla í fomleifafræði. Guðbrandsstofnun Sjálfstæð rannsókna- og fræðastofn- un við Háskólann á Hólum. Háskólinn á Hólum, embætti Hólabiskups f.h. Þjóðkirkjunnar og Háskóli íslands em aðilar að Guðbrandsstofnun. Mark- mið stofnunarinnar er að treysta þekkingu á sviði ýmissa fræðigreina, einkum guðfræði, sögu, bókmennta, fomleifafræði, siðfræði, prentlistar og sögu, kirkjulistar, tónlistar og myndlistar og raunvísinda. Dýralæknir hrossasjúkdóma [ij www.mast.is Fornleifavernd ríkisins [2] www. fomleifavernd. is Sérfræðingsstaða ‘*./:{?7SS,r við embætti yfirdýralæknis sem komið var á fót árið 1994 til að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum gegn hrossasjúkdómum. Nú heyrir staðan undir dýraheilbrigðissvið Matvælastofnunar. Rannsóknir á hrossasjúkdómum og líffræði hestsins er umtalsverður þáttur í starfi dýralæknis hrossasjúkdóma og eru nokkur stór rannsóknaverkefni í gangi um þessar mundir. Héraðssetur Landgræðslunnar [ij www.land.is Héraðssetrið hóf starfsemi sína árið 1996.Starfssvæði héraðssetursinser Vestur- og Austur- Húnavatnassýslur og Skagafjarðarsýsla. Helstu verkefni em umsjón með verkefnunum. Bændur græða landið og Vamir gegn landbroti af völdum fallvatna, beitar- og gróðureftirlit og ráðgjöf þar um. Ennfremur gæðastýring í hrossa- og sauðfjárrækt. Sögusetur íslenska hestsins [2] www.sogusetur.is Alþjóðleg miðstöð Twíí þekkingar og jr( fræðslu um sögu hestsins. **írA~v& Sögusetrið safnar margvíslegum heimildum um íslenska hestinn, vinnur að uppsetningu heimildarbanka og Ijósmyndasafns, uppsetningusýninga og að margskonar fræðslustarfi. Þá er setrið í víðtæku samstarfi. Setrið stundar rannsóknir sem er jafnframt gmnnur að fræðslu- og sýningarstarfi þess. SAUÐÁRKRÓKUR Byggðastofnun - þrounarsvið [7] www.byggdastofnun.is Hlutverk þróunar- sviðs Byggðastofn- unar er m.a. gerð byggðaáætlunar til fjögurra ára og samstarf við atvinnuþróunarfélögin. Sömuleiðis gagnasöfnun og úrvinnsla upplýs- inga, umsjón með og vinna við úttektir, rannsóknir og annað þróunarstarf á sviði byggðamála og atvinnulífs. Þróunarsvið er tengiliður gagnvart margskonar erlendu samstarfi svo sem Norðurslóðaáætluninni (NPP), Norrænu Atlantsnefndinni (N0RA), ESP0N sem er samevrópsk rann- sóknarstofnun á sviði byggðamála og norrænu embættismannanefndinni um byggðamál. Stjórnsýslustofnun sem heyrir undir menntamálaráð- herra. Markmið þjóðminjalaga og hlutverk Fomleifa- vemdar er að tryggja eftir föngum varðveislu menningarsögulegra minja í eigin umhverfi, auðvelda aðgang og kynni þjóðarinnar að þeim og greiða fýrir rannsóknum. Stofnunin er staðsett á sex stöðum á landinu. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga [io,5j www. skagafjordur. is Safnið hefur það meginhlutverk að safna skjölum opinberra aðila í Skagafirði sem varðveisluskyld eru. Héraðsskjalasafnið safnar einnig gögnum eintaklinga og fyrirtækja og Ijósmyndum frá almenningi. Safnið sér um skráningu ogvarðveislu þessara gagna ogsinnir rannsóknum á þeim eftirföngum. Við safnið em ávallt unnar rannsóknir sem byggjast á þeim plmörgu fyrirspumum sem safnið fær til sín, en þær eru um 700 á hverju ári. Þá hefur undanfarið verið unnið að umfangsmiklum rannsóknum á einstökum safnhlutum. Leiðbeininga- miðstöðin ehf [8] Miðstöðin sinnir ráðgjafaþjónustu fyrir bændur og búfjársæðingum skv. samningi við Búnaðarsamband Skagfirðinga. Ráð- gjafaþjónustan snýr að almennri og sérhæfðri ráðgjöf varðandi landnýtingu, jarðrækt og áburðar- notkun, kynbætur, fóðmn og aðbúnað búfjár, búrekstur og gerð rekstraráætlana. Auk þess sinnir LBM sþómun, bókhaldi og fleim fyrir aðila innan héraðs sem utan, bændursem aðra. Félagið sinnir búfjáreftirliti í Skagafirði og á Siglufirði. Náttúrustofa Norðurlands vestra [3] www.nnv.is NATTURUSTOFA ____ Norðurlands vestra zUUU Náttú rustofa ^ Norðurlands vestra var stofnuð árið og er staðsett á Sauðárkróki. Um hlutverk stofunnar er kveðið á í lögum um Náttúm- fræðistofnun íslands og náttúmstofur frá árinu 1992 með síðari breytingum. Starfssvið Náttúmstofu Norðurlands vestra er margþætt en vísindalegar náttúmrannsóknir, gagnasöfnun um náttúmfar, vöktun á náttúm landsins, ráðgjöf á verksviðum stofunnar og fræðsla em meðal helstu verkefna hennar. Bæði jarðfræði- og Iíffræðirannsóknir eru stundaðar á stofunni.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.