Feykir


Feykir - 05.11.2009, Qupperneq 8

Feykir - 05.11.2009, Qupperneq 8
8 Feykir 41/2009 Matthildur Kemp Guðnadóttir prófaói aó ganga í skoskan barnaskóla Ævintýri í Skotlandi Ég heiti Matthildur Kemp Guðnadóttir og er í 6. bekk í Árskóla. Mamma mín, Kristbjörg Kemp, er kennari þar. Mamma hafði lengi hugsað sér að fara til Skotlands og heimsækja skóla sem Árskóli hefur átt í samstarfi við í nokkur ár. Skólinn heitir Balwearie High School og er í bænum Kirkcaldy. Ég varð mjög glöð þegar mamma bauð mér að koma með sér. Hún var búin að fá leyfi til að ég mætti vera í skólanum þann tíma sem hún var að kynna sér störf í enskudeildinni. í Balwearie eru 1700 nemendur á aldrinum 11-18 ára. Ég var boðin velkomin sem fyrsta árs nemi í vikutíma. Ævintýrið hófst laugar- daginn 3. október. Flugið var eldsnemma um morguninn. Ég var ekkert þreytt vegna þess að ég svaf eins og steinn þrátt fyrir að ég væri að drepast úr spenningi. Við flugum íyrst til Manchester á Englandi og síðan til Glasgow. Við ætluðum að vera þar í tvo daga. Það skemmtilegasta sem við gerðum í Glasgow var að fara í mjög merkilegt safn sem heitir Kelvingrove Art Museum. Þar sáum við mörg listaverk. Mér fannst safnið mjög flott. Á mánu- dagsmorgni sótti Gordon Mackenzie okkur á hótelið, en hann er skólastjórinn í Balwearie. Við könnumst vel við hann því hann hefur komið fjórum sinnum til Sauðárkróks og heimsótt Árskóla. Við keyrðum með Gordon til Kirkcaldy. Á leiðinni sá ég ótrúlega flotta rauða brú. Yfir hana keyra bara lestar. Ég horfði í kringum mig alla leiðina og spjallaði við Gordon. Mér gekk bara vel að skilja hann og hann skildi mig ágætlega. Þegar við komum í skólann bauð Gordon okkur í te á skrifstofunni sinni sem er mjög sérstök. Hann er ekkert alltaf að taka til. Hann sagði mér hvað ég ætti að gera í skólanum þessa viku sem ég væri þar og lét mig hafa stundatöflu. Hann kynnti mig fyrir stelpu sem heitir Claire JvUttWUuv w gov<tou stóUstjóvA. ClAivt Hb J)Wh Ci l«« HlJ : MAmUurMe5^píFultikA^ JvUt-tkiUuv Mtð ^tAY^fólktKU Á ^krifstofunKÍ 'pAullnt OQ -HavY^. I JvútTkiUuv 03 ui5 ttkiUuV í tuskutÍMA. og er 12 ára. Hún hafði verið beðin um að fylgja mér eins og skugginn ;). Ég áttaði mig strax á því að við yrðum góðar vinkonur því hún er hress stelpa sem talar mikið, eins og ég. Fyrst fór ég í tónmennt (music). Þar fékk ég að spila á hljóðfæri sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir. Ég fékk gestakort í matsalinn og gat borðað þar alla daga. í hádegismatnum geta krakkarnir valið af hlaðborði hvað þeir vilja borða. Mér fannst skrítið að krakkarnir mega vera með nammi og gos í skólanum og geta keypt það í sjálfsölum. Tímarnir sem ég var í fyrsta daginn gengu vel. Ég fór í ensku til Mr. Burnett. Hann varð strax uppáhalds kennarinn minn. Hann skildi svo vel að ég talaði ekki fullkomna ensku. Mér gekk samt vel að skilja krakkana og kennarana. I stærðfræðinni komst ég að því að ég var komin töluvert á undan. Ég var mjög ánægð með að geta tekið þátt í samtölum krakk- anna og ég var til dæmis oft að vinna í hóp með nokkrum krökkum og skildi enskuna vel þegar hún var töluð hægt. Einn daginn ræddum við sögu sem heitir „Grandad's gifts“ en ég hafði ekki lesið söguna þannig að ég hlustaði bara á krakkana tala um hana. Ég væri alveg til í að lesa þessa sögu einhvern tímann. í náttúrufræðitíma (science) skoðuðum við í smásjá alls konar litlar lífverur. Við skoðuðum einnig kók, kaffi, te og pensillín. Skólaritarinn í Balwearie, hún Pauline, er alveg eins og Heiða skólaritari í Árskóla. Hún bjargar öllu. Ég átti til dæmis að mæta í íþróttir (PE) einn daginn. Ég var með íþróttaföt og skó en ekkert handklæði. Pauline sagði að það væri nú allt í lagi. Hún myndi redda handklæði fyrir mig. Krakkarnir í Balwearie læra þýsku. Ég gat nú lítið í henni og ákvað að vinna áfram í stærðfræðinni á meðan. Það er skólabúningur í skólanum, svartar buxur eða pils, hvítar skyrtur eða bolir og rauð-röndótt bindi. Ég vildi að sjálfsögðu eiga skólabindi svo við mamma röltum í bæinn og keyptum eitt slíkt handa mér. Á föstudagsmorgni fór ég í myndatöku sem var fyrir alla fyrsta árs nema og ég var auðvitað í skólabúningnum. Ég fékk mynd af mér, skæl- brosandi með rautt bindi og svo eina mynd af mér og Claire. Ég og mamma dvöldum í tvo daga í St. Andrews. Þar er frægur golfvöllur, Old Course og mér fannst hann mjög flottur. Gordon keyrði með okkur að vellinum og svo eftir vegi sem lá í gegnum 18. braut. Mér finnst mjög gaman að hafa komið þarna. I St. Andrews fór ég í bíó með mömmu og við sáum “Fame“. Við vorum tvær í bíósalnum og höfðum það bara gott, skemmtum okkur konung- lega. í lok ferðalagsins dvöldum við mamma þrjá daga í Edinborg. Hún er falleg borg. Þegar ég kom út úr lestinni þar og sá sekkjapípuleikara spila á Princes Street sagði ég við mömmu „vá, þetta er alvörunni“. í kastalanum í Edinborg sá ég marga merkilega hluti, t.d. kórónu, fallbyssur og riddara. Ferðin til Skotlands og dvölin í Balwearie High School er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Ég kynntist fullt af krökkum sem ég mun aldrei gleyma. Ég lærði töluvert í ensku og ég sá marga fallega staði. Ég held að Balwearie High School sé næst besti skóli í heimi.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.