Feykir - 05.11.2009, Blaðsíða 11
41/2009 Feykir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Björgvin og Gyða kokka
A la-Bjöggi og
eftirlæti Gyðu
Aö þessu sinni eru þad Björgvin Jónsson og Gyða Mjöll
Níelsdóttir Waage sem gefa okkur innsýn í matarsmekk
unga fólksins.
Þar er þorskurinn í aðalhlutverki og eftirrétturinn kallar fram
vatn í munninn. Þau Björgvin og Gyða skora á Pétur Björnsson og
Gógó Haraldsdóttur á Sauðárkróki að koma með næstu
uppskrift.
AÐALRETTUR
A la-Bjöggi
2 meðalstórflök afþorski
400-500gr. rœkjur
Krydd: Kjöt oggrill,
hvítlauksduft og Season All
300-400gr. sveppir
2 meðalstórar paprikur
(rauðar)
1 bréfbacon
lA bréf pepperóní
Púrrulaukur eftir smekk
1 poki afrifnum osti
Sósa:
2 mexíkóostur
¥t l. rjómi
Aðferð: Byrjið á að smyrja
eldfastmótið með olíu.
Skerið fiskinn í bita og kryddið
þá með Season all, hvítlauksdufti
og fgöt og grill, raðið síðan
fisknum ofan í mótið, setjið hann
inn í ofn í ca. 10 mín á 200°C.
Skerið sveppina, paprikuna,
baconið og pepperóníið í bita.
Setjið rækjurnar, sveppina,
paprikuna.baconiðogpepperóníið
ofan í mótið og inn í ofhinn í ca.
15mín. á 180°C.
Á meðan mótið er í ofninum
gerið þið sósuna til. Byrjið á að
ná ykkur í pott, síðan skerið þið
mexíkóostinn í bita og setjið í
pottinn og ijómann út í og leyfið
því að bráðna á vægum hita. Passa
skal að hræra reglulega í pottinum
svo það brenni ekki við.
Þegar sósan er tilbúin setjið
hana þá varlega yfir réttinn og í
lokin setj ið þið ost yfir allan réttinn
og inn í ofn í 5 mín. á 180°C (þar
til osturinn er bráðnaður).
EFTIRRÉTTUR
Eftirlætisréttur Gyðu
1 botn púðursykurmarengs
2 pelar þeyttur rjómi
250gr.jarðarber (ein askja)
1 klasi grcen og rauð vínber
200gr. bláber
1-2 Mars súkkulaðistykki
1 -2 Snickers súkkulaðistykki
3-4 kókosbollur
Aðferð: Brytjið marengsinn (ekki
of smátt) ofan í eldfast mót.
Þeytið rjómann og setjið
saman við marengsinn.
Geymið í kæli í 2-3
klukkutíma.
Skerið súkkulaðið í litla bita
og brytjið ávextina og setið ofan
í mótið. Skerið kókosbollurnar
þvert og raðið ofan á ávextina
og súkkulaðið og setjið það inn í
ofninn á 150°C i 10-15 mín.
Verði ykkur að góðu!
Ólafur, Kristján og Inga Maria stóðu sig með miklum ágætum þrátt fyrir tap og fengu si@a af stigum - en dugar það til?
Skagfiróingar í Útsvari
Á br@ann aö sækja
Þrátt fyrir tap Skagfirðinga í Útsvarinu síðasta laugardagskvöld var þátturinn skemmtilegur á
að horfa og enn er möguleiki fyrir liðið að komast áfram á tölfræðinni. Rmm stigahæstu liðin
halda áfram keppni en lið Skagfirðinga er þriðja stigahæsta tapliðið sem stendur.
Skagfirðingum gekk ágætlega framan af og voru með forystu lengst af þegar
vendipunktur varð á keppninni við eina spurninguna . Þar var spurt um hvað
umferðarmerki táknaði þar sem mynd af tölvutákninu @ eða „att“ merkinu var á. Svarið
reyndist ekki rétt hjá Skagfirðingunum en greinilegt var að Inga María, unglingurinn í
hópnum, var með svarið en þurfti að lúffa fyrir sér eldri karlmönnum. Var greinilegt að
hún var ekki sátt við sína menn og sendi Feykir Ingu Maríu nokkrar spurningar
af því tilefni.
Heldurðu að spurningin
um „att“ merkið hafi verið
vendipunkturinn í spurninga-
keppninni?
Já ég hef trú á því að þetta
hafi breytt stöðu mála
töluvert þar sem næstu
tvær spurningar á eftir voru
einnig mjög auðveldar. Við
vorum yfir og hefðum því
verið nokkuð góð þegar
þessum lið var lokið.
Er það s@ að þú hafir vitað
svarið?
Já það er satt, ég sagði
við Kristján að þetta væri
eitthvað sem væri tengt
interneti eða samskiptum.
Ég var alls ekki sammála
þeirra hugsun en þeir voru
ekki alveg sammála mér.
Hvernig f@aðir þú upp á því?
Mér fannst þetta einstaklega
augljóst þar sem ég nota
internetið töluvert mikið.
Þetta merki sagði sig
nokkuð sjálft. Tveim dögum
fyrir keppni sagði kærastinn
minn við mig að ég ætti
nú kannski að rifja upp öll
þessi merki sem ég lærði í
bílprófmu, svo ég var búin
að skoða þau aðeins. Síðan
eru nú ekki nema tvö ár
síðan ég tók bílprófið.
Telurðu að annar hvor
drengjanna hafi l@ þig til
þess að svara spurningunni?
Já og nei, þeir voru ekki
alveg sammála mér og ég
tel að það sem ruglaði þá
var ræðan sem kom um bíla
og umferðareglur áður en
myndin kom.
Kom spurningin fl@ upp á
karlana í liðinu?
Ég er bara ekki alveg viss.
Hvern skr@ann voru þeir að
hugsa?
Eins og ég sagði áðan tel ég
að ræðan fyrir spurninguna
hafi ruglað þá í ríminu. Eða
kannski hugsuðu þeir bara
alls ekkert;). Nei djók....
Hr@ þessi spurning ógæfu-
hjólinu af stað?
Nei, nei það tel ég ekki.
Spurningarnar sem komu á
effir voru mjög þungar og
hittu kannski ekki alveg inn
á okkar þekkingu.
B@ hún enda á þátttöku ykkar
í Útsvarinu að þínu mati?
Nei alls ekki, ég vil lifa í
voninni um að við komumst
áfram á tölfræðinni. Það
er allavega ekki öll von úti
enn.
Telurðu að þátturinn hafi gl@
einhverja sem á horfðu?
Ég held það nú, stemningin
í salnum var frábær og
þetta var mjög spennandi
og skemmtileg keppni. Að
mínu mati vorum við gott
lið og áttum vel skilið að
halda áfram.
Spr@ mórall upp í liðinu eftir
útsendingu?
Nei, ekki nema góður mórall
þá. Við vorum öll sátt við
þáttinn þrátt fyrir tap og
einnig fylgdi okkur flottur
stuðningshópur að norðan.
Þetta var stórskemmtilegt
kvöld og ekkert til að sjá
eftir. Ég vil þakka þeim
kærlega fyrir gott kvöld og
vona að við fáum að vinna
aftur saman.