Feykir - 21.12.2009, Side 24
24 Feykir 48/2009
Brimnesskógar
Skógur í
Félag um endurheimt Brimnesskóga gefur fólki kost á að gefa
tré í skóginum í formi gjafabréfs i jólagjöf. Jafnframt því að
gleðja vini og vandamenn með því að eignast hlutdeild í trjám
eða trjálundi í skóginum er fólk jafnframt að styðja gott
málefni.
Gefinn er kostur á að kaupa þúsund krónur. Fyrir
gjafabréf að andvirði 3, 5 og 10 fimmþúsund krónur er hægt
að gróðursetja 50 kynbætt
birkitré sem upprunnin eru í
Geirinundarhólaskógi í Hrol-
leifsdal.
Sjálfboðaliðar á vegum
Brimnesskóga munu svo
gróðursetja trén næsta sumar
en þiggjandi gjafabréfsins
getur svo ef hann vill slegist í
hóp sjálfboðaliðanna eða
jafnvel gert ánægjulega
fjölskylduferð úr öllu saman.
Með endurheimt Brimnes-
skóga er m.a.verið að efla og
varðveita fornan menningar-
arf á vísindalegan hátt og
stuðla að aukinni menntun á
sviði sögu, náttúru og
menningar. Vonir standa til
að í framtíðinni verði endur-
heimtir Brimnesskógar til að
styrkja menningartengda
ferðaþjónustu í Skagafirði og
að í skóginum verði eftir-
sóknarverð aðstaða til útivistar
og náttúruskoðunar.
Áhugasamir geta haft
sambandi við Sölva Sveinsson
í síma 861 6715 eða netfang
solvi@verslo.is eða Stein Kára-
son í síma 896 6824, netfang
steikara@hotmail.com
Hægt er að leggja inn á
reikning hjá Brimnesskógar,
félag sem er í Arionbanka
Kringluútibúi. Bankaupplýs-
ingarnar eru þessar:
Banki 0323, Hb 13, reikningur
nr. 700706 og kennitalan er
491204 4350.
Lifandi jólamarkaóur
í Hrímnishöllinni Varmalæk
Vel heppnaður
dagur
Skagfirðingar og nærsveitamenn tóku vel við sér og fylltu um
tíma Hrímnishöllina Varmalæk en þar var á dögunum haldinn
vel heppnaður jólamarkaður. Á markaðnum bauð
handverksfólk á Norðurlandi vestra upp á afurðir sínar auk
þess sem börnin gátu skoðað húsdýr og síðan gátu allir keypt
sér kaffi og með því af kvenfélagi Lýtingsstaðarhrepps.
Að sögn Sigrúnar Indriða-
dóttur tókst markaðurinn betur
en þær konur sem að honum
stóðu höfðu nokkurn tímann
þorað að vona og seldi hand-
verksfólk frá sýslunum þremur
á Norðurlandi vestra vel af
varningi sínum auk þess sem
boðið var upp á hákarl og
kartöflur. Eins kunnu gestir vel
að meta veitingar kvenfélags-
kvenna sem voru vel útilátnar
að sveitasið og verðið var nánast
ekki neitt.
Barnakór Tónlistaskóla
Skagafjarðar kom og söng fyrir
gesti auk þess sem jólasveinar
kíktu í heimsókn en lengst af
undu börnin sér þó í bás einum
sem hafði að geyma hvolpa sem
nokkrir heppnir aðilar fengu að
taka með sér heim að degi
loknum. Aðspurð sagði Sigrún
að markaðurinn hefði gengið
vonum framar og því væri ekki
spurning um skoða vel að
endurtaka leikinn að ári.