Feykir


Feykir - 21.12.2009, Blaðsíða 25

Feykir - 21.12.2009, Blaðsíða 25
48/2009 Feykir 25 Þá er komió aó því! Maöur ársins á Norðurlandi vestra 2009 Feykir og Feykir.is standa næstu tvær vikurnar fyrir kosningu um mann ársins á Norðurlandi vestra. Líkt og undanfarin ár verður kosið á milli einstaklinga sem útvaldir aðilar hafa komið að því að útnefna. Bæði verður hægt að kjósa á Feyki.is en þar er einungis hægt að kjósa einu sinni á hverjum sólahring úr hverri ip-tölu en við viljum benda á að oft eru margar tölvur á sama heimili tengdar við sömu ip-tölu sem fylgir þá routernum. Eins verður hægt að senda okkur póst á netfangið feykir@feykir.is. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta hringt atkvæði sitt inn í síma 4557176. Hægt verður að kjósa frá hádegi 21. desember til hádegis þann 4. janúar. Úrslitin verða kynnt í fyrsta blaði ársins þann 7. desember 2010. Útnefnd eru: Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona Helga Margrét náði einstaklega góðum árangri á árinu og er byggðalagi sínu til mikils sóma. Jón Eiríksson listabóndi á Búrfelli Jón hefur málað myndir af 101 hundi en ekki eru mörg ár síðan hann málaði 365 myndir af kúm, sem Landsvirkjun eignaðist síðar. Jón var verðlaunaður af NBC, Samtökum norrænna bænda, þann 14. ágústs.l. á Hótel Sögu. Berglind Björnsdóttir kennari Berglind er ein af máttarstólpum félagslífsins á Blönduósi. Berglind skrifar á Húnahomið, er fjallkona, sér um kvennahlaupið, kennir leikÞmi, kennir í skólanum og er í þestum kómm og klúbbum sem hægt er að nefna. Guðmundur Valtýsson hagyróingur og bóndi Guðmundur birti á árinu í Feyki vísnaþátt númer 500. Guðmundur er vísnaaðdáandi mikill og heldur fast í gamlar hefðir varðandi braghætti og góðar vísur. Guðmundur notast ekki við tölvu heldur handskrifar hann öll handrit sem hann skilar inn í blaðið. Sarah Jane Emily Caird sjósundkona Sarah Jane, sem er starfsmaður Rsk Seafood, varð fyrst kvenna til að synda Grettissund þann 15. ágúst 2009 og synti á tímanum 3 klst.og 11 mínútum. f tilefni af þessu glæsilega afreki færði Jón E Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood hf. Söru viðurkenningarskjal frá fyrirtækinu og samstarfsfólki. Bjarni Jónsson fiskifræðingur Bjami vakti á dögunum heimsathygli fyrirtímamótauppgötvun sína og rannsóknir á stökkbreyttum hornsílum. Fjallað var um rannsókn Bjarna í Science auk þess sem hann mun fyrstu þrjá mánuði næsta árs dvelja við frekari rannsóknir við læknadeild Stanford háskóla. Bjarni Haraldsson verslunarmaóur Bjami hefur frá blautu barnsbeini staðið innan við búðarborðið í verslun Haraldar Júlíussonar en verslunin fagnaði á árinu 90 ára afmæli sínu. Sveinn Guðmundsson hrossaræktandi Sveinn hóf um miðbik 20. aldar að rækta hross en tæplega 90% allra íslenskra folalda sem fæðast hérlendis og erlendis eiga ættir að rekja til Síðu frá Sauðárkróki. Tölfræðin hefur leitt í Ijós að hún er mesta ættmóðir íslenska hrossastofnsins og er erfðahlutdeild hennar í stofninum í dag 6,6%. Óhætt er að segja að brautryðjendastarf Sveins Guðmundssonar og framlag hans til íslenskrar hrossaræktar geri hann að fremsta hrossaræktanda fyrr og síðar. Rita Didriksen kennari Félag íslenskra kennara í nýsköpunar- ogfrumkvöðlamenntveitti Ritu Didriksen viðurkenningu fyrir fyrirmyndarframboð á nýsköpunar- og frumkvöðlamennt. Þá hefur Rita verið valin og fengið Evrópustyrk, til að taka þátt í viku námsheimsókn til Svíþjóðar. Heimsóknin er til Hallands sem hefur efflingu frumkvöðlastarfs sem eitt þriggja markmiða sinna til að efla sveitarfélagið. Þuríöur Harpa Sigurðardóttir, framkvæmdastýra Þuríður Harpa hóf á árinu fyrst Norðurlandabúa stofnfrumumeðferð á Indlandi en með meðferðinni freistar Þuríður þess að fá aftur mátt þann er hún missti í hestaslysi í apríl árið 2007. Þuríður hefur bloggað um ferðalag sitt til Indlands en fyrsta ferð hennar þangað tókst vonum framar. Heiða Björk Jóhannsdóttir sjósundkona var á árinu fyrst kvenna til þess að synda Drangeyjarsund. Sundið synti Heiða Björk á tímanum 2,25 klst. Heiða Björk var einungis lítil stelpa þegar hún ákvað að þetta afrek skyldi hún vinna en hún hafði einungis stundað sjósund í tæpt ár þegar afrekið var unnið. Jólasamkeppni Húnahornsins Skreytum bæ meö Ijósum fínum Það hefur færst í aukana að fólk skreyti hús sín fyrir jólin og þá ekki síst að utan. Garðurinn er lýstur upp með ótal seríum og tré og runnar fá að njóta sín í ljósadýrð. Á Blönduósi hefur verið um nokkurra ára skeið samkeppni meðal íbúa bæjarins þar sem þeir geta kosið um fallega jólaskreytt hús, hvort sem það er íbúðarhús eða fyrirtækjahús. Húnahornið hefur staðið fyrir samkeppninni um Jólahúsið 2009 verður hún með svipuðu sniði og síðustu ár. Til að taka þátt er tilnefning send inn í gegnum rafrænan atkvæðaseðil sem staðsettur er á forsíðu Húnahornsins undir liðnum Jólatilnefningar. Hverjum og einum er heimilt að senda inn eina tilnefningu. Það hús sem fær flestar tilnefningar verður valið Jólahús ársins 2009 á Blönduósi. Samkeppnin stendur til miðnættis 30. desember og verða úrslit gerð kunn á síðasta degi ársins. Feykir var á ferð á Blönduósi fyrir stuttu og tók nokkrar myndir af jólaskreytingum en tekið skal fram að ekki var allur bærinn kannaður en myndirnar gefa ákveðna visbendingu um skreytingargleði Blönduósbúa.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.