Hagskýrslur - Hagtöluárbækur - 01.01.1931, Qupperneq 7
Formáli.
Avant-propos.
Lengi hefi ég haft í huga að láta Hagstofuna gefa út árbók í lík-
ingu við talfræðiárbækur annara landa. Er þar birtur útdráttur úr þeim
talfræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess að farið sé
langt út í einstök atriði. Þykja slíkar bækur mjög handhægar að grípa
til, tii þess að fá fljótlega yfirlit um ýms efni, sem annars verður oft að
gera töluverða leit að. Oft nægja þær upplýsingar, sem þar fást, en
annars verða menn auðvitað að grafa dýpra og leita í sérskýrslur eða
önnur rit eða til sérfróðra manna eða stofnana. En ýmsar ástæður hafa
valdið því, að ekki hefur orðið úr því fyr en nú, að Hagstofan gæfi út slíka
árbók, Er engan veginn hlaupið að því að setja slíka bók saman í byrjun,
enda hefur þetta hefti verið í smíðum næstum heilt ár. Voru fyrstu ark-
irnar prentaðar síðastliðið vor og eru því nú fyrir hendi nýrri upplýsingar
um sumt, sem þar er (svo sem mannfjöldann). En þegar byrjunarerfið-
leikarnir eru yfirunnir, ætti prentun árbókarinnar síðar að geta tekið
miklu minni tíma, svo að hún gæti flutt þær nýjustu upplýsingar, sem
handbærar eru, þegar hún kemur út.
Auk þeirra upplýsinga, sem í riti þessu eru, um íslenzk efni, eru
aftast í bókinni allmargar töflur með alþjóðlegum yfirlitum. Eru yfirlit
þessi sameiginleg í talfræðiárbókum allra Norðurlanda og gerðar í sam-
vinnu af hagstofum allra landanna, þannig að þær skifta verkum með sér
og semja hver um sig yfirlit um ákveðin efni. Hagstofa Islands tekur
litilsháttar þátt í þeirri samvinnu og hefur því leyfi til að birta þessar
töflur í árbók sinni. Er íslands þar hvarvetna getið, þar sem nothæfar
upplýsingar um það liggja fyrir, og geta menn þar af fengið nokkra hug-
mynd um, hvað íslenzku tölurnar gilda á alþjóðamælikvarða eða í saman-
burði við önnur lönd, auk þess sem yfirlit þessi veita allmikla fræðslu
um önnur lönd, sem ekki er hlaupið að að ná í annarsstaðar, og vænti
ég því, að þau verði mörgum kærkomin. Af yfirlitum þessum, sem hér
birtast, hefur Det Statiske Departement í Danmörku gert þau, sem fölu-
merkt eru 126, 129 og 134, Det Statistiske Centralbyrá í Noregi 130,
132, 133, 135, 136 og 142, Statistiska Centralbyrán í Svíþjóð 124, 125,
128, 131, 137, 138 og 139, Statistiska Centralbyran í Finniandi 127,
140 og 143 og Hagstofa íslands 141.