Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1938, Page 12
10
Alþingiskosningar 1937
hverju kjördæmi á landinu, og í 1. yfirliti (bls. 7) sést, hve margir það
hafa verið í samanburði við þá, sem atkvæði greiddu í hverju kjördæmi.
Tiltölulega flestir hafa það verið í Austur-Húnavatnssýslu (3.9% af
öllum, sem atkvæði greiddu).
4. Bréfleg atkvæði.
Votes par lettre.
Sjómenn og aðrir, sem staddir eru utan þess hrepps eða kaupstaðar,
þar sem þeir standa á kjörskrá, þá er kosning fer fram, og ekki neyta
hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað í sama
kjördæmi, mega greiða atkvæði bréflega, þannig að þeir sendi hrepp-
stjóra eða bæjarfógeta á þeim stað, þar sem þeir standa á kjörskrá, fyrir
kjörfund atkvæðaseðil í bréfi. Við kosningarnar vorið 1937 neyttu 7193
menn þess réttar að kjósa bréflega, eða 12.2% af öllum þeim, sem at-
kvæði greiddu. Við undanfarandi kosningar hefur þetta hlutfall verið:
1916 1931 7.í °/o
1919 2.6 1933 9.3 —
1923 13.0 — 1934 7.9 -
1927 1937 12.2
Bréfleg atkvæðagreiðsla var langmest notuð árið 1923, því að þá
var þeim leyft að kjósa bréílega, sem ekki voru ferðafærir á kjörstað
sakir elli eða vanheilsu, en með því að menn voru hræddir um, að þessar
heimakosningar hefðu verið misnotaðar, var þessi heimild aftur úr lög-
um numin árið 1924. Langmestur hluti bréflegu atkvæðanna 1923 staf-
aði af heimakosningunum. Bréfleg atkvæði vegna fjarveru voru þá í
hæsta lagi tæpl. 4%. Bréfleg atkvæðagreiðsla af þeim ástæðum liefur farið
vaxandi síðan, einkum í kaupstöðum, enda er það nú orðin venja þar, að
þeir, sem búast við að verða fjarverandi á kjördegi, kjósa bréflega áður
en þeir fara burtu. Við kosningarnar 1937 voru bréfleg atkvæði miklu
fleiri heldur en nokkru sinni áður, og tiltölulega litlu færri heldur en við
kosningarnar árið 1923.
I töflu I (bls. 19) er sýnt, hve mörg bréfleg atkvæði voru greidd i
hverju kjördæmi við kosningarnar 1937, og í töflu III (bls. 27—34),
hvernig þau skiftast niður á hreppana. En í 1. yfirliti (bls. 7) er saman-
burður á því, hve mörg koma á hvert 100 atkvæða í hverju kjördæmi.
Hæstur er ísafjarðarkaupstaður. Þar hefur nærri 44 allra greiddra at-
kvæða (24.i%) verið bréfleg atkvæði. Litlu færri hafa þau verið í Hafn-
arfirði (22.o%). Þar næst eru Vestmannaeyjar (18.i%) og Borgarfjarðar-
sýsla (16.s).