Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1938, Qupperneq 12

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1938, Qupperneq 12
10 Alþingiskosningar 1937 hverju kjördæmi á landinu, og í 1. yfirliti (bls. 7) sést, hve margir það hafa verið í samanburði við þá, sem atkvæði greiddu í hverju kjördæmi. Tiltölulega flestir hafa það verið í Austur-Húnavatnssýslu (3.9% af öllum, sem atkvæði greiddu). 4. Bréfleg atkvæði. Votes par lettre. Sjómenn og aðrir, sem staddir eru utan þess hrepps eða kaupstaðar, þar sem þeir standa á kjörskrá, þá er kosning fer fram, og ekki neyta hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað í sama kjördæmi, mega greiða atkvæði bréflega, þannig að þeir sendi hrepp- stjóra eða bæjarfógeta á þeim stað, þar sem þeir standa á kjörskrá, fyrir kjörfund atkvæðaseðil í bréfi. Við kosningarnar vorið 1937 neyttu 7193 menn þess réttar að kjósa bréflega, eða 12.2% af öllum þeim, sem at- kvæði greiddu. Við undanfarandi kosningar hefur þetta hlutfall verið: 1916 1931 7.í °/o 1919 2.6 1933 9.3 — 1923 13.0 — 1934 7.9 - 1927 1937 12.2 Bréfleg atkvæðagreiðsla var langmest notuð árið 1923, því að þá var þeim leyft að kjósa bréílega, sem ekki voru ferðafærir á kjörstað sakir elli eða vanheilsu, en með því að menn voru hræddir um, að þessar heimakosningar hefðu verið misnotaðar, var þessi heimild aftur úr lög- um numin árið 1924. Langmestur hluti bréflegu atkvæðanna 1923 staf- aði af heimakosningunum. Bréfleg atkvæði vegna fjarveru voru þá í hæsta lagi tæpl. 4%. Bréfleg atkvæðagreiðsla af þeim ástæðum liefur farið vaxandi síðan, einkum í kaupstöðum, enda er það nú orðin venja þar, að þeir, sem búast við að verða fjarverandi á kjördegi, kjósa bréflega áður en þeir fara burtu. Við kosningarnar 1937 voru bréfleg atkvæði miklu fleiri heldur en nokkru sinni áður, og tiltölulega litlu færri heldur en við kosningarnar árið 1923. I töflu I (bls. 19) er sýnt, hve mörg bréfleg atkvæði voru greidd i hverju kjördæmi við kosningarnar 1937, og í töflu III (bls. 27—34), hvernig þau skiftast niður á hreppana. En í 1. yfirliti (bls. 7) er saman- burður á því, hve mörg koma á hvert 100 atkvæða í hverju kjördæmi. Hæstur er ísafjarðarkaupstaður. Þar hefur nærri 44 allra greiddra at- kvæða (24.i%) verið bréfleg atkvæði. Litlu færri hafa þau verið í Hafn- arfirði (22.o%). Þar næst eru Vestmannaeyjar (18.i%) og Borgarfjarðar- sýsla (16.s).

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.