Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1938, Side 19
Alþingiskosningar 1937
17
fallið í hverju kjördæmi, er sýnt i töflu III (bls. 27—34). En þegar lands-
kjörstjórn hafa borist skýrslur um kosningarnar í kjördæmunum, skal
hún úthluta allt að 11 uppbótarþingsætum til jöfnunar milli þingflokka,
þannig, að hver þeirra fái þingsæti í sem fylstu samræmi við atkvæðatölu
sína við kosningarnar. En þingflokkur telst í þessu sambandi aðeins sá
flokkur, sein komið hefur að þingmanni í einhverju kjördæmi. Við þessar
kosningar komu Þjóðernissinnar ekki þingmanni að í kjördæmi og komu
því ekki til greina við úthlulun uppbótarþingsæta. Atkvæði, sem falla á
frambjóðendur utan flokka, koma heldur ekki til greina við úthlutun
uppbótarþingsæta.
Atkvæðatala þeirra 5 flokka, sem fengu þingmenn kosna í kjördæm-
um, og tala hinna kosnu þingmanna þeirra, var þessi:
Kosnir Meöalial
Alkvæ&i þingmenn á þingmann
Sjálfstœðisflokkur .......... 24 132 12 2 011
Framsóknarflokkur.......... 14 556^/a 19 76625/ico
Alþýðuflokkur ............... 11 084*/2 5 2 21646/oo
Kommúnistaflokkur ............ 4 932’/2 1 4 9321 /2
llændaflokkur ................ 3 578*/2 1 3 578'/o
Lægsta meðaltalið telst hlutfallstala kosningarinnar og miðast úthlut-
un uppbótarþingsæta við hana. Hve mörg upphótarþingsæti hver þing-
flokkur skuli hljóta, finst með því að deila í atkvæðatölu hans með tölu
þingmanna flokksins kosinna í kjördæmum, fyrst að viðbættum 1, síðan
2, þá 3 o. s. frv., uns síðustu útkomurnar geta á þennan hátt ekki orðið
jafnari hlutfallstölunni. IJpphótarþingsadunum er nú úthlutað til þing-
flokkanna eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta upp-
bótarþingsætið fellur til þess þingflokks, sem hæsta á útkomuna, annað
til þess, sem á hana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð útkomutalnanna,
uns eitt uppbótarliingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þó er hér á gerð
sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþingsætum, hversu
mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem
mestum jöfnuði við hlutfallstöluna fyrir alla þingflokka. í töflu IV A
(bls. 35) er sýnt, hvernig uppbótarþingsætum hefur verið úthlutað til
flokkanna við kosningarnar 1937, og jafnframt sýnt, hvernig úthlutun-
in hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að úthluta uppbótarþingsæt-
um þangað til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við Framsóknar-
flokkinn.
Af þeim 11 uppbótarþingsætum, sem úthlutað var 1937, hlaut Sjálf-
stæðisflokkurinn 5, Alþýðuflokkurinn 3, Kommúnistaflokkurinn 2 og
Bændaflokkurinn 1. Var þá þingmannatala þessara flokka og meðaltal
atkvæða á hvern þingmann, svo sein hér segir:
3