Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1938, Blaðsíða 19

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1938, Blaðsíða 19
Alþingiskosningar 1937 17 fallið í hverju kjördæmi, er sýnt i töflu III (bls. 27—34). En þegar lands- kjörstjórn hafa borist skýrslur um kosningarnar í kjördæmunum, skal hún úthluta allt að 11 uppbótarþingsætum til jöfnunar milli þingflokka, þannig, að hver þeirra fái þingsæti í sem fylstu samræmi við atkvæðatölu sína við kosningarnar. En þingflokkur telst í þessu sambandi aðeins sá flokkur, sein komið hefur að þingmanni í einhverju kjördæmi. Við þessar kosningar komu Þjóðernissinnar ekki þingmanni að í kjördæmi og komu því ekki til greina við úthlulun uppbótarþingsæta. Atkvæði, sem falla á frambjóðendur utan flokka, koma heldur ekki til greina við úthlutun uppbótarþingsæta. Atkvæðatala þeirra 5 flokka, sem fengu þingmenn kosna í kjördæm- um, og tala hinna kosnu þingmanna þeirra, var þessi: Kosnir Meöalial Alkvæ&i þingmenn á þingmann Sjálfstœðisflokkur .......... 24 132 12 2 011 Framsóknarflokkur.......... 14 556^/a 19 76625/ico Alþýðuflokkur ............... 11 084*/2 5 2 21646/oo Kommúnistaflokkur ............ 4 932’/2 1 4 9321 /2 llændaflokkur ................ 3 578*/2 1 3 578'/o Lægsta meðaltalið telst hlutfallstala kosningarinnar og miðast úthlut- un uppbótarþingsæta við hana. Hve mörg upphótarþingsæti hver þing- flokkur skuli hljóta, finst með því að deila í atkvæðatölu hans með tölu þingmanna flokksins kosinna í kjördæmum, fyrst að viðbættum 1, síðan 2, þá 3 o. s. frv., uns síðustu útkomurnar geta á þennan hátt ekki orðið jafnari hlutfallstölunni. IJpphótarþingsadunum er nú úthlutað til þing- flokkanna eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta upp- bótarþingsætið fellur til þess þingflokks, sem hæsta á útkomuna, annað til þess, sem á hana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð útkomutalnanna, uns eitt uppbótarliingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þó er hér á gerð sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþingsætum, hversu mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem mestum jöfnuði við hlutfallstöluna fyrir alla þingflokka. í töflu IV A (bls. 35) er sýnt, hvernig uppbótarþingsætum hefur verið úthlutað til flokkanna við kosningarnar 1937, og jafnframt sýnt, hvernig úthlutun- in hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að úthluta uppbótarþingsæt- um þangað til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við Framsóknar- flokkinn. Af þeim 11 uppbótarþingsætum, sem úthlutað var 1937, hlaut Sjálf- stæðisflokkurinn 5, Alþýðuflokkurinn 3, Kommúnistaflokkurinn 2 og Bændaflokkurinn 1. Var þá þingmannatala þessara flokka og meðaltal atkvæða á hvern þingmann, svo sein hér segir: 3

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.