Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1938, Síða 20
18
Alþlngiskosningar 1937
Framsóknarflokkur
Sjálfstæðisflokkur . .
Alþýðuflokkur......
Kommúnistaflokkur
Uændaflokkur.......
MeQalta! atkvæða
Þingmenn á þingmann
19 7G 625/i90
17 1 419®/i7
8 1 38546/so
3 1 G446/so
2 1 7895/ao
Ef halda hefði átt ál'rara að úthluta uppbótarþingsætum þangað til
fenginn væri sem mestur jöfnuður fyrir alla þingflokka, þá hefði (eins
og sjá má á töflu IV A) orðið að úthluta 27 þingsætum í viðbót, eða alls
38 uppbótarþingsætum, þ. e. jafnmörgum og þingmenn voru kosnir í kjör-
dæmunum. Þingmannatalan hefði þá orðið 7(5 alls. Þar af hefði Sjálfstæð-
isflokkurinn haft 32 þingmenn, Framsóknarflokkurinn 19, Alþýðuflokk-
urinn 15, Kommúnistaflokkurinn (5 og Bændaflokkurinn 4.
Til þess að finna, hverjir frambjóðendur þingflokks, sem ekki hafa
náð kosningu í kjördæmum, skuli fá uppbótarþingsæti, er farið aðallega
eftir persónulegri atkvæðatölu þeirra í kjördæmunum, en j)ó getur þing-
flokkurinn einnig haft nokkur áhrif á það með því að senda landskjör-
stjórn skrá yfir frambjóðendur flokksins í þeirri röð, er flokkurinn ósk-
ar, að þeir hljóti uppbótarþingsæti. Ekki koma til greina sem uppbótar-
þingmenn fyrir sama flokk fleiri en einn frambjóðandi í kjördæmi, og
er það sá, sem hæsta hefur persónulega atkvæðatölu, ef um fleiri en einn
er að gera. Frambjóðendum hvers flokks, sem til greina getti komið sem
uppbótarþingmenn, raðar landskjörstjórn sumpart heinlínis eftir at-
kvæðatölu þeirra, sumart eftir atkvæðatölunni í hlutfalli við gild atkvæði
og sumpart eftir óskum hlutaðeigandi þingflokks. Efstur verður sá, sem
hefur hæsta atkvæðatölu, næstefstur sá, sem að honum frágengnum, hefur
hæsta atkvæðatölu í hlutfalli við gild atkvæði í kjördæminu, þriðji sá,
sem þingflokkurinn hefur sett efstan á raðaðan landslista, fjórði sá, sem
hefur hæsta atkvæðatölu þeirra, sem eftir eru, fimti, sem hefur hana hlut-
fallslega hæsta, sjötti sá, sem er næstefstur á röðuðum landslista o. s. frv.
Eftir þessari röð eru svo valdir uppbótarþinginenn flokksins. í töflu IV
B. bls. 35—3(5), er sýnt, hvernig frambjóðendum Alþýðuflokksins, Bænda-
flokksins, Kommúnistaflokksins og Sjálfstæðisflokksins var raðað að
jiessu leyti.
í töflu IV C. (bls. 37), er skýrt frá, hvaða frambjóðendur hlutu upp-
bótarþingsætin og hverjir urðu varamenn.