Morgunblaðið - 06.08.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.08.2015, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2015 ÍÞRÓTTIR Pepsi-deildin Fjölnismenn skelltu KR-ingum, Leiknismenn unnu sinn fyrsta sigur síðan í maí þegar Stjarnan kom í heimsókn, og Ásmundur Arnarsson beið lægri hlut gegn gömlu lærisveinunum. 2,3,4 Íþróttir mbl.is Í KAPLAKRIKA Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Leikmenn FH höfðu svo sannarlega ástæðu til að fagna eftir að að Þór- oddur Hjaltalín blés lokaflautið í leik liðsins gegn Val í Kaplakrika í gær. Þeir fögnuðu sætum sigri gegn keppinautum í toppbaráttu, erki- óvinirnir í KR töpuðu og Íslands- meistarar Stjörnunnar sem hömp- uðu Íslandsmeistaratitlinum í Krikanum í fyrra biðu einnig lægri hlut. ,,Mér fannst liðið heilsteypt í dag og við náðum að landa mjög góðum sigri og í ofanálag ná þriggja stiga forskoti á toppnum. Mér hefur fundist vera stígandi í leik okkar eftir Evrópukeppnina og þetta lítur betur og betur út hjá okkur. Við vorum þéttir fyrir, gáfum ekki mörg færi á okkur og þeir hlutir sem við lögðum upp fyrir leikinn gengu nokkurn veginn upp,“ sagði Pétur Viðarsson miðvörðurinn sterki í liði FH við Morgunblaðið eftir leikinn. Bjarni Þór Viðarsson reyndist hetja FH-inga en hann skoraði sig- urmarkið með skalla og þetta mark reyndist heldur betur tímamóta- mark því markið var hið 1.000. sem FH skorar í efstu deild. Leikurinn var annars jafn og tví- sýnn. Það var greinilegt að liðin báru virðingu hvort fyrir öðru og leikurinn einkenndist töluvert af stöðubaráttu og varfærni á báða bóga. Það var ekki mikið um færi og ekki hægt að segja að boðið hafi verið upp á neina flugeldasýningu en FH-liðið er þekkt fyrir að refsa mótherjum sínum og það gerðu þeir þegar Bjarni hafði betur í baráttu við Ingvar Þór Kale í háloftunum og skallaði boltann í autt markið sem reyndist sigurmarkið í leiknum. Bjarni Þór var fremstur á meðal jafninga hjá FH-ingum og spilaði líklega sinn besta leik í sumar. FH- ingar náðu að halda Patrick Ped- ersen og Kristni Frey Sigurðssyni í skefjum og fyrir vikið vantaði meira bit í Valsliðið á síðasta þriðjungi vallarins. FH-ingar eru komnir á kunnulegar slóðir og ljóst má vera að þeir verða í baráttu um titilinn eftirsótta þar til yfir lýkur. Þetta var hins vegar annar tapleikur Valsmanna í röð eftir frábært gengi og spurning hvort strákarnir hans Óla Jó séu að gefa eftir í toppbar- áttunni. Gott kvöld fyrir FH  Bjarni Þór reyndist hetja FH-inga sem náðu þrigga stiga forskoti á toppnum  Bjarni skoraði 1.000 mark FH í efstu deild  Annað tap Valsmanna í röð Kaplakrikavöllur, Pepsi-deild karla, 14. umferð, miðvikudag 5. ágúst 2015. Skilyrði: Hægur vindur, hálfskýjað og 16 stiga hiti. Völlurinn lítur afar vel út. Topp aðstæður í alla staði. Skot: FH 6 (5) – Valur 5 (2). Horn: FH 1 – Valur 2. FH: (4-3-3) Mark: Róbert Örn Ósk- arsson. Vörn: Jonathan Hendrickx (Jón Ragnar Jónsson 61), Kassim Doumbia, Pétur Viðarsson, Böðvar Böðvarsson. Miðja: Bjarni Þór Við- arsson, Davíð Þór Viðarsson, Emil Pálsson. Sókn: Jérémy Serwy (Þór- arinn Ingi Valdimarsson 46), Atli Við- ar Björnsson (Kristján Flóki Finn- bogason 82), Atli Guðnason. Valur: (4-3-3) Mark: Ingvar Þór Kale. Vörn: Baldvin Sturluson, Thomas Christensen, Orri S. Ómarsson, Bjarni Ólafur Eiríksson. Miðja: Hauk- ur Páll Sigurðsson, Mathias Schlie, Kristinn Freyr Sigurðsson (Andri Adolphsson 88). Sókn: Kristinn Ingi Halldórsson, Patrick Pedersen, Sig- urður Egill Lárusson (Emil Atlason 75). Dómari: Þóroddur Hjaltalín – 7 Áhorfendur: 1.907. FH – Valur 2:1 Haraldur Frank- lín Magnús úr GR deilir efsta sæt- inu eftir fyrsta hring á Evrópu- meistaramóti einstaklinga sem hófst í Slóvakíu í gær. Haraldur tapaði ekki höggi á hringnum, fékk átta fugla og spil- aði alls á 64 höggum. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, lék á 67 höggum og er í 13. sæti ásamt fleiri kylfingum, en hann lék síðari níu holurnar á 29 höggum þar sem hann fékk meðal annars tvo erni. Axel Bóasson, Keili, er höggi á eftir, fjórum undir pari. Gísli Svein- bergsson, Keili, lék á 75 höggum eða þremur yfir pari og Bjarki Pét- ursson, GB, lék á 77 höggum. Andri Þór Björnsson, GR, rekur svo lestina af íslensku kylfingunum á 79 högg- um, sjö yfir pari. Alls eru sex íslenskir kylfingar með í mótinu en aðeins stigahæstu kylfingarnir á heimslista áhuga- manna fá keppnisrétt á þessu móti og er þetta metfjöldi hjá Íslend- ingum. yrkill@mbl.is Haraldur Franklín Magnús Haraldur efstur ytra Morgunblaðið/Þórður Aðþrengdur Framherjinn Patrick Pedersen reynir hér að komast framhjá Böðvari Böðvarssyni og Pétri Viðarssyni í vörn FH-inga í Kaplakrika í gær. Hann mátti ekki við margnum frekar en aðrir Valsmenn og í fjarska fylgist fyrirliðinn Davíð Þór Viðarsson grannt með gangi mála í baráttu sinna manna. Birkir Bjarnason opnaði marka- reikning sinn fyrir svissnesku meistarana í Bas- el þegar liðið tryggði sér sæti í umspili um þátt- töku í riðla- keppni Meist- aradeildarinnar í gærkvöldi. Birk- ir skoraði eina markið í 1:0 sigri á Lech Poznan en Basel vann einvígið samanlagt 4:1. Kári Árnason var í vörn Malmö sem komst áfram á ótrúlegan hátt eftir 3:0 sigur á Salzburg. Malmö tapaði fyrri leiknum 2:0 en fór áfram, 3:2 samanlagt. yrkill@mbl.is Fyrsta mark Birkis – Kári kom til baka Birkir Bjarnason 1:0 Atli Viðar Björnsson45. fékk sendingu frá Hendrickx, lék á varnarmann og skoraði með föstu skoti. 1:1 Sigurður Egill Lárusson69. fékk stungusendingu frá Pedersen innfyrir vörn FH, lék á Róbert í markinu og skoraði. 2:1 Bjarni Þór Viðarsson 81.skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Þórarni Inga. I Gul spjöld:Schlie (Val) 38. (brot), Haukur Páll (Val) 57. (brot), Emil (FH) 74. (brot). I Rauð spjöld: Engin. M Pétur Viðarsson (FH) Davíð Þór Viðarsson (FH) Bjarni Þór Viðarsson (FH) Atli Guðnason (FH) Atli Viðar Björnsson (FH) Thomas Christensen (Val) Bjarni Ó. Eiríksson (Val) Patrick Pedersen (Val) Sigurður E. Lárusson (Val)  Örn Clausen hafnaði á þessum degi í 12. sæti í tugþraut Ólympíuleikunum í London árið 1948 og hlaut 6.444 stig í keppninni.  Örn fæddist árið 1928 og lést 2008. Hann var Reykvíkingur og keppti fyrir ÍR. Leikarnir í London voru þeir einu sem Örn tók þátt í. Örn var í hópi bestu tugþrautarmanna heims um tíma og átti sinn þátt í gríðarlegum íþrótta- áhuga landsmanna í kringum 1950. Það ár hlaut hann silfurverðlaun í tugþraut á EM í Brussell. Örn átti stóran þátt í fræknum sigri Íslendinga í landskeppni við Dani og Norðmenn í Osló 1951. Örn setti Norðurlandamet í tugþraut og fjölda Íslandsmeta í frjálsum íþróttum. ÍÞRÓTTA- MAÐUR- DAGSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.