Morgunblaðið - 06.08.2015, Side 3

Morgunblaðið - 06.08.2015, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2015 Morgunblaðið/Eva Björk Hjarta Bergsveinn Ólafsson, fyrirliði Fjölnismanna, fór fremstur í flokki í fagnaðarlátunum eftir sigurinn á KR í gærkvöldi og sýndi áhorfendum þakklæti sitt. Í EYJUM Arnar Gauti Grettisson sport@mbl.is Fylkir vann svokallaðan „iðn- aðarsigur“ á ÍBV í gær í Vest- mannaeyjum þegar liðin mættust í fyrsta leik 14. umferðar Pepsi- deildar karla. Jóhannes Karl Guð- jónsson skoraði eina mark leiksins á 60. mínútu þegar hann gaf bolt- ann fyrir beint á Guðjón Orra í marki Eyjamanna sem missti bolt- ann í netið, afar klaufalegt og Guð- jón sem var búinn að vera góður í leiknum fram að þessu kostaði Eyjamenn stig í botnbaráttunni. Það sést vel á leik Fylkis hver er að þjálfa þá en í leik þeirra er bar- áttan í fyrirrúmi og ekki mikið um fótbolta. Það sást hvað best í fyrri hálfleiknum í gær en baráttan get- ur komið liðinu langt. Eyjamenn eru ekki búnir að vera sannfærandi undir stjórn Ásmundar Arnarssonar sem í gær mætti sín- um gömlu lærisveinum. Tölfræðin talar sínu máli, 3 leikir og 3 töp með markatöluna -7. Eyjamenn verða að fara að spýta í lófana ef ekki á að fara verr, því þessi spila- mennska sem þeir hafa sýnt í síð- ustu leikjum dugar ekki til að halda sér í deild þeirra bestu. Það er hins vegar nóg eftir af stigum og því nægur tími til að bjarga sér frá falli. Vinna þarf baráttuna í Eyjum Það var mikill hiti í leikmönnum og var Ásmundur Arnarsson ekki sáttur við Ívar Orra dómara leiks- ins í leikslok. Skiljanlega, hann var ekki með góð tök á leiknum og var of mikið í sviðsljósinu. „Við gáfum þeim markið, það tap- aði leiknum. Menn lögðu fullt í þetta í dag, það var mikil barátta í mannskapnum. Menn sýndu miklu meiri samvinnu og liðsheild en í undanförnum leikjum. Þannig að það er grátlegt að fá ekkert út úr því,“ sagði Ásmundur. „Við unnum baráttuna í dag og þegar þú kemur til Eyja, ég þekki það vel, og vinnur ekki baráttuna þá áttu ekki séns. Við unnum hana,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, sem var öllu kátari eftir leikinn gegn sínum gömlu lærisveinum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Einvígi Tómas Þorsteinsson og Ian Jeffs fara upp í skallabolta í leik ÍBV og Fylkis í gær. Þar virðist Tómas hafa betur líkt og Fylkismenn gerðu í leiknum. Fylkir vann á baráttunni  Sendu Eyjamenn niður í fallsæti 0:1 Jóhannes Karl Guð-jónsson 60. fékk boltann frá Oddi Inga úr aukaspyrnu vinstra megin og ætlaði að gefa fyr- ir en boltinn fór beint á Guðjón Orra í markinu sem missti hann í netið. I Gul spjöld:Hafsteinn (ÍBV) 45. (brot), Oddur (Fylki) 57. (brot), Barden (ÍBV) 60. (brot), Jóhannes (Fylki) 63. (brot), Adams (ÍBV) 86. (brot). I Rauð spjöld: Engin. M Gunnar Þorsteinsson (ÍBV) Jose Sito (ÍBV) Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylki) Ásgeir Eyþórsson (Fylki) Tonci Radovinkovic (Fylki) Hásteinsvöllur, Pepsi-deild karla, 14. umferð, miðvikudag 5. ágúst 2015. Skilyrði: Til fyrirmyndar, völlurinn flottur og smá gola. Skot: ÍBV 7 (3) – Fylkir 9 (5). Horn: ÍBV 2 – Fylkir 7. ÍBV: (4-4-2) Mark: Guðjón Orri Sig- urjónsson. Vörn: Jonathan P. Barden, Tom Even Skogsrud, Hafsteinn Briem, Jón Ingason. Miðja: Gunnar Þorsteinsson (Mario Brlecic 66), Mees Siers, José Sito Seoane. Sókn: Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Bjarni Gunnarsson (Víðir Þorvarðarson 66). Fylkir: (4-4-2) Mark: Ólafur Íshólm Ólafsson. Vörn: Andrés Már Jóhann- esson, Tonci Radovinkovic, Ásgeir Ey- þórsson, Tómas Þorsteinsson. Miðja: Jóhannes Karl Guðjónsson (Elís Rafn Björnsson 64), Ásgeir Börkur Ás- geirsson, Oddur Ingi Guðmundsson (Ásgeir Örn Arnþórsson 73). Sókn: Albert B. Ingason, Hákon Ingi Jóns- son. Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 4. Áhorfendur: 603. ÍBV– Fylkir 0:1 Eygló ÓskGúst- afsdóttir hafnaði í 23. sæti í 50 metra baksundi á heimsmeistara- mótinu í sundi í Kazan í Rússlandi í gærmorgun. Eygló Ósk synti á tímanum 28,75 sekúndum, en Ís- landsmet hennar í greininni er 28,61 sekúndur. Hún verður í eldlínunni á morgun, en þá keppir hún í 200 metra baksundi.    Aron Jóhannsson var í gær form-lega kynntur sem leikmaður Werder Bremen í þýsku 1. deildinni. Aron kemur til Werder frá AZ Alkmaar í Hollandi þar sem hann hef- ur leikið frá árinu 2013. Hann samdi við þýska félagið til fjögurra ára og mun klæðast treyju númer níu.    Hafdís Sig-urðardóttir keppti í gær í langstökki á boðs- móti í frjálsum íþróttum sem haldið var í Kaup- mannahöfn. Haf- dís stökk lengst 6,42 metra og hafnaði í öðru sæti, en hún átti önnur stökk upp á 6,41 metra, 6,34 metra og 6,15 metra. Tvö stökk hennar af sex voru ógild, en hún er að reyna við lág- mark inn á heimsmeistaramótið í Peking síðar í mánuðinum. Til þess þarf hún að stökkva 6,70 metra fyrir 10. ágúst næstkomandi, en slíkt stökk kæmi henni einnig inn á Ólympíu- leikana í Ríó að ári.    Íslenska landsliðið í knattspyrnuskipað piltum 17 ára og yngri tek- ur nú þátt á Norðurlandamóti í knatt- spyrnu sem fram fer í Svíþjóð. Ísland tapaði 3:0 fyrir heimamönnum á þriðjudag en sneri blaðinu við í gær og hafði betur gegn Bandaríkjunum, 2:0. Bæði mörkin voru sjálfsmörk og hafa bæði lið nú þrjú stig í A-riðli eftir tvo leiki. Svíar eru á toppnum með fullt hús stiga en Færeyjar eru án stiga. Ísland mætir Færeyjum á morgun.    Sara BjörkGunn- arsdóttir og Glód- ís Perla Viggós- dóttir léku báðar allan leikinn þeg- ar lið þeirra áttust við í sænsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í dag. Eskilstuna United, lið Glódísar, tók á móti Rosengård, liði Söru, og voru það gestirnir sem höfðu betur 2:1. Ro- sengård styrkti með sigrinum stöðu sína á toppi deildarinnar. Liðið er nú með 29 stig eftir 12 leiki. Eskilstuna er í öðru sæti með 25 stig eftir jafn- marga leiki.    Íslendingaliðið Aue sem leikur íþýsku 2. deildinni í handknattleik spilaði í gærkvöldi æfingaleik við tékkneska meistaraliðið Pilsen. Læri- sveinar Rúnars Sigtryggssonar áttu náðugan dag og unnu öruggan sigur, 23:10, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 13:4. Bjarki Már Gunnarsson skoraði fjögur marka Aue í leiknum og var markahæstur ásamt þeim Jan Faith og Sebastian Duschek.    Bayern München vann Real Ma-drid, 1:0, í úrslitaleik Audi- bikarsins í kvöld, en æfingamótið var leikið á heimavelli Bæjara í München. Robert Lewandowski skoraði eina mark leiksins tveimur mínútum fyrir leikslok með skoti eftir fyrirgjöf Dou- glas Costa. Tottenham vann bronsið eftir sigur á AC Milan í leiknum um þriðja sætið, 2:0. Fólk sport@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.