Morgunblaðið - 06.08.2015, Síða 4

Morgunblaðið - 06.08.2015, Síða 4
Í SMÁRANUM Kristján Jónsson kris@mbl.is Umferðin í Pepsí-deild karla í gær- kvöldi var á margan hátt mjög góð fyrir Blika. Bæði KR og Valur töp- uðu sínum leikjum og Breiðablik vann 4:0 stórsigur. Fyrir vikið fór liðið upp fyrir Val í 3. sæti deild- arinnar og er aðeins stigi á eftir KR. Eins og fyrir umferðina er liðið fjór- um stigum á eftir FH. Keflvíkingar bíða enn um sinn eft- ir öðrum sigri sínum í deildinni í sumar og sitja í botnsætinu með að- eins 5 stig. Þó enn séu átta leikir eft- ir þá finnst manni Keflvíkingar vera að falla á tíma. Þeir eru átta stigum frá 10. sætinu og þurfa væntanlega að vinna alla vega fjóra til fimm leiki til viðbótar ef þeim á að takast að halda sæti sínu í deildinni. Keflvík- ingar voru ekki jafn slæmir í fyrri hálfleik og úrslit leiksins gefa til kynna. Hólmar átti til að mynda slá- arskot í stöðunni 0:0. Eins og svo oft áður í sumar var Kristinn Jónsson magnaður fyrir Breiðablik. Ég sé eftir því að hafa ekki talið rispur hans fram kantinn. Þær hljóta að hafa verið nálægt tíu á þeim 70 mínútum sem hann spilaði og þá tel ég eingöngu þær rispur þar sem hann fékk boltann. Kristinn er ekki bara mjög fljótur heldur sendir hann nettar og nákvæmar fyrir- gjafir á fullri ferð, en fáir hafa vald á því að staðaldri. Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvívegis í leiknum og er búinn að hrista af sér hettusóttina og fylgi- kvilla hennar. „Ég þurfti að komast aftur í leikform og vissi að það myndi taka sinn tíma. Ég hélt áfram að æfa vel og mér finnst ég verða betri með hverri vikunni sem líður,“ sagði Höskuldur og hann er bjart- sýnn á framhaldið. „Allt stefnir í fjögurra liða baráttu á lokasprettinum þó enn séu átta leikir eftir. Við gátum ekki beðið um betri úrslit í kvöld en við vorum þó fyrst og fremst ákveðnir í að vinna okkar leik. Addi (Grétars þjálfari) sagðist reyndar viss um að eitthvað óvænt myndi gerast í kvöld. Það gekk eftir og hann er góður að spá fyrir um úrslit.“ Enn líf í Blikunum  Minntu á sig í titilbaráttunni  Arnar Grétars spáði fyrir um óvænta atburði í gærkvöldi  Keflvíkingar áttu sláarskot í stöðunni 0:0 Í VÍKINNI Hjörvar Ólafsson hjorvaro@mbl.is Víkingur og ÍA sættust á jafnan hlut þegar liðin mættust á Víkingsvellinum í gær. Stigið gerir ansi lítið fyrir bæði lið sem hefðu getað kvatt fallbarátt- unna endanlega með sigri. Það var þó liðunum til happs að ÍBV tapaði sínum leik í þessari umferð og staða liðanna í fallbaráttunni vænkaðist því aðeins með þessu stigi. Bæði lið höfðu verið á góðu skriði í deildinni fyrir þennan leik. Víkingur hafði unnið tvo leiki í röð og ÍA státaði af næstbesta árangrinum í deildinni í síðustu fimm umferðunum með þrjá sigra og eitt jafntefli. Víkingar léku fínan fótbolta úti á vellinum, en liðinu gekk hins vegar erf- iðlega að reka endahnútinn á laglega uppbyggðar sóknir sínar. Leikmenn Víkings komu sér oft í góða stöðu til þess að skapa færi, en náðu svo ekki að fylgja því eftir þegar á hólminn var komið. Skagamenn ógnuðu aðallega úr föst- um leikatriðum frá Jóni Vilhelm Áka- syni og úr einni slíkri skoraði Garðar Bergmann Gunnlaugsson. Þá var Ás- geir Marteinsson hættulegur í fram- línu Skagamanna þá sér í lagi þegar hann fann sér svæði milli varnar og miðju Víkings. Jafntefli var þegar allt kemur til alls sanngjörn niðurstaða. Liðin skiptust á að hafa yfirhöndina í leiknum. Víkingur var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik á meðan Skagamenn mættu grimmir til leiks í seinni hálfleikinn. Liðin eru bæði enn að daðra við fall úr efstu deild þó svo að bæði lið standi ansi vel að vígi í fallbaráttunni eftir drjúga stigasöfnun í síðustu leikjum liðanna. Stig sem gefur lítið  Víkingur og ÍA skiptu með sér stigunum í Fossvoginum  Bæði lið gátu stimplað sig frá fallbaráttu með sigri  Sameinast í fögnuði á tapi Eyjamanna Morgunblaðið/Eggert Fyrsta markið Jonathan Glenn skoraði sitt fyrsta mark fyrir Blika í gær og fagnar því með Kristni Jónssyni. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2015 Kópavogsvöllur, Pepsi-deild karla, 14. umferð, miðvikudag 5. ágúst 2015. Skilyrði: Mjög fín. Hægviðri, skýjað og hiti um 10 stig. Völlurinn góður. Skot: Breiðablik 13 (10) – Keflavík 8 (6). Horn: Breiðablik 9 – Keflavík 4. Breiðablik: (4-3-3) Mark: Gunnleifur Gunnleifsson. Vörn: Arnór S. Aðal- steinsson, Elfar Freyr Helgason, Damir Muminovic. Miðja: Oliver Sig- urjónsson (Andri Rafn Yeoman 82), Guðjón Pétur Lýðsson, Arnþór Ari Atlason (Atli Sigurjónsson 74). Sókn: Ellert Hreinsson, Jonathan Glenn, Höskuldur Gunnlaugsson. Keflavík: (4-5-1) Mark: Sindri K. Ólafsson. Vörn: Alexander Magn- ússon (Daníel Gylfason 74), Paul Bignot, Einar Orri Einarsson, Magnús Þ. Matthíasson. Miðja: Bojan Stefán Ljubicic, Farid Zato (Frans Elvarsson 13), Sindri Snær Magnússon, Samu- el Jimenez (Martin Hummervoll 62). Sókn: Chukwudi Chijindu. Dómari: Garðar Örn Hinriksson – 7. Áhorfendur: 1.128. Breiðablik – Keflavík 4:0 Víkingsvöllur, Pepsi-deild karla, 14. umferð, miðvikudag 5. ágúst 2015. Skilyrði: Örlítil gola en nokkuð hlýtt í Fossvoginum. Völlurinn virkaði þurr og nokkuð sléttur og þéttur. Skot: Víkingur R. 5 (2) – ÍA 12 (6). Horn: Víkingur R. 3 – ÍA 10. Víkingur R.: (4-4-2) Mark: Thom- as Nielsen. Vörn: Dofri Snorra- son, Tómas Guðmundsson, Milos Zivkovic, Halldór Smári Sigurðs- son. Miðja: Davíð Örn Atlason, Igor Taskovic, Viktor Bjarki Arn- arsson, Hallgrímur Mar Stein- grímsson. Sókn: Rolf Toft (Andri Rúnar Bjarnason 59), Vladimir Tufegdzic (Agnar Darri Sverrisson 69). ÍA: (4-4-2) Mark: Árni Snær Ólafsson. Vörn: Þórður Þ. Þórð- arson, Ármann Smári Björnsson, Arnór S. Guðmundsson, Darren Lough. Miðja: Hallur Flosason (Eggert Kári Karlsson 72), Albert Hafsteinsson, Arnar Már Guð- jónsson, Jón Vilhelm Ákason (Marko Andelkovic 84). Sókn: Ás- geir Marteinsson, Garðar B. Gunnlaugsson. Dómari: Pétur Guðmundsson – 7. Áhorfendur: 930. Víkingur – ÍA 1:1 1:0 Hallgrímur Mar Steingrímsson 3. var staddur á vítateigshorninu,lék inn í teiginn og skoraði með föstu skoti í nærhornið. 1:1 Garðar Bergmann Gunnlaugsson 31. skoraði með með föstumskalla eftir góða hornspyrnu frá Jóni Vilhelm. I Gul spjöld:Zivkovic (Víkingi) 24. (brot), Arnar Már (ÍA) 52. (brot). I Rauð spjöld: Engin. M Hallgrímur Mar Steingrímsson (Víkingi) Milos Zivkovic (Víkingi) Ásgeir Marteinsson (Víkingi) Jón Vilhelm Ákason (Víkingi) 1:0 Jonathan Glenn 42. setti boltann ínetið með brjóstkassanum af stuttu færi eftir fyrirgjöf Kristins. 2:0 Höskuldur Gunnlaugsson 44. meðviðstöðulausu skoti eftir fyrirgjöf Ellerts og skallasendingu Guðjóns. 3:0 Arnþór Ari Atlason 50. með hnit-miðuðum skalla eftir fyrirgjöf Kristins. 4:0 Höskuldur Gunnlaugsson 67.með góðum skalla eftir auka- spyrnu Guðjóns Péturs. I Gul spjöld:Bojan Stefán (Keflavík) 64. (mót- mæli), Franz (Keflavík) 65. (brot), Einar Orri (Keflavík) 67. (brot), Sindri (Keflavík) 72. (brot). I Rauð spjöld: Engin. MM Kristinn Jónsson (Breiðabliki) Höskuldur Gunnlaugsson (Bbliki) M Gunnleifur Gunnleifsson (Bbliki) Arnór Aðalsteinsson (Breiðabliki) Oliver Sigurjónsson (Breiðabliki) Arnþór Ari Atlason (Breiðabliki) Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðabliki) Ellert Hreinsson (Breiðabliki) Sindri K. Ólafsson (Keflavík) Hólmar Örn Rúnarsson (Keflavík) Þegar ég ræði við íþrótta- áhugamenn sem ekki eru ný- hættir á bleiu, og vita við hvað ég starfa, þá fæ ég tvær spurn- ingar oftar en aðrar. Önnur þeirra er: „Hvar er Julian Dura- nona?“ Hin spurning er af sama meiði: „Hvar er Mihajlo Biber- cic?“ Nú á ég erfitt með að átta mig á því hvers vegna fólk telur sjálfsagt að ég fylgist með af- drifum goðsagna í íþróttum löngu eftir að þeir eru hættir að spila. En þessar spurningar benda mjög sterkt til þess hversu mikinn svip margir snjall- ir erlendir leikmenn hafa sett á boltagreinarnar hérlendis. Tilþrif þeirra og taktar eru greypt í minni íþróttaunnenda. Ég tel að þetta gleymist stund- um þegar við ræðum um erlenda leikmenn á Íslandi. Oft á tíðum setja menn spurningarmerki við þegar íslensk lið leita eftir liðs- styrk erlendis frá. Ég ætla alls ekki að mæla því bót að menn eyði um efni fram í þeim efnum, eða geri slíkt á kostnað efnilegra leikmanna sem eru tilbúnir í slaginn. En líkast til eru menn að vonast eftir því að finna næsta Duranona eða næsta Bibercic. Í körfuboltanum er það orðinn árviss viðburður að menn takast á um hversu marga út- lendinga skal leyfa. Ekki virðast menn vilja hafa það frjálst og ríf- ast því um heppilegasta kvóta- kerfið. Á stundum hefur manni virst sem körfuboltahreyfingin sé nánast klofin í herðar niður vegna þessa þrætueplis en sjálf- sagt mun Hannes formaður skamma mig fyrir að taka svo sterkt til orða. Um leið og hann er búinn að skamma félaga sína í FIBA Europe fyrir að halda Vest- urbæjarstórveldinu fyrir utan Evrópukeppnina. Í handboltanum eru mun færri útlendingar en oft áður. Sjálfsagt hefur skortur á fjár- magni nokkuð með það að gera. Í ljósi þess að gríðarlegur fjöldi handboltamanna okkar leikur er- lendis, þá mætti deildin hér heima alveg við því að hér væru nokkrir erlendir leikmenn sem gætu glatt augað. Að því gefnu að þeir séu betri en þeir sem fyr- ir eru. Slíkir leikmenn geta einnig haft jákvæð áhrif á aðsóknina. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.