Morgunblaðið - 11.08.2015, Page 4

Morgunblaðið - 11.08.2015, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015 ávallt koma inn með ákefð og fína spilamennsku. Miðað við stöðu Fjölnismanna í deildinni áttu þeir að sýna betri leik í gær. Líkast til erfitt að leika gegn liði sem er í slíkri stöðu eins og Keflavík en spilamennska þeirra var alls ekki það sem þeir hafa sýnt í sumar og líkt og Keflvíkingar sjá þeir sárlega eftir þeim stigum sem töpuðust í þeirri baráttu sem þeir eru í í deild- inni. Ljósmynd/Víkurfréttir Hamagangur Hætta upp við mark Fjölnis í Keflavík í gærkvöldi en liðin þurftu að sætta sig við sitt hvort stigið. Bæði lið svekkt af velli  Keflavík og Fjölnir skildu jöfn 1:1 suður með sjó  Keflvíkingar stefna hrað- byri niður í 1. deild og Fjölnismenn urðu af dýrmætum stigum í efri hlutanum Ég verð að viðurkenna að frábær árangur íslenska sund- fólksins á HM í Rússlandi kom mér á óvart í vissum skilningi. Ekki að það hafi komið mér á óvart að Hrafnhildur og Eygló hafi bætt sig og sett met, eða að Anton Sveinn Mckee sé aftur á leiðinni á Ólympíuleika eins og þær. Ég sá bara ekki fyrir mér að Hrafnhildur og Eygló væru á meðal átta bestu sundkvenna heims í sínum greinum. Í sögu- legu samhengi eru það stórtíð- indi fyrir sundíþróttina á Íslandi. Örn Arnarson er sá eini sem hefur unnið til verðlauna á HM og enginn annar hefur komist nálægt því. Eðvarð Þór Eðvarðs- son var sá eini fyrir utan Arnar sem hafði komist í úrslit á HM. Hrafnhildur varð því fyrsta ís- lenska konan til að synda til úr- slita á HM. Hrafnhildur hefur bætt sig gríðarlega og syndir mun hraðar en hún gerði. Það kristallast í því að hún skuli komast í úrslit á HM í sprettsundi eins og 50 metra sund er. Að Ólympíu- leikunum loknum í London skrif- aði ég að Eygló væri vonar- stjarnan í sundinu. Þá var hún einungis 17 ára og manni fannst hún eiga meiri möguleika á því að komast í allra fremstu röð heldur en Hrafnhildur á þeim tímapunkti. Eygló er aðeins tví- tug og hennar ferill er því að þróast eins og vonast var til. Hrafnhildur hefur hins vegar náð lengra en ég bjóst við og hefur átt magnað ár. Hún gæti verið á hátindi ferilsins í Ríó að ári. Ég velti því fyrir mér hvers vegna íslenska sundfólkið er að uppskera svo ríkulega árið 2015. Á Ól 2012 var ekkert þeirra í undanúrslitum, hvað þá í átta manna úrslitum. Einhvers staðar eru einhverjir að gera eitthvað rétt. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Nettóvöllur, Pepsi-deild karla, 15. umferð, mánudag 11. ágúst 2015. Skilyrði: 8 stiga hiti og um 5 vind- stig úr vestri. Þurrt en alskýjað yfir. Skot: Keflavík 8 (2) – Fjölnir 8 (6). Horn: Keflavík 6 – Fjölnir 4. Keflavík: (4-4-2) Mark: Sindri K. Ólafsson. Vörn: Guðjón Árni Anton- íusson, Paul Bignot, Einar Orri Ein- arsson, Samuel Jimenez. Miðja: Jó- hann B. Guðmundsson (Leonard Sigurðsson 68), Frans Elvarsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Magnús Þ. Matthíasson (Bojan Stefán Ljubicic 88). Sókn: Chukwudi Chijindu (Daní- el Gylfason 71), Martin Hummervoll. Fjölnir: (4-4-2) Mark: Þórður Inga- son. Vörn: Atli Már Þorbergsson (Arnór Ólafsson 88), Bergsveinn Ólafsson, Jonatan Neftalí, Viðar Ari Jónsson. Miðja: Illugi Gunnarsson, Guðmundur K. Guðmundsson, Gunnar Már Guðmundsson (Mark Magee 61), Guðmundur Guðjónsson. Sókn: Kennie Chopart, Ragnar Leós- son (Aron Sigurðarson 71). Dómari: Pétur Guðmundsson – 8 Áhorfendur: 900 Keflavík – Fjölnir 1:1 0:1 Kennie Chopart 43. vannboltann af krafti, saumaði sig í gegnum vörnina og þrumaði boltanum í netið. 1:1 Martin Hummervoll 62.skallaði knöttinn í netið eft- ir sendingu frá Frans Elvarssyni. I Gul spjöld:Jóhann Birnir (Keflavík) 56. (mótmæli), Leonard (Keflavík) 73. (brot), Guðjón (Keflavík) 75. (brot) I Rauð spjöld: Engin MM Enginn M Frans Elvarsson (Keflavík) Martin Hummervoll (Keflavík) Paul Bignot (Keflavík) Kennie Chopart (Fjölnir) Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir) Bergsveinn Ólafarson (Fjölnir) ÍBV lyfti sér upp í 3. sæti Pepsí- deildar kvenna í gærkvöldi, alla vega um stundarsakir, með 5:1 stór- sigri á botnliði Aftureldingar í Vest- mannaeyjum. ÍBV er þá með 22 stig eftir 13 leiki og fór upp fyrir Þór/KA, Val og Selfoss á einu bretti. Öll nema Valur eiga þó leik til góða og Fylkir getur einnig náð 22 stigum í 13. um- ferðinni. Afturelding er í 10. og neðsta sætinu með 1 stig. Markalaust var fyrsta korterið en engu að síður hafði ÍBV 4:0 yfir að loknum fyrri hálfleik. Cloe Lacasse gerði fyrsta markið á 17. mínútu og þá gafu Mosfellingar eftir. Lacasse skoraði þá tvívegis í fyrr hálfleik en síðasra mark hennar kom á 44. mín- útu. Í millitíðinni skoruðu þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir á 20. og 36. mínútu. Kristín Elsa hefur nú skorað sjö mörk í deildinni í sumar en Lacasse er með sex mörk. Shan- eka Gordon er hins vegar marka- hæst hjá ÍBV með átta mörk en hún kom ekki við sögu í gærkvöldi. Mátti gera sé að góðu að sitja á varamannabekknum. Í síðari hálfleik létu mörkin bíða eftir sér þar til á lokamínútunum. Þá minnkaði Stefanía Valdimars- dóttir muninn fyrir Aftureldingu í 4:1 en ÍBV svaraði aðeins mínútu síðar og þar var á ferðinni Guðrún Bára Magnúsdóttir. Þrátt fyrir að vera í 3. sæti er ÍBV langt á eftir efstu liðunum, Breiðabliki og Stjörnunni, sem eru í sérflokki hvað stigasöfnun varðar. ÍBV er tólf stigum á eftir toppliði Breiðabliks. Afturelding hefur gert eitt jafn- tefli og tapað tólf leikjum. Þrátt fyr- ir það er ekki öll von úti fyrir Mos- fellinga ef liðið bætir sinn leik. Liðið er aðeins stigi á eftir Þrótti sem er í 9. sæti og fimm stigum á eftir KR sem er í 8. sætinu. kris@mbl.is ÍBV fór upp um þrjú sæti með 5:1 sigri  ÍBV situr nú í 3. sæti deildarinnar Ljósmynd/Sigfús Gunnar 7 mörk Kristín Erna Sigurlásdóttir hefur fagnað sjö mörkum í sumar. Jón Arnór Stef- ánsson, landsliðs- maður í körfu- bolta, gæti verið á förum frá spænska liðinu Unicaja Málaga eftir eins árs dvöl. Netmiðill- inn Karfan.is hefur þetta eftir Jóni sem segist bíða eftir svari frá Málaga. Karfan hefur eftir Jóni að þjálf- ari Málaga vilji ólmur halda honum hjá félaginu en stjórn félagsins sé með aðrar hugmyndir um hvernig leikmannahópurinn eigi að vera samansettur. Sjálfur segist Jón vilja vera áfram hjá félaginu ef þjálfarinn fær einhverju ráðið. Ekki skortir áhuga annarra liða ef Málaga semur ekki við Jón og hefur Jón fengið tilboð frá spænsku félagi en auk þess hafa nokkur sett sig í samband. Spænska pressan mun hafa nefnt félögin Murcia, Es- tudiantes og Zaragoza. Jón bendir á að ekki sé sjálfsagt að hann verði á Spáni fari svo að hann yfirgefi Málaga. Aðrir áfangastaðir komi einnig til greina en hann hefur spilað víða í Evrópu á ferlinum. kris@mbl.is Jón Arnór á förum frá Málaga? Jón Arnór Stefánsson Í KEFLAVÍK Skúli B. Sigurðsson skulibsig@mbl.is Keflavík og Fjölnir mættust í 15. umferð Pepsi-deildar karla í gær- kvöldi á Nettóvellinum í gærkvöldi. Bæði lið í baráttunni en hinsvegar á sitthvorum staðnum. Á meðan Fjölnismenn slást um Evrópusæti eru Keflvíkingar í bullandi vand- ræðum á botni deildarinnar og stefna hraðbyri í að slá met með fæstum stigum yfir heilt sumar. Eftir 90 mínútna leik skildu liðin jöfn, 1:1. Bæði mörkin komu eftir mikla seiglu leikmanna. Kennie Chopart barði sig í gegnum vörn Keflavíkur og skoraði glæsilegt mark á meðan það var Frans Elv- arsson sem vann boltann með harð- fylgi og sendi hann snyrtilega á kollinn á Martin Hummervoll sem afgreiddi boltann í netið. Leikur þessi verður hinsvegar seint talinn til augnakonfekts. Mikið um misheppnaðar sendingar og lítið sem ekkert kom upp úr föstum leik- atriðum sem hefur verið þeim Kefl- víkingum nánast lifibrauð í sumar. En hinsvegar var baráttan til staðar hjá liðunum og hefur kannski gæði knattspyrnunnar speglast af því. Það er óhætt að segja að jafntefli hafi verið sanngjörn niðurstaða þó svo að hvorugt liðið myndi kannski viðurkenna það. Fjölnismenn voru aðgangsharðari framan af leik en Keflvíkingar komu sprækari til seinni hálfleiks og sýndu mikla bar- áttu. Hausverkur Keflvíkinga eykst með hverju stigi sem tapast. Það er fátt sem bendir til annars en að þeir séu að kveðja Pepsi-deildina í bili. Sumarið hefur verið erfitt fyrir þá bláklæddu miðað við þær væntingar sem voru fyrir mót og ofan í allt hafa meiðsli verið þeim afar dýr. Ljós punktur hjá þeim í gærkvöldi var frammistaða Frans Elvarssonar sem í raun bjargaði stigi fyrir þá og svo innkoma Leonard Sigurðssonar, en undirrituðum finnst þessi piltur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.