Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1960, Side 8
6
Alþingiskosningar 1959
Norðurlandskjördæmi vestra: Vestur-Húnavatnssýsla, Austur-Húnavatnssýsla,
Skagafjarðarsýsla, Sauðárkrókskaupstaður og Siglufjarðarkaupstaður.
Austurlandskjördæmi: Norður-Múlasýsla, Seyðisfjarðarkaupstaður, Suður-Múla-
sýsla, Neskaupstaður og Austur-Skaftafellssýsla.
Reykjaneskjördæmi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, Hafnarfjarðarkaupstaður,
Keflavíkurkaupstaður og Kópavogskaupstaður.
b. 12 þingmenn kosnir hlutbundinni kosningu í 2 sex manna kjördæmum:
Norðurlandskjördæmi eystra: Eyjafjarðarsýsla, Akureyrarkaupstaður, Olafs-
fjarðarkaupstaður, Suður-Þingeyjarsýsla, Húsavíkurkaupstaður og Norður-Þing-
eyjarsýsla.
__ Suðurlandskjördæmi: Vestur-Skaftafellssýsla, Vestmannaeyjakaupstaður, Rang-
árvallasýsla og Árnessýsla.
c. 12 þingmenn kosnir hlutbundinni kosningu í Reykjavík.
d. 11 landskjörnir þingmenn til jöfnunar milii þingflokka, svo að hver þeirra hafi
þingsæti í sem fyllstu samræmi vi$5 atkvæðatölu sína við almennar kosningar.
Þingmenn skulu kosnir til 4 ára. A hverjum framboðslista skulu að jafnaði vera
tvöfalt fleiri menn en kjósa á í því kjördæmi, og skulu varamenn, bæði fyrir kjör-
dæmakosna þingmenn og landskjörna, vera svo margir sem til endist á listanum."
Breytingar á þingmannatölu og kjördæmaskipun frá því, sem áður var, eru þessar
helztar;
1) Kjördæmakjörnum þingmönnum var fjölgað úr 41 í 49. Landskjörnir^þingmenn,
sem voru áður 11 að hamarki (svo hefur raunar ávallt verið), skulu nu ávallt vera
11 talsins. Heildartala þingsæta hækkar samkvæmt þessu ur 52 í 60.
2) í stað 21 einmenningskjördæmis og 7 kjördæma með hlutfallskosningu, urðu til 8
stór hlutfallskjördæmi, öll með hlutfallskosningu:
Tala kjördæmakos- inna þingmanna Tala kjörr
Reykjavík Nú Aður dæma áður
12 8 1
Reykjaneskjördæmi 5 2 2
Vesturlandskjördæmi 5 4 4
Vestfjarðakjördæmi 5 5 5
Norðurlandskjördæmi vestra . . 5 5 4
Norðurlandskjördæmi eystra . . 6 5 4
Austurlandskjördæmi 5 6 4
Suðurlandskjördæmi 6 6 4
Samtals 49 41 28
3) Heimild stjórnmálaflokka til að hafa landslista í kjöri við alþingiskosningar var
felld niður.
2. TALA KJÓSENDA
Number of electors on register
Við alþingiskosningar 28. júní 1959 var tala kjósenda á kjörskrá 95050 eða 55, 3%
af íbúatölu landsins. Við kosningarnar 25. og 26. október var kjósendatalan 95637 eða
55, 2^0 af íbúatölu landsins. Her er miðað við, að íbúatalan hafi verið 171900 í júní
og 173300 í október 1959. Síðan kosningaaldur var færður niður í 21 ár, með stjórnar-
skrárbreytingunni 1934, hefur kjósendatalan verið sem hér segir: