Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1971, Blaðsíða 40

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1971, Blaðsíða 40
Hagstofa Islands gefur út eftirtalin rit: 1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verzlun- arslcýrslur, Búnaðarskýrslur, Iðnaðarskýrslur, Manntal, Mannfjöldaskýrslur, Alþingiskosningar, Sveitarsjóðareikningar, o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa komið út 50 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru rit send þeim í pósti. 2. Hagskýrslur íslands, aukafloklc. í honum eru sams konar rit og í aðalflokki Hag- skýrslna, nema hvað þau eru í öðru broti (kvartbroti) og „off-set“-fjölrituð. 3. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtarmánaðarlegar skýrslur um utanríkisverzlun, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu o. fl., og árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Ár- legt áskriftargjald Hagtíðinda er 150 kr. 4. Statistical Bulletin er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og með 1963, þar áður var það mánaðarrit). — í Statistical Bulletin eru birtar ýmsar töflur úr Hagtíðindum, og úr Fjármálatíðindum, riti Seðlabanka íslands. — Erlendir áskrifendur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskrift- argjald þess 85 kr. 5. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru alhr íbúar Reykjavíkur næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1970 var 1380 bls., og verð 2700 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað, að bún seljist upp. 6. Skrár yfir fyrirtæki á íslandi 1969. Hér er birtur frumstofn hinnar nýju beildarskrár Hagstofunnar yfir fyrirtæki á íslandi (þar eru með bændur, útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s. frv.). í þessu riti eru þríþættar uppsláttar- skrár, þar á meðal skrár, þar sem atvinnufyrirtækjum, stofnunum og félags- samtökum er skipt í 165 starfsgreinar. — Rit þetta kostar 1600 kr. í bandi. Gert er ráð fyrir, að það komi út árlega eða á fárra ára fresti. 7. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, lieimili og fleiri upplýsingum um dána, koma út árlega í fjölrituðu befti. Fyrsta beftið, með dánum 1965 —67, kostar 130 kr., en skrár yfir dána 1969 og 1970 lcosta 80 kr. hvorar um sig. Afgreiðsla ofan greindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu á 3. hæð (inngangur frá Ingólfsstræti), Reykjavík. Sími 26699. — Rit eru send gegn póstkröfu, ef þess er óskað, þó ekki rit í liðum 5 og 6.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.