Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1971, Blaðsíða 8

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1971, Blaðsíða 8
6 Alþingiskosningar 1971 í skýrslu Hagstofunnar (nr. 129) uni alþingiskosningarnar 1949 er, á bls. 5, yfirlit um kjósendatölu við allar alþingiskosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur frá 1874, og sömuleiðis er þar stuttlega greint frá skilyrðum fyrir kosningarrétti síðan 1903. Vísast til þess. Af kjósendatölunni 1971 voru 49,9% karlar, en 50,l%konur. Koma 1002 kven- kjóscndur á móts við hvert þúsund karlkjósenda. Af öllum kjósendum á landinu 1971 kom að meðaltali l 971 kjósandi á hvern þingmann, en 1 785 við kosningarnar 1967. f töflu I á hls. 14 er synd tala kjósenda og hlutfallsleg kosningarþátttaka í hverju kjördæmi, og í hverjum kaupstað, hverri sýslu og hverjum hreppi. Enn fremur er þar sýnd tala kjósenda og hlutfallsleg kosningarþátttaka á hverjum kjör- stað í Reykjavík. — Tala kjósenda á hvern kjördæmiskosinn þingmann var sem hér segir í hverju kjördæmi í alþingiskosningunum 1971: Reykjavík ................................. 4181 Reykjaneskjördæmi ......................... 4 020 Vesturlandskjördæmi........................ 1 473 Vestfjarðakjördæmi ........................ 1 117 Norðurlandskjördæmi vestra ................ 1171 Norðurlandskjördæmi eystra ................ 2 094 Austurlandskjördœmi ....................... 1 284 Suðurlandskjördæmi ........................ 1 706 Enginn var ú kjörskrá í Flateyjarhr. í S-Þingeyjarsýslu, þar eð íbúar hans voru fluttir burt. í Loðmundaifjarðarhr. var aðeins einn á kjörskrá, og greiddi hann atkvæði í Boigarfjarðarhreppi. 2. Kosningarþátttaka. Participation in elections. Við kosningarnar sumarið 1971 greiddu atkvæði alls 106 975 kjósendur eða 90,4% af heildarkjósendatölunni. Mest hefur þátttaka í alþingiskosningum orðið 1956 eða 92,1%, en við atkvæðagreiðsluna um niðurfelling samhandslaga og stofnun lýðveldis 1944 var þátttakan 98,4%. í skýrslu Hagstofunnar um alþingiskosningar 1949, bls. 6—8, er gerð nokkur grein fyrir þátttöku í kosningum frá 1874. Vísast til þess. Síðan 1937 hefur kosningarþátttaka verið 6em hér segir: 1937 ■ 87,9% 1956 ... 92,1% 1942 ‘/7 . . 80,3 „ 1959 «7* ... 90,6 „ 1942 »/,0 .. 82,3 „ 1959 ... 90,4 „ 1944 þjóðaratkv.gr. .. • 98,4 „ 1963 ... 91,1 „ 1946 . 87,4,. 1967 ... 91,4 „ 1949 . 89,0 „ 1968 forsetakjör . ., ... 92,2 „ 1952 forsetakjör .... • 82,0 „ 1971 ... 90,4 „ 1953 .. 89,9.. Þegar athuguð er þátttaka karla og kvenna í kosningunum, þá sést í 1. yfirliti (bls. 8), að þátttaka kvenna er minni en þátttaka karla. Við kosningarnar 1971 greiddu atkvæði 92,2% af karlkjósendum, en 88,6% af kvenkjósendum. Við kosn- ingarnar 1967 voru þessi hlutföll 92,9% og 89,8%, og við kosningarnar 1963 voru þau 93,1% og 89,2%.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.