Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1971, Qupperneq 8
6
Alþingiskosningar 1971
í skýrslu Hagstofunnar (nr. 129) uni alþingiskosningarnar 1949 er, á bls. 5,
yfirlit um kjósendatölu við allar alþingiskosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur frá
1874, og sömuleiðis er þar stuttlega greint frá skilyrðum fyrir kosningarrétti síðan
1903. Vísast til þess.
Af kjósendatölunni 1971 voru 49,9% karlar, en 50,l%konur. Koma 1002 kven-
kjóscndur á móts við hvert þúsund karlkjósenda.
Af öllum kjósendum á landinu 1971 kom að meðaltali l 971 kjósandi á hvern
þingmann, en 1 785 við kosningarnar 1967.
f töflu I á hls. 14 er synd tala kjósenda og hlutfallsleg kosningarþátttaka í
hverju kjördæmi, og í hverjum kaupstað, hverri sýslu og hverjum hreppi. Enn
fremur er þar sýnd tala kjósenda og hlutfallsleg kosningarþátttaka á hverjum kjör-
stað í Reykjavík. — Tala kjósenda á hvern kjördæmiskosinn þingmann var sem hér
segir í hverju kjördæmi í alþingiskosningunum 1971:
Reykjavík ................................. 4181
Reykjaneskjördæmi ......................... 4 020
Vesturlandskjördæmi........................ 1 473
Vestfjarðakjördæmi ........................ 1 117
Norðurlandskjördæmi vestra ................ 1171
Norðurlandskjördæmi eystra ................ 2 094
Austurlandskjördœmi ....................... 1 284
Suðurlandskjördæmi ........................ 1 706
Enginn var ú kjörskrá í Flateyjarhr. í S-Þingeyjarsýslu, þar eð íbúar hans
voru fluttir burt. í Loðmundaifjarðarhr. var aðeins einn á kjörskrá, og greiddi
hann atkvæði í Boigarfjarðarhreppi.
2. Kosningarþátttaka.
Participation in elections.
Við kosningarnar sumarið 1971 greiddu atkvæði alls 106 975 kjósendur eða
90,4% af heildarkjósendatölunni. Mest hefur þátttaka í alþingiskosningum orðið
1956 eða 92,1%, en við atkvæðagreiðsluna um niðurfelling samhandslaga og stofnun
lýðveldis 1944 var þátttakan 98,4%.
í skýrslu Hagstofunnar um alþingiskosningar 1949, bls. 6—8, er gerð nokkur
grein fyrir þátttöku í kosningum frá 1874. Vísast til þess.
Síðan 1937 hefur kosningarþátttaka verið 6em hér segir:
1937 ■ 87,9% 1956 ... 92,1%
1942 ‘/7 . . 80,3 „ 1959 «7* ... 90,6 „
1942 »/,0 .. 82,3 „ 1959 ... 90,4 „
1944 þjóðaratkv.gr. .. • 98,4 „ 1963 ... 91,1 „
1946 . 87,4,. 1967 ... 91,4 „
1949 . 89,0 „ 1968 forsetakjör . ., ... 92,2 „
1952 forsetakjör .... • 82,0 „ 1971 ... 90,4 „
1953 .. 89,9..
Þegar athuguð er þátttaka karla og kvenna í kosningunum, þá sést í 1. yfirliti
(bls. 8), að þátttaka kvenna er minni en þátttaka karla. Við kosningarnar 1971
greiddu atkvæði 92,2% af karlkjósendum, en 88,6% af kvenkjósendum. Við kosn-
ingarnar 1967 voru þessi hlutföll 92,9% og 89,8%, og við kosningarnar 1963 voru
þau 93,1% og 89,2%.