Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Blaðsíða 14

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Blaðsíða 14
12 Alþingiskosningar 1987 Konur og hjú fengu takmarkaðan kosningar- rétt með breytingu á stjómarskránni 1915. Var lágmarksaldur þeirra 40 ár, en skyldi lækka um eitt ár árlega næstu 15 ár, uns aldursmark þeirra yrði 25 ár, eins og þeirra sem höfðu kosningar- rétt fyrir. Jafnframt var 4 króna aukaútsvars- greiðsla felld niður sem skilyrði fyrir kosningar- rétti. Við þetta kemst kjósendatalan upp yfir 30% af mannfjölda, og smáhækkar síðan eftir þvf sem aldursmark nýju kjósendanna lækkar. Stjómarskránni var breytt 1920 og var þá hið sérstaka aldursmark nýju kjósendanna fellt niður, og hækkaði þá kjósendatalan svo að hún varð um 45% íbúatölunnar. Með stjómarskrárbreytingu árið 1934 var aldursmark allra kjósenda lækkað í 21 ár og sveitarstyrksþegar fengu kosningarrétt. Urðu kjósendur þá meiri hluti þjóðarinnar, um 56%. Fæðingum fækkaði nokkuð á fjórða tug aldar- innar og óx því hlutdeild fólks á kosningaraldri í íbúatölunni á fjórða áratugnum og komst í um 60%. Á sjötta áratugnum fjölgaði bömum mjög en fámennir árgangar bættust í hóp kjósenda, og fór því hlutfall þeirra lækkandi allt til ársins 1967, þegar það var um 54%. Jafnframt munu nákvæmari tölur um kjósendur valda eilitlu um lækkun hlutfallsins eftir að farið var að byggja kjörskrár á kjörskrárstofnum Þjóðskrárinnar, frá og með 1956. Líkindi til þess að menn séu á kjör- skrá í fleiri en einni kjördeild hafa minnkað stór- lega við það. Enn fremur eiga ekki að vera með í kjósendatölunni frá þeim tíma þeir sem em á kjör- skrá, en fá ekki kosningarrétt fyrr en eftir kjördag á árinu, og ekki heldur þeir sem dánir eru þegar kosning fer ffam. Kosningaraldur var lækkaður í 20 ár 1968 (stjómarskipunarlög nr. 9/1968), og olli það hækkun kjósendahlutfallsins við forsetakjörið þá. Síðan hefur það farið sfhækkandi þar sem öll fólksfjölgun á landinu hefur orðið meðal þeirra sem náð hafa kosningaraldri. Var kjósendahlut- fallið komið í 64% í kosningunum 1983. Eins og áður er getið var kosningarréttur rýmkaður 1987 og er þá lágmarksaldur kjósenda í fyrsta skipti 18 ár, auk þess sem lögræðissvipt- ing veldur ekki missi kosningarréttar. Hækkar hlutfall kjósenda af íbúatölunni nú í 70%. Samkvæmt kosningalögum skulu menn vera á kjörskrá þar sem þeir áttu lögheimili 1. desember á undan þeim tíma, er kjörskrár skulu lagðar ffarn. Við kosningamar 25. apríl 1987 áttu menn því kosningarrétt þar sem lögheimilið var 1. desember 1986. Munu aðfluttir til landins eftir 1. desember 1986, sem ekki höfðu átt hér lögheimili 1. desember 1982 eða síðar, í mörgum tilvikum hafa leitað eftir því að komast á kjör- skrá. Munu þeir yfirleitt hafa verið úrskurðaðir eða dæmdir inn á kjörskrána teldust þeir full- nægja kosningarréttarskilyrðum stjómarskrárinn- ar þá er kosning fór fram, enda skyldi ákvæði kosningalaga um lögheimili 1. desember 1986 næst áður en kjörskrár era lagðar fram einungis ráða því /ivarmenn stæðu á kjörskrá. Hluta af hækkun kjósendahlutfallsins síðan 1968 má rekja til breytinga sem varða íbúatöluna ekki síður en kjósendatöluna. Þeir sem fara utan til náms halda yfirleitt lögheimili sínu — og þá kosningarrétti — á íslandi. í lögheimilislögum, nr. 35/1960, segir: „Rétt er þeim, sem dveljast erlendis við nám, að telja lögheimili sitt í sveitarfélagi, þar sem þeir áttu lögheimili, er þeir fóra af landi brott.“ ísland gerðist aðili að samningi Norðurlanda um almannaskráningu árið 1969, og kom hún til framkvæmda þá 1. október. Samningurinn felur það meðal annars í sér, að sérhver einstaklingur, sem tekinn er á almannaskrá í einu aðildarlanda, skal um leið felldur af almannaskrá í því landi sem hann flytur frá. Til þess að leysa þann vanda sem myndaðist varðandi kosningarrétt vegna þessa var sá háttur hafður á árin 1971-83, að fólk sem flust hafði til Norðurlanda var tekið inn á kjörskrárstofna Þjóð- skrárinnar væri það innan tiltekins aldurs og ekki vitað annað en að það væri við nám. Fólk yfir aldursmarkinu en við nám var tekið á kjörskrá bæri það fram ósk um það. íslensku námsfólki á Norðurlöndum fjölgaði mikið frá 1968 til 1983, og þar sem það kom í kjósendatöluna en ekki mannfjöldatöluna olli það hækkun kjósenda- hlutfallsins umfram það sem annars hefði verið. Með breytingum þeim á kosningarrétti 1987, sem fyrr var getið, eiga kosningarrétt allir þeir sem flust hafa af landi brott á síðustu fjóram áram og fullnægja öðram skilyrðum hans. Fellur því niður hin sérstaka aðferð Þjóðskrárinnar til þess að námsmenn á Norðurlöndum komist á kjörskrárstofn, en eftir sem áður munu þeir hafa verið teknir á kjörskrá ef þeir leituðu eftir því þó þeir hafi verið meira en 4 ár við nám. Sem fyrr segir lætur Hagstofan sveitarstjóm- um í té stofn að kjörskrá, sem þær gera síðan svo úr garði að úr verður gild kjörskrá. Tölur samkvæmt kjörskrárstofni era ævinlega hærri en samkvæmt endanlegri kjörskrá. Á kjörskrárstofn koma meðal annars þeir sem ná kosningaraldri á árinu en eftir kjördag. í 3. yfirliti á bls. 14 er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.