Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Síða 76

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Síða 76
Hagstofa Islands gefur út eftirtalin rit: Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru birtar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verslunarskýrslur, Sveit- arsjóðareikningar, Mannfjöldaskýrslur, Alþingiskosningar, Dómsmálaskýrslur, Tölfræðihandbók o.fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132 rit; í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa konrið út 86 rit. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar skýrslur um utanríkisverslun, fiskafla, framfærsluvísitölu og aðrar vísitölur, og árlegar skýrsl- ur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. Áskriftargjald Hagtíðinda fyrir árið 1988 er 1.000 kr. íbúaskrár fyrir Reykjavík og nokkur stærstu sveitarfélögin (1986 fyrir Seltjarnarnes, Kópavog, Garðabæ, Bessastaðahrepp, Hafnarförð, Mosfellsbæ, Akureyri og Vest- mannaeyjar) koma út á hverju vori. í þeim eru allir íbúar þessara sveitarfélaga næst- liðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá með þeim upplýsingum, sem hún hefur að geyma um hvern mann. Fyrirtækjaskrá. Einu sinni á ári, og oftar ef ástæða þykir til, kemur út skrá yfir þá að- ila, fyrirtæki, stofnanir, félagssamtöko. fl., sem hafasérstök auðkennisnúmer (nafn- númer og kennitölu) í fyrirtækjaskrá Hagstofunnar. Síðasta útgáfa þessarar skrár er miðuð við miðjan júní 1986. Ný útgáfa er væntanleg í nóvember 1987. Skrár yflr dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum um dána, koma út árlega í fjölrituðu hefti. í ritinu Skrá um stofnanaheiti, sem kom út á árinu 1972, er dönsk og ensk þýðing á heiti stofnana, embætta, félagssamtaka og starfsgreina. Uppsláttaratriði í riti þessu eru um 1500 að tölu. Unnið er að aukinni og endurbættri útgáfu þessa rits og er hún væntanleg fyrri hluta árs 1988. NORRÆN TÖLFRÆÐIHANDBÓK Hagstofan annast dreifingu á íslandi á ársritinu Norrœn tölfrœðihandbók (Yearbook of Nordic Statistics — Nordisk statistisk ársbok), senr Norðurlandaráð og Norræna hagstofan í Kaupmannahöfn gefa út. I riti þessu er mjög margvíslegur fróðleikur í talnaformi um Norðurlönd og þjóðir þær sem þau byggja. Norræn tölfræðihandbók 1986 er 426 blaðsíður með 290 töflum, auk línurita og korta, og kostar 1.000 kr. Þá fæst einnig hjá Hagstofunni Norrœn tölfrœðibók wn trygginga- og félagsmál 1984 (Social tryghed i de nordiske lande) sem gefin er út af Norrænu hagstofunni á dönsku. Bókin fjallar í texta og töflum um umfang, útgjöld og fjármögnun almanna- trygginga á Norðurlöndum. Bókin er röskar 200 bls. og kostar 500 kr. Afgreiðsla ofangreindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8-10 (3. hæð), 150 Reykjavík. Sími (91)26699. Póstgíróreikningur Hagstofunnar er nr. 26646-9. Rit eru send gegn póstkröfu, sé þess óskað.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.