Þjóðmál - 01.03.2008, Page 11
Þjóðmál VoR 2008
tapað, ef illa færi, en ætti milljarðatugi í
vændum, ef allt gengi samkvæmt áætlun.
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra,
fagnaði hinu nýja fyrirtæki og hafði þessi
orð um stofnun þess: „Sem Reykvíkingur og
íbúi í Reykjavík að þá auðvitað horfi ég á þá
staðreynd að þarna er orkuveitan hugsanlega
að fara í ákveðinn áhætturekstur en ég sé það
líka að hún er að leggja þarna inn sex, sjö
milljarða en eignin sem hún fær út úr þessu
eru, ja, næstum því þrefalt meiri þannig að
það er nú góður samningur fyrir okkur í
Reykjavík. Og svo gleðst ég yfir því að það
er yfirlýsing um það að þetta fyrirtæki að
það fari á markað innan tíðar og þar með
verður væntanlega undið ofan af þessu sem
að menn kannski eru að gagnrýna sem er
ákveðin áhætta sem að tekin er.“
Þótt Guðmundur Þóroddsson segði
Orkuveitu Reykjavíkur hafa látið 4 milljarða
í hið nýja REI, nefnir Össur Skarphéðins-
son 6 milljarða og var sú tala almennt notuð
í fréttum á þessum tíma. Strax fáeinum
dögum eftir ákvörðunina um samruna var
sagt frá því, að hluturinn væri þá metinn á
16 milljarða.
Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarmaður
í Reykjavik Energy Invest, sagði hinn 5.
október, að verðmæti orkuveitunnar í út-
rásarverkefnum hefðu margfaldast á stutt-
um tíma. Það benti til að stjórnendur
hennar og REI væru að gera rétt. Stefnt
væri á skráningu félagsins á alþjóðlegum
hlutabréfamarkaði um mitt ár 2009. Þá
kynni raungildi að hafa margfaldast og
gæti jafnvel numið 30 til 40 milljörðum og
færi þar með langt með að „dekka“ skuldir
Reykjavíkurborgar, eins og hann orðaði það
í útvarpsviðtali.
Sagt var frá því, að 500 milljóna króna
hlutur Bjarna Ármannssonar, stjórnarfor-
manns REI, hefði tvöfaldast að verðmæti
á þremur vikum. Verðmætaaukningin væri
hálfur milljarður króna. Bjarni taldi 5.
október, að REI væri metið á 65 milljarða
króna en það hefði verið talið 18 milljarða
króna virði tæpum mánuði áður.
II.
Hinn 5. október var sagt frá því, að hlutabréf í FL Group hefðu hækkað
mjög í verði 2. október, daginn áður en
tilkynnt var um sameiningu Geysir Green
Energy og Reykjavik Energy Investment.
Í fréttum sjónvarpsins 5. október sagði:
„Athygli vekur einnig að hlutabréf í FL
Group hækkuðu mjög í verði 2. október,
daginn áður en tilkynnt var um samrunann.
Úr 24,5 í 25,8. Fjöldi viðskipta sjöfaldað-
ist einnig milli daga, fór úr 11 í 77. Bréf í
Atorku, næst stærsta hluthafanum í Geysi
Green lækkuðu hins vegar örlítið þennan
sama dag. Jafet Ólafsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Verðbréfastofunnar, telur já-
kvæðar fréttir af öðrum fjárfestingum FL
Group skýra þessa hækkun frekar en að
nokkur óeðlileg viðskipti hafi átt sér stað.
Geysir Green sé ekki það stór hluti fjár-
festinga FL Group en vissulega sé þetta
óheppileg tilviljun.“
Í fréttum hljóðvarps ríkisins kl. 18.00 7.
október 2007 sagði: „Á þriðjudaginn [2.
október] flaug Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, til Kína í boði Glitnis.
Bankinn á hlut í jarðvarmafyrirtækinu REI.
Ólafur sagði í samtali við Stöð 2 að Kínverj-
ar væru hæstánægðir með samstarfið við Ís-
lendinga um nýtingu jarðvarma og vildu
auka það til mikilla muna. Verkefnið væri
svo stórt að ef samningar gengju eftir gerðu
íslensk orkufyrirtæki, fjármálastofnanir og
bankar varla nokkuð annað á næstu árum
en að sinna því. Daginn eftir samþykkti
stjórn orkuveitunnar samruna Geysis
Green og REI. Þar næsta dag kynntu
Bjarni Ármannsson og fulltrúar FL Group
erlendum fjárfestum blómlega framtíð FL.