Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
sem meistarar. Þá spilar liðið í
SEHA-deildinni, en í henni spila tíu
lið frá Balkanlöndunum.
„Við erum alveg búnir að fá að
heyra það að við eigum að fara alla
leið í Meistaradeildinni í ár. Það er
talað um að þetta sé besta Veszprém-
lið allra tíma og hópurinn sem liðið
hafi úr að spila sé rosalega sterkur.
Ég er stoltur af að vera í þessu liði
og við eigum með þetta lið að ná frá-
bærum árangri. Mig langaði að prófa
eitthvað annað og að vera Íslend-
ingur hér í Ungverjalandi er eitthvað
nýtt. Mér hefur verið tekið mjög vel
og allir eru jákvæðir í minn garð. Nú
þarf maður bara að sýna góða hluti
inni á vellinum. Það er númer eitt,
tvö og þrjú.“
Þarf að vera samviskusamur
Finnurðu mikinn mun á álagi hjá
Veszprém og Kiel?
„Við æfum nú kannski ekkert
minna en ég gerði með Kiel. Maður
þarf að vera samviskusamur og æfa
sjálfur mikið og það hef ég gert. Hjá
Ortega gengu æfingarnar mikið út á
að standa úti á velli og spjalla. Þetta
er því ekkert eins og hlaupin hjá Alla.
Ég hef haldið góðu sambandi við
nokkra félaga mína hjá Kiel og auð-
vitað saknar maður ákveðinna hluta.
Þegar ég horfði á Kiel spila í Flens-
burg um daginn viðurkenni ég alveg
að ég hefði verið til í að vera þar. En
þetta var mín ákvörðun og ég vissi
hvað ég var að fara út í og hverju ég
var að hlaupa frá. Ég hef ekki fundið
fyrir neinni eftirsjá enn sem komið er
en nú er smá óvissa hjá félaginu
varðandi þessi þjálfaramál. Eðlilega
er maður pínulítið stressaður yfir því
hver verður ráðinn en á meðan verð-
ur maður bara að vera duglegur að
æfa og vona að málin leysist vel.“
Ljósmynd/Veszprém
Ánægður Aron Pálmarsson kominn í skotstöðu í leik með ungverska liðinu Veszprém sem hann gekk til liðs við í sumar.
Aron Pálmarsson
» Aron er 25 ára gamall, fædd-
ur og uppalinn í Hafnarfirði og
lék með FH áður en hann gekk til
liðs við Kiel árið 2009.
» Aron lék með Kiel í sex ár og
vann fjölda titla með liðinu.
Hann var valinn maður úrslita-
helgarinnar í Meistaradeildinni
árið 2014 og hefur verið lykil-
maður í íslenska landsliðinu.
Útlit er fyrir að hinn 18 ára gamli
Jökull Blængsson standi í marki
Fjölnis á laugardag þegar liðið mætir
FH, þar sem FH getur með sigri
tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í
knattspyrnu. Þórður Ingason, aðal-
markvörður Fjölnis, er í agabanni og
æfir ekki með liðinu, og varamark-
vörðurinn Steinar Örn Gunnarsson
fékk þungt högg á höfuðið í leik gegn
Víkingi R. á sunnudaginn.
„Ég hef bara hvílt mig frá því á
sunnudaginn. Ég tek æfingu með Gunnari [Sigurðssyni,
markmannsþjálfara] á morgun [í dag] og ef hún gengur
vel æfi ég með liðinu á föstudag og spila á laugardaginn,“
sagði Steinar. Það er því ljóst að ef hann spilar verður
undirbúningurinn mjög takmarkaður, og oftast þurfa
menn lengri tíma til að jafna sig eftir höfuðhögg. Steinar
kveðst þó telja að hann hafi sloppið við heilahristing:
„Ég gerði mér ekki grein fyrir því strax hve alvarlegt
þetta var fyrr en ég leit upp og sá strákana. Það var lík-
lega vitleysa að spila áfram, eins og ég gerði. Þegar leik-
urinn byrjaði aftur fann ég fljótt hjartsláttinn í hausnum
og sá bara stjörnur, þannig að þá ákvað ég að fara út af.
Ég fór svo upp á sjúkrahús, það þurfti að sauma 10-12
spor, og ég fann aðeins fyrir þessu um kvöldið en síðan
er ég búinn að vera nokkuð fínn. Ég held að ég hafi alveg
örugglega ekki fengið heilahristing, svo það er strax já-
kvætt,“ sagði Steinar, sem stefnir á að spila á laugardag:
„Ef allt fer á versta veg hjá mér þá fær Jökull séns-
inn,“ sagði Steinar, en Jökull leysti hann af hólmi gegn
Víkingi í sínum fyrsta meistaraflokksleik. sindris@mbl.is
Ekkert búinn að æfa eftir höfuðhöggið
Þórður
Ingason
Arnór Ingvi Traustason skoraði fyrir Norrköping í 4:2 sigri
á Djurgården í efstu deild sænska fótboltans í gærkvöldi.
Arnór skoraði fyrsta mark liðsins á 21. mínútu og lagði
upp annað en hann hefur skorað 6 mörk í 24 leikjum með
liðinu í deildinni á tímabilinu.
Með sigrinum komst Norrköping á toppinn ásamt AIK
með 54 stig. AIK vann 2:0 útisigur á Sundsvall og lék Hauk-
ur Heiðar Hauksson allan leikinn hjá AIK eins og Jón Guðni
Fjóluson og Rúnar Már Sigurjónsson gerðu hjá Sundsvall.
Hjálmar Jónsson og samherjar hjá Gautaborg eru stigi á
eftir með 53 stig og eiga leik til góða.
Birkir Már Sævarsson og Ögmundur Kristinsson spiluðu
allan tímann í góðum 3:0 sigri Hammarby á Gefle.
Kári Árnason var á sínum stað í vörn Malmö sem hleypti inn þremur mörk-
um á heimavelli gegn Falkenbergs en komst upp með það og vann 4:3.
kris@mbl.is
Íslendingar í toppbaráttu
Arnór Ingvi
Traustason
Ljósmynd/Hilmar Þór
2013 á Spáni. Vegna meiðsla hefur hans
Ólafur vonast til að vera á batavegi.
Áður en árið er úti mun Hólmfríður
Magnúsdóttir að öllum líkindum
bætast í hóp þeirra knattspyrnu-
kvenna sem leikið hafa 100 A-
landsleiki fyrir Ísland. Hólmfríður
lék sinn 99. landsleik þegar hún
skoraði fyrra markið í 2:0-sigrinum
á Hvíta-Rússlandi í fyrrakvöld. Sá
leikur var sá hundraðasti hjá Mar-
gréti Láru Viðarsdóttur en áður
höfðu fjórar landsliðskonur, sem
allar eru hættar, náð 100 leikja
áfanganum. Katrín Jónsdóttir var
fyrst til þess og Edda Garðarsdóttir
náði því árið 2013. Í fyrra bættust
svo Þóra B. Helgadóttir og Dóra
María Lárusdóttir í hópinn, en
þessar fjórar hafa allar lagt skóna
á hilluna.
Hólmfríður spilar sennilega 100.
leikinn sinn í Skopje, höfuðborg
Makedóníu, eftir tæpan mánuð.
Á eftir Hólmfríði er, ótrúlegt en
satt, Sara Björk Gunnarsdóttir
næst 100 leikja múrnum. Sara verð-
ur 25 ára í næstu viku en hefur
þegar leikið 85 landsleiki. Fastlega
má búast við að Sara spili áfram
alla leiki nema hún sé meidd eða í
banni. Þá myndi hún spila leikina
tvo sem eftir eru á þessu ári, leik-
ina fimm í undankeppni EM á
næsta ári, sennilega fjóra leiki í
Algarve-bikarnum í mars, og einn
eða tvo vináttulandsleiki. Gangi allt
að óskum næði hún því líklega 100
leikja áfanganum í Algarve-
bikarnum 2017, þá aðeins 26 ára
gömul, sem yrði að sjálfsögðu met.
Sara lék sinn fyrsta A-landsleik í
ágúst 2007, áður en hún varð 17
ára.
Næstar á eftir Söru í núverandi
hópi eru Rakel Hönnudóttir (71
landsleikur), Hallbera Guðný Gísla-
dóttir (64) og Fanndís Friðriks-
dóttir (62). Þá á Katrín Ómarsdóttir
64 leiki en síðasti leikur hennar var
í maí í fyrra. sindris@mbl.is
Hólmfríður og Sara næstar
Morgunblaðið/Golli
Næstar Sara Björk Gunnarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir.
Þýskaland
Flensburg – Füchse Berlin................. 30:30
Bjarki Már Elísson skoraði ekki fyrir
Füchse Berlin. Erlingur Richardsson er
þjálfari liðsins.
Rhein-Neckar Löwen – Stuttgart ..... 31:20
Alexander Petersson skoraði 2 fyrir Lö-
wen og Stefán Rafn Sigurmannsson 2.
Göppingen – Kiel ................................. 29:21
Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel.
Staðan:
RN Löwen 7 7 0 0 205:147 14
Göppingen 7 5 0 2 185:155 10
Melsungen 6 5 0 1 171:153 10
Kiel 7 5 0 2 207:184 10
Füchse Berlín 6 4 1 1 183:155 9
Flensburg 7 4 1 2 196:177 9
Hamburg 6 3 1 2 169:152 7
Wetzlar 6 3 1 2 157:161 7
Leipzig 6 3 0 3 159:171 6
Gummersbach 5 3 0 2 134:134 6
Magdeburg 6 3 0 3 157:163 6
Hann-Burgdorf 6 2 1 3 153:164 5
Bergischer 7 2 0 5 171:191 4
Lemgo 6 1 1 4 155:180 3
Balingen 6 1 0 5 157:175 2
Stuttgart 6 1 0 5 148:172 2
Eisenach 6 1 0 5 154:200 2
N-Lübbecke 6 0 0 6 156:183 0
Frakkland
Ivry – Nimes......................................... 35:36
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 11 fyr-
ir Nimes og Ásgeir Örn Hallgrímsson 8.
Paris SG – St.Raphael......................... 34:27
Róbert Gunnarsson skoraði ekki fyrir
Paris SG.
Arnór Atlason skoraði 5 fyrir St.Rapha-
el.
Danmörk
Nordsjælland – Skjern........................ 28:29
Jóhann Karl Reynisson leikur með
Nordsjælland.
Esbjerg – SöndejyskE......................... 27:35
Steinunn Hansdóttir leikur með Sönder-
jyskE.
Randers – Nyk ..................................... 31:26
Rut Jónsdóttir leikur með Randers.
HANDBOLTI
KNATTSPYRNA
Undankeppni EM U17 karla:
Laugardalsvöllur: Ísland – Grikkland.19.15
Kaplakriki: Danmörk – Kasakstan...........15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olís-deildin:
KA-heimili: Akureyri – Haukar ............... 19
Fram-hús: Fram – Valur ..................... 19.30
Austurberg: ÍR – Víkingur.................. 19.30
Varmá: Afturelding – FH .................... 19.30
Í KVÖLD!
Oliver Sigur-
jónsson, lykil-
maður Breiða-
bliks, var
dæmdur í eins
leiks bann á
fundi aganefnd-
ar KSÍ. Hann
missir því af
heimsókn ÍBV á
laugardaginn
líkt og marka-
hrókurinn Jonathan Glenn, sem er
lánsmaður frá ÍBV. Auk Olivers
fengu eins leiks bann þeir Kristján
Flóki Finnbogason, FH, Einar Orri
Einarsson og Frans Elvarsson,
Keflavík, Vladimir Tufegdzic og
Arnþór I. Kristinsson, Víkingi,
Stefán Logi Magnússon, KR, og
Gunnar Már Guðmundsson, Fjölni.
Blikar án
lykilmanna
Oliver
Sigurjónsson