Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
Mathieu Flamini af öllum mönnum
var hetja Arsenal þegar liðið lagði
granna sína í Tottenham, 2:1, í 32-liða
úrslitum ensku deildabikar-
keppninnar í knattspyrnu í gær.
Flamini, sem skorar ekki á hverjum
degi, gerði sér lítið fyrir og skoraði
bæði mörk sinna manna og sigur-
markið 20 mínútum fyrir leikslok eft-
ir að Tottenham hafði jafnað metin
með sjálfsmarki Calum Chambers.
Manchester United átti ekki í
vandræðum með að vinna Ipswich á
heimavelli en 3:0 urðu lokatölurnar.
Wayne Rooney, Andreas Pereira og
Frakkinn ungi, Anthony Martial,
skoruðu mörkin en Martial hefur svo
sannarlega verið iðinn við kolann.
Chelsea, sem á titil að verja, vann
auðveldan 4:1 sigur á móti Walsall.
Loic Remy, Ramires, Kennedy og
Pedro settu mörkin fyrir Chelsea.
Steve McClaren, stjóri Newcastle,
er orðinn valtur í sessi eftir 1:0 tap á
heimavelli gegn Sheffield Wed-
nesday.
Jóhann Berg Guðmundsson lék
síðasta hálftímann fyrir Charlton sem
tapaði fyrir Crystal Palace, 4:1.
gummih@mbl.is
AFP
Ánægður Mathieu Flamini fagnar
öðru marki sínu gegn Tottenham.
Flamini var hetjan
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ólympíufarinn Kári Steinn Karls-
son úr ÍR mun ekki hlaupa mara-
þonhlaup þetta haustið eins og hann
hafði stefnt að. Kári tjáði Morgun-
blaðinu að hann hefði þurft að taka
sér hvíld frá æfingum eftir erfitt
sumar, þar sem hann missti kraft
og orku af einhverjum ástæðum
sem ekki liggja fyrir. Kári hafði
hugsað sér að hlaupa annaðhvort í
Berlín í september eða í Frankfurt í
október.
„Ég var í basli í sumar. Var í
fantaformi, og í bætingagír, þegar
kom að Hamborgarmaraþoninu í
lok apríl. Þar var eins og ég hefði
lent á einhverjum vegg og var
svakalega lengi að jafna mig eftir
hlaupið. Ég hef alltaf verið tilbúinn í
markvissar æfingar tveimur vikum
eftir hlaup en það var alls ekki
raunin í þetta skiptið. Þegar ég ætl-
aði að reyna að koma mér af stað
var alltaf einhver þreyta, svimi og
máttleysi. Sú var eiginlega saga
sumarsins. Þar sem ég hafði stefnt
að því að reyna við ólympíu-
lágmarkið í Berlín í september var
ég að rembast við að drífa mig aftur
í form. Eftir á að hyggja voru það
mistök. Þegar ég sá að fyrirvarinn
var orðinn skammur fór ég að spá í
Frankfurtmaraþonið. Þegar ég sá
að ég skánaði ekki ákvað ég að taka
mánuð í algera hvíld og ná þessu úr
mér. Nú er tæpur mánuður síðan ég
hóf æfingar að nýju. Ég er ekki í
neinu standi eins og er en leiðin
liggur rólega upp á við. Það eru
liðnir fimm mánuðir síðan ég var í
toppformi og það tekur því lengri
tíma fyrir mig að vinna mig í form.“
Ofþjálfun furðulegt fyrirbæri
Lýsingar Kára minna nokkuð á
lýsingar íþróttamanna sem lent
hafa í ofþjálfun. Spurður um þær
vangaveltur blaðamanns segir Kári
erfitt að skilgreina ofþjálfun og
mæla hana. Ekki hafi verið greint
hvað hafi nákvæmlega komið fyrir.
„Þetta hefur mögulega verið ein-
hvers konar ofþjálfun eða of mikil
áreynsla. En þessi ofþjálfun er
furðulegt fyrirbæri og erfitt að
mæla hana. Að hluta til getur svona
lagað verið andlegt en það var ekki
hjá mér í vor. Viljinn var fyrir hendi
og ég var brattur að takast á við æf-
ingar en líkaminn sagði einfaldlega
stopp. Nú er verkefnið að vera
skynsamur, ná fullri heilsu og kom-
ast á góðan skrið. Þá verður stefnan
sett á næsta maraþon. Ég brenndi
mig á því í sumar að setja stefnuna
á maraþon án þess að vera kominn í
stand og lenti þá í kapphlaupi við
tímann. Það reyndist ekki vel og nú
verður heilsan og formið í fyrsta
sæti. Þegar það er komið negli ég
niður næsta hlaup.“
Eitt tækifæri til að ná Ríó?
Maraþonhlauparar eru í annarri
stöðu en margir aðrir afreks-
íþróttamenn því þeir keppa afar
sjaldan í sinni aðalgrein. Mannslík-
aminn býður einfaldlega ekki upp á
meira en kannski þrjú maraþon-
hlaup á ári ef góður tími á að nást.
Ólympíuleikarnir fara fram í Ríó í
ágúst á næsta ári. Takist Kára að
vinna sig út úr þeim vandræðum
sem að honum sóttu í sumar er
spurning hvort hann muni ekki bara
fá eitt tækifæri til þess að ná lág-
markinu fyrir Ríó?
„Já, það stefnir jafnvel í að sú
verði staðan. Hinn möguleikinn
væri þá að taka hlaup snemma árs
og eiga annað tækifæri um mán-
aðamótin apríl-maí. Fræðilega er
það hægt. Í janúar þyrfti maður
væntanlega að ferðast til Asíu enda
kalt á þeim árstíma í Evrópu.
Fyrsta hraða hlaupið í Evrópu er
væntanlega í Sevilla í febrúar.
Þægilegra væri að fá tvö tækifæri
en ef ekki þá verður maður að vera
vel undirbúinn og ná góðu hlaupi.
Ég mun skoða þetta með mínu fólki
en á þessum tímapunkti er það ekki
tímabært.“
Neistinn er að kvikna á ný
Kári sýndi á Ólympíuleikunum í
London að hann á fullt erindi á
þann vettvang þegar hann er vel
upplagður. Þar hafnaði hann í 42.
sæti en átti fyrirfram 97. besta ár-
angurinn af keppendunum 105. Eft-
ir að hafa kynnst leikunum í Lond-
on hefur Kári eftir sem áður mikinn
áhuga á að vera á meðal keppenda í
Ríó.
„Jú, engin spurning. Þegar mað-
ur er búinn að gíra sig upp í æfinga-
tímabil, og ætlar sér að negla lág-
markið í Berlín, þá er þetta svolítið
erfið staða. Þegar ég reyndi aftur
og aftur að koma mér í gang dró að-
eins úr manni. En undanfarið eru
æfingarnar að þokast upp á við hjá
mér og mér hefur gengið betur. Ég
er smám saman að finna neistann
aftur,“ sagði Kári Steinn Karlsson,
margfaldur Íslandsmethafi, enn-
fremur í samtali við Morgunblaðið.
Líkami Kára sagði stopp
Hlauparinn sigursæli tók sér mánaðarhvíld Lýsingar sem minna á ofþjálfun
Aðeins ár í Ólympíuleikana í Ríó Hleypur ekki maraþon þetta haustið
Morgunblaðið/Golli
Hvíld Kári Steinn Karlsson mun ekki hlaupa maraþon þetta haustið.
Ætli megi ekki kenna um
smá spennufalli hjá sumum af ís-
lensku landsliðsmönnunum í
knattspyrnu að þeir hafa ekki al-
veg náð sér á strik með liðum
sínum á undanförnum vikum.
Leikirnir á móti Hollandi og Ka-
sakstan tóku mikið á og menn
lögðu á sig gríðarlega vinnu til
að tryggja íslenska landsliðinu
farseðilinn eftirsótta á EM.
Gylfi Þór Sigurðsson, Kol-
beinn Sigþórsson og fyrirliðinn
Aron Einar Gunnarsson, sem telj-
ast til lykilmanna í íslenska
landsliðinu og eru nánast ómiss-
andi, hafa haft hægt um sig með
liðum sínum. Gylfi hefur enn ekki
komist á blað með Swansea,
hvorki á markalistanum né í
stoðsendingum, Kolbeini hefur
ekki tekist að skora fyrir Nantes
og var á dögunum úrskurðaður í
tveggja leikja bann fyrir ljótt brot
og Aron Einar hefur aðeins kom-
ið við sögu í tveimur af átta leikj-
um Cardiff í ensku B-deildinni.
Ekki hef ég neinar áhyggj-
ur af þremenningunum. Ég veit
að þeir komast aftur á rétta
braut með félagsliðum sínum og
verða örugglega öflugir í tveimur
síðustu leikjum Íslands í undan-
keppninni í næsta mánuði, gegn
Lettum á Laugardalsvelli og á
móti Tyrkjum ytra. Aron verður
að vísu í leikbanni á móti Lett-
unum en skarð hans verður
örugglega vel fyllt.
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
NÝR VIÐBURÐAVEFUR
Allt það helsta á einum stað
- vinsælasti vefur landsins
KVIKMYNDIR
FUNDIR OG RÁÐSTEFNUR
TÓNLIST
LEIKHÚS
MYNDLIST
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
AÐRIR VIÐBURÐIR