Skólavarðan - 01.10.2004, Qupperneq 16
16
KJARAMÁL GRUNNSKÓLAKENNARA
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004
Verkfall Félags grunnskólakennara
hófst 20. september. Vonir kennara um
að fýsilegur samningur liti dagsins ljós í
tíma voru ekki bjartar og hafi einhvern
dreymt um tromp á síðustu stundu
urðu þeir draumar að engu. Samninga-
nefndir KÍ og LN funduðu stíft alla vik-
una fyrir boðað verkfall í húsakynnum
ríkissáttasemjara. Viðsemjendur fund-
uðu ýmist sér eða saman á formlegum
eða óformlegum fundum.
Um hádegi þann 19. september lögðu
kennarar fram tilboð um skammtímasamn-
ing sem átti að gilda til loka skólaársins
2004-2005. Að mati samninganefndar KÍ
hefði hann þýtt 15 -16% kostnaðarauka
fyrir sveitarfélögin, þar af um 6,6% vegna
hækkunar launa en afgangurinn vegna
vinnutímabreytinga og fleiri þátta.
Launanefnd sveitarfélaga hafnaði þessu
lokaútspili kennara. Um klukkan 21:30 var
viðræðum slitið þar sem fullreynt þótti að
of mikið bæri á milli samningsaðila til að
samkomulag gæti tekist að sinni.
Frystitímabil
Enginn sáttafundur var í deilunni fyrr
en á fjórða degi verkfalls þann en þá hitt-
ust samningsaðilar hjá sáttasemjara. Sá
fundur stóð í tvo og hálfan tíma og varð
árangurslaus. Sáttasemjari boðaði næsta
fund eftir viku. Bent var á að slík frystitíma-
bil væru þekkt í verkfallasögu kennara.
Verkfallsstjórn og verkfallsmiðstöðvar
Verkfallsstjórn, undanþágunefnd og
fleiri starfshópar hófu störf í Kennara-
húsinu strax og verkfall hófst til að skipu-
leggja framkvæmd þess. Verkfallsstjórn
hóf undirbúningsstörf skömmu fyrir
boðað verkfall og hefur aðsetur í kjallara
Kennarahússins. Formaður verkfallsstjórn-
ar er Svava Pétursdóttir.
Verkfallsmiðstöð fyrir kennara í Reykja-
vík, Mosfellsbæ, Kópavogi og Seltjarnar-
nesi var opnuð samdægurs í Borgartúni
22, gegnt húsakynnum sáttasemjara.
Fljótlega voru verkfallsmiðstöðvar opn-
aðar víða um land þar sem svæðafélög
FG halda uppi öflugu kynningarstarfi og
skipuleggja verkfallsvörslu.
Kynningarnefnd og Verkfallspósturinn
Kynningarnefnd starfar ötullega og
Verkfall skollið á
Nú heyrist æ oftar frá sveitarstjórum landsins að ríkið verði að
koma að lausn kjarabaráttu kennara með auknu fjármagni til
sveitarfélaganna. Í því felst viðurkenning á að kröfur kennara
séu raunhæfar og sveitarfélögin vilji koma til móts við kennara
en telji sig ekki hafa svigrúm til þess. Ekki er hægt að skilja þetta
öðruvísi en svo að sveitarfélögin vilji í raun bæta kjör kennara.
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og Stefanía Traustadótt-
ir bæjarstjóri á Ólafsfirði segja bæði í Fréttablaðinu þann 27. sept-
ember að launakröfur kennara rúmist ekki innan fjárhagsramma
sveitarfélaganna en nefna ekki að þær séu of háar.
(Verkfallspósturinn 6. tbl. 28. september 2004.)
Starfsmannafélag ríkisstofnana færði grunnskólakennurum 10 milljónir
króna í verkfallsjóð. Á myndinni eru frá vinstri: Svala Norðdahl, Eiríkur
Jónsson, Jens Andrésson og Árni Heimir Jónsson.