Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 22

Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 22
22 MÁLÞING OG RÁÐSTEFNUR SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004 Á ágústhefti Skólavörðunnar var sagt frá sumarráðstefnu norrænu kennara- samtaka NLS sem haldin var í sumar í Røros í Noregi. Frá Íslandi fór 12 manna hópur. Egill Guðmundsson, Guðlaug Erla Gunnarsdóttir og Helga Magnús- dóttir skrifuðu ítarlega skýrslu um ráð- stefnuna og er hún birt í heild á heima- síðu KÍ. Hér er stiklað á stóru í nokkrum fyrirlestrum ráðstefnunnar. Lars Gunnar Lingås dr. phil. flutti fyrirlestur sem hann nefndi „Hvordan håndterer vi dilemmaene vi møter som yrkesutøvere - sett fra et filosofisk per- spektiv.“ Doktor Lingås sagði að siðfræði þróaðist ekki við íhugun eina, mikilvægt væri að hún væri í sífelldri þróun innan fagfélaga og rædd skipulega i hópum inn- an þeirra. Að lokum lagði Lingås áherslu á að þrátt fyrir alla siðfræði og kennisetn- ingar væru allir sem vinna að uppeldismál- um fyrst og fremst ábyrgir orða sinna og gerða og yrðu að gera upp við sjálfa sig hvernig þeir leiti lausna. Terje Ogden prófessor sálfræði við Óslóaráskóla flutti fyrirlestur um „Den inkluderende (romlige) barnehage og skole - hvilke dilemmaer blir vi stilt over- for?“ Hann velti því fyrir sér hvort skólinn væri búinn undir það að taka á móti öllum nemendum eins og kröfur dagsins segðu til um. Ogden sagði of lítið um rannsókn- ir og faglega umfjöllun, meira hefði farið fyrir hinni pólitísku umræðu. Skóli fyrir alla og árangursríkt skólastarf gætu skoð- ast sem andstæður en hann taldi hægt að skapa aðstæður þar sem þetta yrði ein sterk heild. Til þess að skapa slíkar aðstæður þyrfti m.a. sterka faglega leið- toga, skýra hugmyndafræði og gildismat sem skólasamfélagið þyrfti að sameinast um. Hann lagði einnig áherslu á að gæði kennslu, jákvæð samskipti og tengsl milli kennara og nemenda væru mikilvægar forsendur. Gunnilla Garanath blaðamaður og rit- höfundur fjallaði á gagnrýninn hátt um námskrá sænskra barna, þar væri a.m.k. fjórum sinnum sagt að nemendur bæru ábyrgð á eigin námi. Hún taldi þetta vafa- sama fullyrðingu þar sem skólaskylda væri í landinu og kennarar hlytu að bera mikla ábyrgð varðandi nám skólabarna. Hún nefndi mörg skemmtileg dæmi um hvern- ig hún vildi sjá menndun barna þróast og var á köflum mjög gagnrýnin á hve kenn- arar reyndu að vera hlutlausir í umfjöllun sinni um samfélagsleg ágreiningsefni. Að loknum þessum ólíku fyrirlestr- um urðu fjörugar umræður í hópum og töldu margir að skólunum væri sífellt ætlað viðameira hlutverk eins og það að sinna öllum nemendum, en fjármunir og aðstæður fylgdu ekki með. Sérskólar eru á undanhaldi á Norðurlöndunum og almenna skólanum ætlað að sinna öllum nemendum eins og við könnumst við hér á Íslandi. Margar spurningar vöknuðu varð- andi þessar breyttu aðstæður og virtust ráðstefnugestir vera sammála um það að aukið fjármagn og sérfræðiþekking væri grundvöllur þess að þetta tækist vel. Í næst Skólavörðu birtum við síðasta hluta umfjöllunarinnar um sumarráðstefn- una í Røros. Sjá nánar www.ki.is Egill Guðmundsson, Guðlaug Erla Gunnars- dóttir og Helga Magnúsdóttir Sumarráðstefna NLS í Røros í Noregi 2004 Þátttakendur á sumarráðstefnu NLS í Røros 2004. Lj ó sm . Fi n n b o g i S ig u rð ss o n

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.