Skólavarðan - 01.10.2004, Síða 23

Skólavarðan - 01.10.2004, Síða 23
23 SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004 Málþing um málefni sérkennslu var hald- ið í Kennaraháskóla Íslands 10.-11. sept- ember sl. Yfirskrift málþingsins var Skóli án aðgreiningar. Þátttakendur, sem fylltu fyrirlestrasalinn Skriðu, hlýddu á fyrirlestra, voru í mál- stofum og að lokum fóru fram pallborðsumræður. Tveir gestafyrirlesarar komu erlendis frá, Cor JW. Meijer verk- efnisstjóri í Evrópumiðstöð um þróun í sérkennslu og Dianne Ferguson prófessor við háskóla í Oregon og St. Louis. Þau greindu frá straumum og stefnum í sérkennslumál- um beggja vegna Atlantsála. Auk þeirra töluðu m.a. Arthúr Morthens frá Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur, Hanna Hjartardóttir skólastjóri Snælandsskóla, Valgerður Ei- ríksdóttir kennari í Fellaskóla, Málfríður Gísladóttir sérkennari í Álftanesskóla og Dóra S. Bjarnason prófessor í KHÍ. Veigamikill árangur á Íslandi Arthúr Mortens sagði í erindi sínu að það sem einkenndi norræna skólahefð væri velferðarþátturinn. Þung áhersla væri á lýðræði, manngildi, jafnrétti, sam- hjálp og mikla aðstoð við fötluð börn og börn með sérþarfir. Skólarnir væru vel mannaðirog mikið lagt upp úr því að laga nám og kennslu að þörfum einstaklinga. Í máli hans kom fram að Norðurlanda- þjóðirnar hefðu gengið lengra en aðrir í viðleitni til að jafna aðstöðu nemenda innan grunnskólans með markvissum að- gerðum og að þessi viðleitni hefði skilað miklum árangri. Sérkennslan hefði alla tíð gegnt veigamiklu hlutverki ásamt öflugri sérfræðiþjónustu. Hann benti á að sam- kvæmt Písa-rannsókninni hefði þó engin þjóð náð meiri árangri en Íslendingar í að jafna aðstöðu fatlaðra nemenda og nemenda með námsörðugleika. Margvíslegar ástæður sérkennsluþarfa Arthúr sagði að sér- kennslu hér á landi mætti skipta í þrjá grunnþætti. Í fyrsta lagi væru sérskólar og sérhæfðar deildir sem þjónuðu 0,5% eða um 220 nemendum. Í öðru lagi væru nemendur með almenna og sértæka námsörðugleika eða 10-12%. Þennan flokk fylltu einnig nemendur með minni háttar hegðunarraskanir. Þriðji hópurinn væru þeir sem fjallað væri um í 37. grein grunnskólalaganna, en það væru nemend- ur með fatlanir, alvarlegar málhamlanir og hegðunarraskanir, þeir væru u.þ.b. 5-6% nemenda. Undir hverjum þessara þátta væru svo margir undirþættir. Nauðsynlegt að efla kennaramenntun Arthúr varpaði fram þeirri spurningu hvort allir kennarar gætu kennt öllum. Það væri staðreynd að í skólana kæmu seinþroska nemendur, nemendur með lesblindu, málhamlanir, skerta sjón, heyrn- eða skynhamlanir, einhverfir, fjöl- fatlaðir og nemendur með geðraskanir og atferlistruflanir á mismunandi stigum svo Skóli sem þjónar öllum nemendum, fötluðum sem ófötluðum Skóli án aðgreiningar Fræðsluráð Reykjavíkur skipaði þriggja manna nefnd árið 2000 sem mót- aði tillögur um sérkennslu og sérúrræði í Reykjavík. Nefndin starfaði í samráði við starfsmenn Fræðslumiðstöðvar, starfsmenn skóla og ýmsa aðra aðila sem hagsmuna eiga að gæta. Nefndin skilaði afrakstri af starfi sínu í veglegri skýrslu sem er aðgengileg á heimasíðu Fræðsluráðs Reykja- víkur. Stefnumörkun sú sem þar kemur fram var samþykkt í Fræðsluráði Reykjavíkur haustið 2001 og stefnt að því að markmiðin sem þar eru sett fram kæmust til framkvæmda í áföngum 2002-2004. Bakgrunnur sérkennslustefnu Reykjavíkur liggur í grunnskólalögun- um, reglugerð um sérkennslu, aðalnámskrá og Salamanca yfirlýsingunni sem Ísland er aðili að. Upplýsingar úr ítarlegri rannsókn á sérkennslu í grunnskólum Reykjavíkur voru grunnur til að byggja stefnumörkun á. Umfangsmikil könnun var gerð á sérkennslumálum í Reykjavík og kom út skýrsla byggð á henni haustið 2000. Þar kom fram m.a. að 20% nemenda voru í sérkennslu og sérúrræðum. Jafnframt var við þessa stefnumörkun sótt í smiðju annarra þjóða, þar má nefna Kanada, Noreg og Bretland. Leiðarljós og hugmyndabanki MÁLÞING OG RÁÐSTEFNUR Úr myndasafni

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.