Skólavarðan - 01.10.2004, Side 30
30
SMIÐSHÖGGIÐ
Í hinum fullkomna heimi fá aðeins þeir hæfustu að kenna. Hin-
ir verða að sætta sig við að vinna önnur störf. Allt nám og öll
kennsla þykja jafn mikilvæg og merkleg en þó er lögð sérstök
rækt við uppeldi og fræðslu yngstu barnanna og starf leikskóla-
og grunnskólakennara er því afar mikils metið.
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004
Í hinum fullkomna heimi fá aðeins þeir
hæfustu að kenna. Hinir verða að sætta
sig við að vinna önnur störf. Allt nám
og öll kennsla þykja jafn mikilvæg og
merkleg en þó er lögð sérstök rækt við
uppeldi og fræðslu yngstu barnanna
og starf leikskóla- og grunnskólakenn-
ara er því afar mikils metið. Þannig spar-
ast samfélaginu umtalsverðir fjármunir.
Það er jafnvel rætt um að leggja niður
framhaldsskólastigið því allflest sext-
án ára ungmenni eru tilbúin að takast
á við það sem við nú köllum ,,æðri“
menntun.
Í heimi bestum heima snýst menntun
um tvennt: Að efla sjálfið og auðga samfé-
lagið. Reyndar er hugtakið menntun ekki
til því alltaf er talað um símenntun sem
þýðir menntun frá vöggu til grafar. Fólk
leitar sér ekki menntunar eingöngu til að
auka eigin hagsæld heldur hefur ávallt í
huga að þekking er þjóðarauður. Vegna
þess hve gaman er að læra gefur fólk sér
tíma til þess. Samkvæmt nýlegri könnun
vilja 69% launþega frekar sækja fleiri
námskeið á vinnutíma en að fá lengra
sumarfrí.
Kennarar eru afar færir og aðferðir
þeirra frjóar og fjölbreyttar. Alltaf er tek-
ið mið af þörfum nemenda enda hefur
hver og einn frá unga aldri lært að skil-
greina námsþarfir sínar og námsnálgun.
Gæðavottunarstofnanir fylgjast með sam-
setningu kennslustunda og samkvæmt
viðmiðum eiga fyrirlestrar ekki að fara yfir
tíunda hluta kennslutíma. Nám byggist
að mestu á virkni nemenda. Menntun er
skemmtun sem skilar sér í 100% mætingu.
Fáir hafa annað en jákvæða upplifun af
námi, en þeir sem einhverra hluta vegna
hafa átt í erfiðleikum geta farið í meðferð
hjá Samtökum áhugafólks um neikvæða
námsupplifun.
Nám fer að sjálfsögðu ekki aðeins fram
í kennslustofum heldur er ýmsum aðferð-
um beitt til að uppfræða og efla fólk á
öllum sviðum samfélagsins. Tungumál
eru engin hindrun því þróun sjálfvirkra
þýðingarforrita er hröð auk þess sem fólk
er vant að tileinka sér erlendar tungur.
Nýir Íslendingar hafa fært þjóðinni aukinn
mál- og menningarskilning og eftir því er
tekið á alþjóðavettvangi hversu vel hefur
tekist að fá fólk af erlendum uppruna til
að læra málið, aðlagast menningunni og
efla atvinnulífið. Aðgengi að námi er öll-
um jafnt og enginn þarf að líða fyrir fötl-
un, kynferði, uppruna né búsetu.
Menntunarsagnfræðingar hafa mikinn
áhuga á orðinu prófgráða. Í heimi bestum
heima er leikni fólks, þekking og þroski
metin með þróuðum raunfærniaðferð-
um. Fólk safnar að sér þekkingu eins og
blandi í poka. Börn eru ekki spurð hvað
þau ætli að verða þegar þau verða stór
því flest eiga þau fleiri en einn starfsferil
fyrir höndum og velja sér námspakka sem
hentar hverju sinni. Þetta eykur víðsýni
og samfélagsþroska. Enginn lendir í blind-
götu við val á námi og starfi því alls staðar
eru útgönguleiðir og auðvelt að fá grein-
argóðar upplýsingar. Gagnsæi ríkir um
námsþarfir einstaklinga og atvinnuvega
því námsframboð fylgir þróun samfélags-
ins - og samfélagið þróast í samræmi við
menntun og þarfir fólksins. Mikil áhersla
er lögð á félags- og menningargildi náms
og símenntun er ekki síst notuð til að efla
sjálfsþekkingu hvers og eins og bæta sam-
skipti sem leiðir bæði til aukinnar fram-
leiðni og innihaldsríkara einkalífs.
Hægt er að velja á milli margs kon-
ar rafrænna námskosta. Tölvufælni og
tæknilegir örðugleikar heyra sögunni til.
Fjarnámsaðferðir hafa þróast mikið, ekki
síst félagssálfræðilegu þættirnir, og fólk
þarf ekki að geta horfst í augu og fundið
lyktina hvert af öðru til að geta stundað
árangursríkt samvinnunám.
Fjölmiðlar fjalla mikið um menntamál.
Hjá því verður ekki komist vegna þess hve
þungt þau vega í allri umræðu. Fjölmiðla-
fólk og stjórnmálamenn stúdera gjarnan
kennslufræði, bæði til að læra leiðir til að
koma upplýsingum og boðskap á framfæri
en einnig til að vera betur í stakk búin að
fjalla um samfélagsþróun og stjórnmál því
hvergi ólmast púlsinn ákafar en í umræð-
unni um símenntamál allra aldurshópa.
Og að sjálfsögðu er menntamálaráðuneyt-
ið það ráðuneyti sem slagurinn stendur
um að afstöðnum kosningum. Þetta er
mitt draumaland.
Björg Árnadóttir framhaldsskólakennari og
framkvæmdastjóri Framvegis - miðstöðvar
um símenntun
Það er mitt draumaland
Björg Árnadóttir